Ægir

Árgangur

Ægir - 01.05.1933, Blaðsíða 19

Ægir - 01.05.1933, Blaðsíða 19
ÆGIR 137 til; eiga mörg þeirra enn leið fyrir hið illræmda Cap Horn og verða að þola hnjask það og hættur, sem sigling á þeim slóðum, hefur í för með sér. Kappsiglingar eiga sér enn stað, þótt ekki séu þær neitt í líkingu við þær, er áður voru. Þegar »Thermopy- lae« var á ferðinni ár- in 1868-1870 og setti metið frá Englandi til Ástralíu á 60 dögum, sem nú þykir vel siglt á 90 — 100 dögum og er haldið á lofti, þá voru kappsiglingar, sem um var vert að ræða, en þeirra skipa, sem skör- i °ðu fram úr þar, verð- ur ekki getið hér. Eilt er þó það skip, sem vert er að minnast á ; er það y>Culíy Sarl<«, sem enn er til, ísamaá igkomulagi, með samskonar reiða og var, meðan skip Þetta hélt uppi sínum frægu ferðum. Geyma Bretar það og halda því við, til niinningar um forna frægð — siglinga Þeirra. Meðan það var í förum, var Wood- gett skipstjóri þess sá, sem mestar sögur fóru af. í 17 ár fór hann að meðaltali á 70 dögum, ferðir sínar milli Englands °g Ástralíu og í dagbókum skipsins sézt hvergi, að hann hafi lagt skipinu til vegna ofviðra. Hann missti einu sinni stýri skipsins er hann var staddur í austan- verðu Indlandshafi á leið til Englands. Hann hélt ferðinni áfram, leitaði hvergi hafnar til að fánýttstýri og komst hjálp- arlaust til ákvörðunarstaðar með ó- skemmdan farm. Woodgett er nýlega látinn. Mynd af þessu skipi er sýnd hér. Skipið er heitið eftir hinni fögru stúlku- mynd efst á stefni þess (Figurehead). Það er skozk stúlka í stutlu pilsi (cutty sark). Það eru til óteljandi seglskip í heim- inum, en þau, sem nefnd eru hér, eru langferðaskipin, sem enn halda uppi ferðum án vélaafls. Flest þeirra eru göm- ul, fara að ganga úr sér og vart munu koma samskonar skip í þeirra stað, þeg- ar þau hætta ferðum. Flestir gömlu skip- stjórarnir, sem héldu uppi hraðferðum á þessum skipum, eru nú dauðir og skipshafnir þeirra einnig — ogalltbend- ir til, að sjómenn líkir þeim, komi ekki aftur fram á sjónarsviðið, enda er þeirra ekki lengur þörf, því þekking og sigl- ingar þeirra eru úr sögunni og annað komið í staðinn, sem hentugra þykir. 11. maí 1933. Sueinbjörn Egilson. vCallij sarkn

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.