Ægir

Volume

Ægir - 01.06.1933, Page 5

Ægir - 01.06.1933, Page 5
ÆGIR 147 færslu, er þess sérstaklega að gæta, að hann brotni ekki eða óhreinkist, þegar honum er helt af börum eða fleygt í stakk. Stakkar eiga að vera hlaðnir þann- ig upp, að þeir séu alltaf stærri ummáls að ofan en neðan, svo segl eða aðrar umbúðir liggi laus frá hnökkum nema á stakkbrún. Breiðsla á sama fiski dag eft- ir dag er árangurslaus og skemmir fiskinn. Þegar fiskur er geymdur lengi, hvort heldur er metinn eða ómetinn, laus eða í pökkum, verður að búa vel um hann með tvöföldum strigamottum eða segl- um (undir seglum verður ávallt að hafa striga eða mottur til að verja slaga). Á- i'íðandi er að loftræsting sé góð í fislc- geymsluhúsum. Nauðsynlegt er að hreyfa fiskinn (umstakka) innan 3 vikna frá því hann er fluttur í hús, en þar á eftir niá líða lengra á milli þess, sem hann er hreyfður. Við umstaflanir þornar fisk- urinn og verður því að taka tillit til þess við þurk, hvað hann á að geymast lengi. Hættulegt er að taka heitan fisk úr breiðslu í hús eða stakk þó úti sé, því honum er hætt við að gulna. Rétt sýnist okkur að brýna það fyrir niönnum, að framvísa ekki til mats á Rarcelonamarkað fisld, sem er alls ekki hæfur fyrir þann markað. Þunnur flskur, blæljótur, sprunginn og allavega ófríður íiskur, á að tínast úr (af verkstjóra eða eiganda) og þurkast naeira fyrir aðra markaði, sem minna til- lit taka til vörugæða. Matið ætti líka að vanda svo, á fiski, seni á að fara til Barcelona, að móttak- endur geti treyst því og læri að treysta Því, þó er það þungamiðjan — þrátt fyrir allt mat og allar reglugerðir — að hver einasti maður, sem að fiskfram- leiðslu vinnur, vandi verk sitt eftir beztu 8etu, leiðbeini hver öðrum og þyggi leið- beiningar hvaðan sem þær koma, taki höndum saman og vinni að því að fá Spánverja til aö viðurkenna íslenzka fisk- inn beztan og þá getum við öruggir treyst því, að þeir vilji ekki án hans vera. Önnur íslenzk blöö eru beðin að birta þess- ar leiðbeiningar. Fundur Yfirfiskimatsmanna hefur staðið yfir í Reykjavík undanfar- andi. Samkv. 2. gr. laga nr. 46, 1931,ergert ráð fyrir að fundir þessir séu haldnir árlega, og að fiskifulltrúi íslands á Spáni og Ítalíu mæti á fundum þessum með yfirfiskimatsmönnunum. Síðasti fundur var haldinn 1931, enda hefur fiskifulltrúinn ekki verið á lerð hér heima síðan hann tók við starfi sínu það ár. Fundirnir voru haldnir á skrifstofu Fiskifélagsins og mætti forseti félagsins þar af hálfu rikisstjórnarinnar. Á fundum þessum voru tekin fyrir ýms mál, er snerta fiskimat og fiskverk- un yfirleitt, enda var öllum fundar- mönnum það fyllilega ljóst að við yrð- um að leggja fram okkar ítrustu krafla, ef við æltum að standast samkeppni þá, sem nú er um fiskverzlunina á heims- markaðinum, án þess að fara halloka í þeirri samkeppni, en við verðum að viðurkenna að á saltfisksverzluninni b}rgg- ist að mestu leyti, fjárhagslegt sjálfstæði okkar, þar sem um aðalútflutningsvör- una er að ræða. Þá var það fundarmönnum nokkurt á- hyggjuefni, að breyttar aðstöður siðustu ára, ásamt stöðugt auknum framleiðslu- hraða, virðast hafa gengið út yfir vöru- vöndunina, og var það því eitt af rann- sóknarefnum fundarins að athuga, hvort svo þyrfti að vera í raun og veru.

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.