Ægir

Árgangur

Ægir - 01.06.1933, Blaðsíða 19

Ægir - 01.06.1933, Blaðsíða 19
ÆGIR 161 þess er gætt, að vertíð er nú drjúgum lengri, Beztur mun aflinn hlutfallslega á Fiat- eyri. Þar hefur lengstum verið ágætisafli i vetur. Aftur stendur Suðureyri í Súg- andafirði mikið lægra nú en í fyrra. 1 Bolungavik er aflinn svipaður að tiltölu, en þó nokkru lægri en í fyrravetur. Hnífsdalur er hins vegar miklu lægri í vetur. I ísafjarðarkaupstað hefur að vísu komið drjúgum meiri afli á land nú, en bátar gengu þaðan talsvert fleiri í vetur en árið áður. Togaraaflinn er og um 250 smál. meiri nú en þá. Aflafengur einstakra báta er yfirleilt talsvert minni nú, enda afar stormasamt eins og kunn- ugt er. í febrúar og nokkuð fram í marz var þó uppgripaafli hér á miðunum. Togararnir á Patreksfirði hafa, eins og tölurnar sýna, aflað ágællega. Svipað má segja um línugufubátana fi'á Þingeyri, en einn þeirra var um tima tafinn frá veiðum vegna vélarbilunar. Hjá Bíldudalsskipunum er ekki um heild- arvetrarafla að ræða. Annað skipanna var og ekki búið til veiða fyr en í marz. Um aflaupphæð einstakra báta, er mér ekki til hlýtar kunnugt. En ég hef aflað mér upplýsinga um hæstu hluti fiskimannanna á vetrarvertíðinni í ver- stöðvunum hér nærlendis. Fiskverð var nú almennt S’/a—9 aur. kg. af óflöttum fiski og ósundurgreindum, og 15 — 16 aur. kg. af saltfiski vegnum úr bát. í byrjun apríl lækkaði blautfiskurinn í 7l/2 eyrir kg., og saltfiskurinn tilsvarandi. 1 fyrra vetur var blautfisksverðið alla vertíðina 7 aura kg., en hækkaði um */* eyrir á páskum. Á FJateyri er Páll Kristjánsson hæst- ur í vetur, hefur 916 kr. hlut. í fyrra var mestur hlutur þeirra einungis 560 krónur. Á Suðureyri hafa flestir eigi skipt enn þá, 2 hafa verkað fisk sinn ogskiptavíst eigi til fullnustu fyr en fiskurinn verður seldur fullverkaður. Áf vélbátnum Freyju hefur þó fiskurinu verið seldur úr salti, og er þar um 500 króna hlutur. Hæstur hlutur þar í fyrravetur var sagður 700 krónur. í Bolungavík er nú langhlutarhæstur Magnús Kristjánsson með 817 krónur. í fyrra var mestur hlutur þar sagður tæp- ar 700 kr. í Hnifsdal hefur Benedikt R. Stein- dórsson nú aðeins 660 kr. hlut, en í fyrra hafði sami maður 950 kr. hlut. 1 ísafjarðarkaupstað hefur afla flestra hinna stærri báta eigi verið skipt, og verður ekki gerl að fullu, fyr en fiskur þeirra hefur verið seldur fullverkaður til útflutnings. Vélbáturinn Percy, eigandi og skipstj. Jón Bárðarson, lagði mestan hluta afla síns á land syðra og seldi þar. Hann fékk 800 króna hlut. Af bátum þeim, sem seldu hér fisk sinn blautann, mun Ásberg Bjarnason á vélb. Hörpu, hlutarhæstur. Hann fékk 780 kr. hlut. Auk ísafjarðarbátanna hafa þrír stórir bátar frá Akureyri stundað héðan veið- ar lengstum í vetur, þeir Höskuldur, Val- ur og Sjöstjarnan, hinn síðasttaldi þó ekki nema stuttan tíma, en hinir hafa lagt upp og selt fisk sinn hér saltaðan til þessa. Ennfremur hafa þrír smærri bátar að norðan stundað héðan veiðar að staöaldri og selt fisk sinn blautan, þeir Kristinn, Kristján og Einar. Um hlut- arupphæð báta þessara er mér ókunnugt. Loks er Álftafjörður. Þar hefur Árni Guðmundsson mestan hlut, 800 krónur. 1 fyrravetur var talinn hlutarhæztur þar, Bjarni Hjaltason með rúmar 1000 krónur, en hann hefur saltað vetraiafla

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.