Ægir

Árgangur

Ægir - 01.11.1933, Blaðsíða 3

Ægir - 01.11.1933, Blaðsíða 3
ÆGIR MÁNAÐARRIT FISKIFÉLAGS ÍSLANDS 26. árg. Reykjavík. — Nóvember 1933. Nr. 11. Nafnabreytingar á skipum. 1 9. tölubl. Ægis, er grein með þess- ari fyrirsögn og er í henni, að vanda höfundar, leitt athygli lesenda Ægis að þvi, er betur mætti fara, en þar sem í greininni er bendingtil þeirra sem nafna- breytinga óska á skipum er getur vald- ið nokkurum misskilningi, borið saman við gildandi lög um þetta efni, þá vil ég verða við ósk ritstjórans og i sem fæstum orðum benda lesendum Ægis á það, hvaða skyldur hvíla á þeim sem skipseigendur eru, bæði hvað snertir nafnabreytingu á .skipi, og flutning á skráningu skips milli skráningarumdæma. Ég vil þá byrja á því að lýsa því, að samkvæmt núgildandi lögum, um skrán- ingu skipa, er skipum og bátum skift í þrjá flokka. Fyrst eru öll skip sem eru 30 rúmlestir og þar yfir, svo skip sem eru með þilfari stafna á milli, upp að 30 rúmlestum, og svo opnir bátar, hvort heldur þeir eru með vél eða vélarlausir. Ég skal svolýsa kröfum þeim, sem gerð- ar eru til þess, að skráning geti farið fram á skipinu, án þess þó að skýra frá skilyrðum þeim sem sett eru um heim- ilis- og ríkisfang hér á landi, til þess að geta verið eigandi skips, sem ætlað er að hafa íslenzkan fána. Fyrst ber að taka það fram, að öll skip eru mælingarskyld, undanskilin eru frá þessu ákvæði, opnir bátar sem ekki eru skoðunarskyldir samkv. lögum nr. 58, 14. júní 1929. Skjal það sem mælingamaðurinn gef- ur út, að mælingu lokinni, er mœlingar- sktrteini, ekki mælingarbréf, eins og mörg- um verður á að halda. Mælingarskírteinið á ávallt að fylgja skráningarskjölum skipsins, er geymd eru hjá hlutaðeigandi lögreglustjóra. Nú skal ég taka eitt dæmi fyrir hvern flokk, en geng út frá þvi, að skipið sé mælt, og á réttan hátt. 1. dæmi: N. N. kaupir skip sem er yfir 30 rúmlestir, frá ísafírði, en er sjálf- ur búsettur í Reykjavík. Nú má N. N. samkv. 2. málsgr, 6. gr. 1. nr. 37, 19. mai 1930, um skráningu skipa, hafa þetta skip skrásett áfram á Isafirði, vegna þess að það er yfir 30 rúmlestir, en þar sem eigandaskipti hef- ur orðið að skipinu, og eigandinn er bú- settur í öðru skráningarumdæmi, þá verður hann að senda lögreglustjóra á ísafirði sönnun fyrir þvi, að hann sé orðinn löglegur eigandi að því. N. N. verður því að senda lögreglu- stjóra á lsafirði þessi skjöl: 1. Beiðni um skráningu skipsins. 2. Eignarheimild sína. 3. Þjóðernis- og eignaryfirlýsingu. 4. Mælingarskírteini (sjé skipið ómælt). Éegar þessi skjöl eru komin í hendur lögreglustjóra og fullnægjandi talin, skrá- ir hann skipið, en sendir skipaskráning- arstofu ríkisins öll skjölin til endurskoð-

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.