Ægir

Árgangur

Ægir - 01.11.1933, Blaðsíða 17

Ægir - 01.11.1933, Blaðsíða 17
ÆGIR 267 setja lagaákvæði um löggildingu á mál- um við sölu á síld til söltunar, þar sem mál á saltaðri sild er ærið misjafnt hjá síldarkaupendum og misnotað af sum- um þeirra«. 20. Forseti las upp beiðni frá Tómasi Sigurðssyni hreppstjóra, um þóknun fyr- ir útirafljós, sem hann lætur loga á heim- ili sínu og hann telur sjófarendum mjög kær komið. Einnig las hann upp beiðni frá fiskideildinni í Súgandafirði um 200 kr. styrk til sundnámsskeiðs fyrir sjó- menn í sundlauginni í Súgandafirði. 21. Fjárhagsáœtlun fjórðungsins frá 1. nóv. 1933 til 31. okt. 1934. T e k j u r: Eftirstöðvar frá fyrra ári . . kr. 82 06 Tillag frá Fiskifél Islands — 1000 00 kr. 1082 06 G j ö 1 d: Til sundnámskeiðs sjómanna i Súgandafirði..............kr. 250 00 Fjórðungsþingskostnaður 1933 — 350 00 óviss útgjöld...............— 482 06 kr. 1082 06 Af óvissum útgjöldum greiðist allt að 200 kr. fyrir sendingu veðurfregna þeg- ar skilríki eru fyrir hendi um að starf þetta verði rækt. Ennfremur heimilast stjórninni að þóknazt Tómasi Sigurðs- syni á Sandeyri í eitt skifti fyrir öll, fyr- ir útirafljós, ef skilríki eru fyiir þvi, að það gagni sjófarendum um Isafjarðar- djúp. Sé þóknunin 40—50 kr. Styrkurtil sundnámskeiðs í Súgandafirði er bund- inn þvi skilyrði, að minnst 20 sjómenn njóti þar kennslu. 22. Fiskimat. Árna Gíslasyni yfirfiski- matsm. var boðið á fundinn, til þáttöku í umræðum um málið og var rætt á víð og dreif um fiskimatið og meðferð fiskjar í fjórðungnum. Engin ályktun var gerð í málinu. 23. Formaður fiskideildar ísafjarðar, Eiríkur Einarsson, bað um leyfi þings- ins, er var veitt í einu hljóði, um að mega ræða um nokkra agnúa á siglinga- lögunum, og ræddi einkum um réttleysi skipverja á bátum frá 6—12 lesta. Ósk- aði hann, að fulltrúar ræddu þetta mál, hver i sinni deild, og var síðan sam- þykkt að vísa málinu til deildanna. 24. Kosning fiskiþingsfulltrúa. Aðalfulltrúar kosnir Jón Jóhannsson með 8 atkv. og Finnur Jónsson með 5 atkvæðum. Varafulltrúar Arngrímur Fr. Bjarnason með 9 atkv. og Kristján Jóns- son með 6 atkv. 25. Kosning fjórdungssijórnar. Forseti var kosinn Arngrímur Fr. Bjarnason með 6 atkv., varaforseti Har- aldur Guðmundsson með hlutkesti. Rit- ari var kosinn Kristján Jónsson með 5 alkv. og vararitari Jón Kristjánsson með 4 atkvæðum. 26. Samþykkt að næsta fjórðungsþing verði haldið á ísafirði. Var fjórðungs- þinginu slitið mánudaginn 30. október kl. 10 síðdegis. ísafiröi 6. nóvember 1933. Arngr. Fr. Bjarnason. Kristján Jónsson, frá Garðsstöðum. Bátur ferst. Þann 18. okt. s. 1. reri formaður Krist- ján Jónsson frá Bjarnareyjum á trillu- hát sínum til fiskjar, í sæmilegu veðri. Með honum voru á bátnum 2 bræður hétu þeir Jón Guðmundsson frá Bjarn- areyjum og Einar Guðmundsson frá Á á Skarðsströnd. Báturinn kom ekki fram á þeim tíma

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.