Ægir

Árgangur

Ægir - 01.11.1933, Blaðsíða 21

Ægir - 01.11.1933, Blaðsíða 21
ÆGIR 271 innsiglingavíta og dagmarki við Kross- vík á Akranesi. 21. Út af erindi 18 skipstjóra á Akra- nesi út af vítanum á Suðurflös, þar sem þeir telja hann algerlega ófullnægjandi: 1. vegna oflítils ljósmagns. 2. vegna þess að hann liggur oflengi niðri. 3. vegna þess að hann er of lágur (sjávarhæð of lítil), óskar fjórðungs- þingið þess eindregið að vitamálastjóri taki til athugunar hér greind vankvæði og ráði bót á þeim sem allra fyrst, á þann hátt sem tiltækilegast reynist. 22. Fjórðungsþingið skorar á Alþingi og ríkisstjórnina að hefjast handa um byggingu nýrrar síldarbræðslu sem allra fyrst og telur, að hún sé að ýmsu leyli bezt sett á Skagaströnd. 23. Fjárhagsáætlun fjórðungsþ. Sunn- lendingafjórðungs. 1934. T e k j u r: 1 sjóði frá fyrra ári . . . kr. 2624 76 Tillög frá Fiskifélaginu . . — 1000 00 Samtals kr. 3624 76 Gjöld: Kostn. við fjórðungsþing 1933 kr. 150 00 Styrkir samkv. samþ. þessa fjórðungsþings .... — 200000 Til ferðakostnaðar vegna út- breiðslu ef með þarf . . — 300 00 Til ráðstöfunar næsta fj.þ. . — 1124 76 Öviss útgjöld.............— 50 00 Samtals kr. 3624 76 24. Kosning tveggja fulltrúa á Fiski- þing til næstu 4 ára og tveggja vara- manna. Aðalfulltrúar: Ólafur B. Björnsson, Akranesi. Bjarni Eggertsson, Eyrarbakka. Til vara: Kristmann Tómasson, Akranesi. Guðm. Jónsson, Eyrarbakka. 25. Næsti þingstaður var ákveðinn Eyrarbakki. Að lokum ávarpaði forsetinn fulltrú- ana. Úakkaði þeim góða samvinnu, árn- aði þeim heilla og sagðist vona að í störf- um þingsins fælust ýmsar góðar bend- ingar um málefni útvegsins, og, að það væri trú sín, að í þessum störfum ætti að geta falist hvöt til fiskideilda, um meira og gagnkvæmara starf. Þá var þinginu slitið. Ólafur B. Björnsson. Bjarni Eggertsson. Björgun. Niðurl. Eftir að ég var búinn að koma kaðl- inum til Guðlaugs, fór ég fram að há- seta og kyndaraldefunum til að reka á eftir, þeim sem þar voru, að komast á land. Sumir af mönnunum voru búnir að láta föt sín o. fl. í poka sína og komu þeim aftur eftir þilfarinu og var 2 eða 3 rennt niður af skipinu. Aðrir hugsuðu ekkert um að bjarga dóti sínu, sem þó hefði verið hægt. Þegar hér var komið, ruddust kynd- arar og hásetar með mesta flýtiaðborð- stokknum og renndu sér hver af öðrum á kaðlinum niður af skipinu og í sömu andránni komu stýrimenn og vélamenn einnig og höfðu sumir með sér eitthvað af plöggum sínum, en aðrir ekkert. Þetta tók nú alltsaman talsverðan tíma, svo að þegar allir skipsmenn voru komn- ir niður á klettinn og sumir á leið til lands, upp að vitanum, sagði Guðlaugur mér, að nú skyldi ég flýta mér, því farið væri að falla að, enda varð ég var við

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.