Ægir

Árgangur

Ægir - 01.11.1933, Blaðsíða 13

Ægir - 01.11.1933, Blaðsíða 13
ÆGIR 263 Kaupm. Jónatan Þorsteinsson. Hinn 1. nóvember s. ]., vildi það sorg- lega slys til inn í Sogum (fyrir innan Reykjavík), að Jónatan varð fyrirbifreið og dó af áverkum, er hann fékk, daginn eftir. Hann var viðurkenndur dugnaðar- maður og vinsæll mjög. Fundargerð Fjórðungsþings fiskideilda Vestfirðinga. Hinn 28. dag októbermánaðar 1933, var hið 12. fjórðungsþing fiskideilda Vest- firðinga sett í kaffihúsinu Hekla á ísa- firði, af forseta fjórðungsins Arngrími Fr. Bjarnasyni. Þessir fulltrúar voru mættir á þinginu : Fyrir fiskideild ísafjarðar, Haraldur Guðmundsson, skipstjóri og Jón Krist- jánsson, skipstjóri. Fyrir fiskideild Bolungavíkur, Helgi Einarsson, formaður. Fyrir fiskifélag Súgfirðinga, Friðbert Guðmundsson, hreppstjóri. Fyrir fiskideildina »Hvöt« á Flateyri, Finnur Guðmundsson, skipstjóri. Fyrir fiskideild Dýrafjarðar, Arngr. Fr. Bjarnason, ritstjóri. Fyrir fiskideildina Framtiðin á Bddu- dal, Jón Jóhannsson, skipstjóri. Fyrir fiskideildina Hvöt í Tálknafirði, Albert Guðmundsson, verzlunarm. Fyrir fiskideildina Víkingur, Kristján Jónsson, erindreki. Eftir að dagskrárnefnd hafði verið kosin, skiptu fulltrúar sér í eftirtaldar deildir: 1. fjárhagsnefnd, Friðbert Guðmunds- son, Arngr. Fr. Bjarnason og Kristján Jónsson. 2. allherjarnefnd, Jón Jóhannsson, Jón Kristjánsson og Helgi Einarsson. 3. vilamálanefnd, Haraldur Guðmunds- son, Finnur Guðmundsson og Albert Guðmundsson. Til fjárhagsnefndar var visað þessum málum: 1. veðurfregnir. 2. ný sildar- verksmiðja. 3. fisksölumál. 4. fjárhags- áætlun fjórðungsins. Til allsherjarnefndar var vísað þessum málum: 1. breyting á lögum við atvinnu við siglingar. 2. dragnótaveiðar. 3. norsku samningarnir. 4. rekstrarlán fyrir báta- útveginn. Til vitamálanefndar var visað þessum málum: 1. vitamál. 2. talstöðvar. 3.verð- lag á útgerðarvörum. 4. erindi séra Sig- urðar Gislasonar um minnismerki sjó- manna. 1 öðrum málum voru tillögur gerðar án nefnda. Til að endurskoða reikninga fjórðungsins voru kosnir: Albert Guð- mundsson og Friðbert Guðmundsson. Á þinginu voru þessi mál tekin fyrir og eftirfarandi tillögur samþykktar: 1. Björgunarskip Jyrir Vesifjörðum. (Tillaga frá Arngr. Fr. Bjarnasyni): »Fjórðungsþingið telur nauðsynlegt, sökum mikillar sjósóknar hér á Vest- fjörðum á hættumesta tima ársins, að björgunarskip, er stöðugt fylgi fiskiflot- anum, starfi fyrir Vestfjörðum. Til þess að ná þessu marki, sýnist fjórðungs- þinginu sjálfsagt að stefna að því, að Vestfirðingar eignist eigið björgunarskip og skorar því á fiskideildir fjórðungsins i samvinnu við slysavarnasveitir á þess- um slóðuin og sjómenn almennt, að hefja fjársöfnun í þessu skyni«. Samþ. í e. hlj. 2. Landlielgisgœzla. (Tillaga frá Jóni Jóhannssyni): »Fjórðungsþingið skorar á stjórn Fiski-

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.