Ægir - 01.11.1933, Side 14
264
ÆGIR
félags íslands, að beita sér fyrir því,
að sérstakur hraðskreiður bátur annist
strandgæzlu fyrir Vestfjörðum frá 1. júní
til októberloka. Frá þessum tíma og þar
til í lok marz sé eitt af varðskipum
ríkisins látið hafa á hendi, ásamt land-
helgisgæzlunni, björgunarstarfsemi og
eftirlit með veiðarfærum linubáta fyrir
ágengni togara, og hefjist sú gæzla nú í
haust«. Samþ. i e. hlj.
3. Véla-umboð Fiskifélagsins. (Tillaga
frá Kr. Jónssyni):
»Fjórðungsþingið er því eindregið fylgj-
andi, að Fiskifélag íslands taki að sér
umboð á mótorvélum handa fiskiskipum
landsmanna, og skorar á næsta Fiski-
þing, að hrinda þessu máli til fram-
kvæmda«.
4. Símalína að Suðureyri í Tálknafirði.
(Tillaga frá Albert Guðmundssyni):
»Fjórðungsþingið skorar fastlega á
Fiskifélag Islands, að hlutast til um, að
símalína verði lögð hið allra fyrsta að
Suðureyri í Tálknafirði«.
5. Innlend fœragerð. (Tillaga frá Arn-
grími Bjarnasyni):
»Fjórðungsþingið lýsir ánægju sinni
yfir því, að innlend veiðafæragerð er
komin á fót, og hvetur útgerðarmenn og
sjómenn að gera sitt til þess, að þessi
iðngrein geti blómgast«.
6. Vitamál. (Nefndartillaga):
»Fjórðungsþingið skorar á Fiskifélagið
að beita sér fyrir þvi: 1. Að fyrirhug-
aður viti á Álftamýri við Arnarfjörð verði
settur á Langanes-tá við sama fjörð. 2.
Að aukið verði Ijósmagn vitanna á Slétta-
nesi við Arnarfjörð og Keflavík hjá Súg-
andafirði. 3. Að væntanlegur viti á Ós-
hólum við ísafjarðardjúp verði reistur
á komandi sumri, og að ljósmagn hans
verði a. m. k. 18 sjómílur. 4. Að fyrir-
hugaður viti á FJateyri við Önundarfjörð
verði leifturviti. 5, Að sett verði mislitt
leiðarljós á öldubrjótinn i Bolungarvik
fyrir komandi vertíð«.
7. Breyting á lögum um atvinnu við
siglingar. (Nefndartillaga):
»Fjórðungsþingið skorar á Fiskiþingið,
að beina þvi til Alþingis, að eftirtaldar
breytingar verði gerðar á lögum um at-
vinnu við siglingar: 1. Að aukin verði
kennsla við smáskipa-próf, svo mikið,
sem þar um fróðir menn telja nauðsyn-
legt lil þess, að geta fært fiskiskip við
strendur íslands, og að aukin verði rétt-
indi þeirra manna þannig, að þeir fái
rétt til skipstjórnar og stýrimennsku á
fiskiskipum landsins án tillits (il stærðar
skipsins. 2. Að þeir, sem hafa verið
skipstjórar og stýrimenn á skipum allt
að 60 smálestum í minnst 5 ár áður en
breyting þessi öðlast gildi, og eigi hlekkst
á yfir þann tíma, hljóti sömu réttindi.
Varalillaga: Fáist ekki framangreindar
tillögur samþykktar, leggur Fjórðungs-
þingið til, að breytt verði orðunum
»brúttó« í »nettó« í lögum um atvinnu
við siglingar frá 1922, þar sem þau á-
kveða réttindi til skipstjórnar og stýri-
mennsku á smáskipum«.
8. Dragnótaveiðar. (Nefndartillaga):
»Fjórðungsþingið skorar á Fiskifélag
íslands, að mæla með því við atvinnu-
málaráðuneytið, að bönnuð verði drag-
nótaveiði í landhelgi á svæðinu frá Látra-
bjargi að Stigahlíð vestan ísafjarðardjúps,
þar sem reynzla undanfarinna ára hefur
sýnt, að dragnótaveiðar hafa spillt stór-
lega smábáta-afla á þessu svæði.
9. Norsku samningarnir. (Nefndar-
tillaga): Samþ. með 6 atkv. gegn 1.
»Fjórðungsþingið skorar fastlega á Al-
þingi og ríkisstjórn, að segja upp norsku
samningunum svo fljótt sem unnt er,
þareð það er álit flestra sjómanna og
útgerðarmanna, að samningar þessir séu
landi og lýð til stórtjóns, vegna þeirra