Ægir

Volume

Ægir - 01.11.1933, Page 24

Ægir - 01.11.1933, Page 24
274 ÆGIR nokkrir kassar fullir af dynamit, og hafði þeim verið staflað milli planka í fremra farmrúminu. Skýringin varð því sú, að um nóttina þegar skipið fór að hreyfast á klettinum þegar hækkaði i sjóinn, hefði orðið ægileg sprenging sem molað hafði skipið í hina mörgu parta og þeir kast- ast, sumir vegna sprengingarinnar, hinn ótrúlega langa veg. Þetta er tekið hér fram, til að sýna og sanna, að enginn af skipshöfninni hefði haldið lífi, hefði ég ekki drifið þá í land úr skipinu um kvöldið, enda flyktust nú skipstjóri, aðrir yfirmenn skipsins og hásetar og umföðmuðu mig og þökkuðu mér með tárvotum augum og hrærðum hjörtum fyrir dugnað minn um kvöldið að koma þeim úr skipinu, ogsögðu þeir allir einum rómi, að mér ættu þeir, næst góðum guði að þakka lífgjöfina. Ég varð hálffeiminn við þessi óvæntu velvildar- orð og atlot, en þakkaði í hljóði guði fyrir, hve giftusamlega mér hefði tekist að þessu sinni. Viðurkenningu fékk hvorki ég né félagar mínir, sem bezt gengu fram að bjarga mönnunum, en skipstjórinn Gundersen, sem seinna var með flóabát- inn Reykjavík, var minnugur þessa at- viks og lét mér i té vináttu sína í mörg ár og greiddi fyrir mér á ferðalögum með »Reykjavíkinni« á margan hátt, sem ekki verður minnst á hér. Einkennilegt þótti mér, að þegar ég las skömmu síðar í einu dagblaðinu frá Reykjavík um strandið, var þess getið að tveir efnuðustu bændurnir í Garðin- um hefðu sýnt frábæran dugnað við að bjarga mönnunum. En sannanlegt er að annar af þessum mönnum kom ekki á strandstaðinn um kvöldið sem skipið strandaði, fyr en ég ogfélagar mínir vor- um búnir að koma skipsmönnum upp fyrir miðja Flös, eða með öðrum orðum langt upp á þurt land, úr allri hættu, en hinn heiðursmaðurinn hafði ekki hug- mynd um að skipið var strandað, fyr en daginn eftir. Þetta sýnir, að þá, eins og nú, er sitt- hvað að vera fátækur eða rikur. Ekki hafði ég skap í mér til að leiðrétta fyr- nefnda missögn blaðsins, þó ýmsir skor- uðu á mig að gera það. Þá eins og fyr og síðar var ég ekkert gefinn fyrir að halda mér mikið á lofti og hef ég stund- um jafnvel slegið úr höndum mér, tæki- færum fyrir það, hvað ég hef verið lítið framgjarn. Um strand þetta skal nú ekki fjölyrða meir. Norsku saltfiskslögijt. í norska ríkisráðinu, var hinn 2. nóv. þ. á., gerð grein fyrir konunglegri stað- festiugu á reglugerð þeirri, sem aðal- fundur landssambands norskra saltfisks- útflytjenda hafði samþykkt. Einnig er svo ákveðið, að útflutningur á saltfiski frá Noregi, fyrst um sinn sé því skilyrði bundinn, að hver sá er flyt- ur saltfisk frá Noregi, verður að vera félagi í landssambandi norskra fiskút- flytjenda, eða hann hafi samþykki þess til útflutningsins. Rikisráð Iíobro benti á, að fresta skildi málinu þar til breyt- ingar á lögum næðu til þeirra, sem fisk- verkun hafa á hendi og þeirra starfyrði reglubundið. Þær reglur, sem settar eru í hinni kon- unglegu tilskipun, eru meðal annars þess- ar: Sérhvert firma, hvort heldur einstaks manns, samvinnufélag eða hlutafélag, sem rekur eða ætlar að reka fiskútflutning, getur gengið í landssambandið með eftir- farandi skilyrðum : 1. Firmað verður að reka saltfisksút-

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.