Ægir - 01.11.1933, Qupperneq 25
ÆGIR
275
flufning á eigin kostnað. (Það má þann-
ig ekki flytja út saltfisk fyrir annan, sem
milliliður eða umboðssali, eða sé um
samvinnufélag að ræða, má það ekki
flytja út saltfisk fyrir einstaka menn, þótt
í félaginu séu.
2. Forstjórinn eða framkvæmdarstjóri
fiskútflutningsdeildar verður að hafa sér-
þekkingu og verður áður að hafa starf-
að við fiskútflutning, að minnsta kosti í
fimm ár.
3. Nettóeign firma verður, að minnsta
kosti, að vera 10,000 kr.
4. Það verður að hafa skrifstofur og
geymsluhús í landinu (Noregi).
Firma, sem með þessum ákvæðum er
innskrifað í landssambandið, eða þá það
rekur saltfisksútflutning sem fiskveiðafé-
iag eða flskverkunarfélag, getur fengið
inntöku í sambandið, eða haldið áfram
að vera í því með þeim skilmálum, að
félagið eigi minnst 10,000 króna nettó-
eign, samkvæmt áðurnefndri kröfu eða
eigi minnst þá upphæð, í síðasta lagi,
hinn 1. ágúst 1934.
Stjórn landssambandsins sker úr hvort
umsækjendur verði teknir inn í það og
rannsakar, hvort meðlimir þess fullnægi
settum skilyrðum. Sé umsækjanda neit-
að um upptöku, getur hann skotið mál-
inu til verzlunarmálaráðuneytisins og
sker það úr.
Þau firmu, sem eru í landssamband-
inu eiga, hvert fyrir sig, að hafa fram-
kvæmdarstjóra og vera að öllu leyti ó-
háð hvert öðru innbyrðis, en vera þó í
sambandi við önnur firmu, sem flytja út
saltfisk. Eitt firma má þannig ekki vinna
við hliðina á öðru, sem hefur sömu hags-
muna að gæta. Undantekin frá þessu
eru firmu, sem standa í nánu sambandi
hvert við annað (dobbeltfirma), sem með
settum skilyrðum eru í landssamband-
inu eða sem útgerðarfélag eða fiskverk-
unarfélag hefur saltfisksútflutning sem
atvinnugrein. Slik flrmu verða að hafa
sameiginlegan umboðsmann áþeimstöð-
um þar sem vænta má, að fiskverð sé
lægst.
Landssambandið semur um sölu á fiski
innanlands við félög fiskkaupmanna og
útgerðarfélög, sem þess kunna að óska.
Verzlun með nýjan fisk og fisk úr salti
er frjáls.
Félagar í landssambandinu eru skuld-
bundnir að setja fiskimönnum engin
bindandi fyrirmæli.
Verðlagsnefnd.
Verðlagsnefnd tekur til starfa þegar
landssambandið með 2I& atkvæða ákveð-
ur að selja saltfisk á einum eða fleiri er-
lendum mörkuðum, undir lágmarks-
verði.
í verðlagsnefnd skulu vera þrír fé-
lagar frá Kristiansund, tveir frá Aale-
sund, einn frá Bergen og einn frá Bodö.
Auk þeirra eru i nefndinni fulltrúi fiski-
manna og fulltrúi fiskverkunarmanna og
varamenn fyrir alla. Annar þeirra síð-
ast töldu fulltrúa, skal vera búsettur í
Kristiansund, sömuleiðis varamaður hans.
Hinn fulltrúinn og varamaður hans skulu
búsettir í Aalesund. Annan fulltrúann og
varamann hans kjósa stjórnir fisksölu-
félaganna í Aalesund, Norðmæri, nyrðri
og syðri Þrændalögum og Kristiansund,
en hinn fulltrúann og varamann hans
kýs stjórn sölusambands fiskverkunar-
manna í Kristiansund.
Formaður verðlagsnefndar, á að vera
búsettur í Kristianssund og varaformað-
ur í Aalesund. Verðlagsnefnd ákveður
lágmarksverð á saltfiski eftir gefnum út-
reikningum stjórnar nefndarinnar, sem
landssambandið hefur samþykkt.
Samkv. uppástungu landssambandsins,
útnefnir dómsmálaráðuneytið trúnaðar-