Ægir - 01.12.1933, Síða 12
286
ÆGIR
toll í Póllandi, seinast bréf héðan, dags.
8. f. m., skal Fiskiíélagi Islands tjáð, að
pólska stjórnin hefur nú ákveðið að
leyfa innflutning á ótakmörkuðu magni
af islenzkri síld af framleiðslu þessa árs,
gegn lægsta innflutningstolli, sem er nú
10 zloti pr. tunnu. 9. des. 1933.
FundargerÖ
fjórðungsþings fiskideilda
Norðlendingafjórðungs 1933.
Þingið var sett á Akureyri þann 22.
nóvember, af forseta Guðmundi Péturs-
syni. Þingið byrjaði kl. 10 f. h. Fundur-
inn hafði verið löglega boðaður í dag-
blöðunum á Akureyri. Á þinginu voru
mættir þessir fulltrúar:
Fyrir Akureyrardeild, Steindór Hjaltalín.
— Grenivikurdeild, Þorst. Stefánsson.
— Raufarhafnardeild,Guðm. Pétursson.
— Fiateyjardeild, Jónas Jónasson.
— Hríseyjardeild, Páll Bergsson.
— Húsavíkurdeild, Guðm. Jónsson.
— ólafsfjarðardeild, Páll Halldórsson.
Þessir fulltrúar voru mætlir kl. 10.
Síðar kl. 5 mætti:
Fyrir Grímseyjardeild, Sigurjón Jónasson.
23. nóvbr. mættu eftirtaldir fulltrúar:
Fyrir Árskógsdeild, Sigurvin Edilonsson.
— Skagastr.deild, Jóhannes Jónasson.
— Dalvíkurdeild, Loftur Jónsson.
Alls 11 fulltrúar.
1. Þá var tilnefndur af forseta, ritari
þingsins Páll Bergsson, og til vara Jón-
as Jónasson.
2. Pá var kosin kjörbréfanefnd: Páll
Halldórsson, Steindór Hjaltalín og Þor-
steinn Stefánsson. Þessi nefnd lýsti því
yfir, að hin framkomnu kjörbréf væru
gild. Þingið samþykkti kosninguna.
3. Pá var kosin dagskrárnefnd: Jónas
Jónasson, Steindór Hjaltalín, Guðmund-
ur Pétursson. Eftir að nefnd þessi hafði
starfað, lagði hán fram svo hljóðandi
dagskrá:
1. Fisksölusambandið. 2. Síldarsamlag.
3. Síldarbræðsla á Norðurlandi. 4. Síld-
arverksmiðjan á Raufarhöfn. 5. Síldar-
mat. 6. Síldargeymsla. 7. Tollur á síld
og fiskafurðum. 8. Skýrsla erindrekans.
9. Norsku samningarnir. 10. Slysatrygg-
ingar. 11. Mat á þurum beinum. 12. Reikn-
ingar fjórðungssambandsins fyrir 1932.
13. Samgöngumál. 14. Skipaskoðunar-
menn í Ólafsfirði. 15. Fjárstyrkur. til
fjórðungssambandsins. 16. Fjárbeiðnir og
styrkveitingar. 17. Fulltrúafundur fyrir
norðlenzka útgerðarmenn og sjómenn.
18. Veðurathuganir. 19. Önnur mál er
upp kunna að vera borin. 20. Kosnir 2
fulltrúar á fiskiþing til næstu 4 ára og
2 varafulltrúar. 21. Kosin stjórn fyrir
fjórðungssambandið. 28. Ákveðinn næsti
samkomustaður fyrir fjórðungsþingið.
4. Þá var tekið fyrir Fisksölusamlagið
með tilliti til ýmislegra endurbóta á því
sem taldar eru nauðsynlegar. Málshefj-
andi var Páll Halldórsson. Eftir nokkr-
ar umræður var samþykkt að kjósa nefnd
í málið til að gera tillögur um það.
Þessir hlutu kosningu: Páll Halldórs-
son, Jónas Jónasson og Steind. Hjaltalín.
5. Síldarsölumál. Málshefjandi Steindór
Hj.altalín. Eftir nokkrar umræður var
kosin 3 manna nefnd í málið. Kosningu
hlutu Steindór Hjalfalín, Guðmundur
Pélursson og Þorsteinn Stefánsson.
6. Síldarverksmiðja á Norðurlandi.
Málshefjandi Guðm. Pétursson. í það mál
var kosin nefnd og hlutu kosningu: Guðm.
Pétursson, Páll Bergsson og Þorsteinn
Stefánsson.
7. Síldarverksmiðjan á Raufarhöfn.
Málshefjandi Guðmundur Pétursson. Eft*