Ægir - 01.05.1934, Qupperneq 3
ÆGIR
MÁNAÐARRIT FISKIFÉLAGS ÍSLANDS
27- árg.
Reykjavík. — Maí 1934.
Nr. 5.
Um hirðingu og verkun
fiskúrgangs (skreiö).
Reglur gefnar af Félagi íslenzkra
Fiskimjöls-framleiðenda.
Samkvæmt reynzlu þeirri, sem við
höfum fengið undanfarin ár um hirðingu
fiskhausa og hryggja til fiskimjölsvinnslu,
leyfum við okkur hér með að gefa yður
nokkrar uppiýsingar og ráðleggingar þar
að lútandi:
1. Kippun hausa: Það er áríðandi að
hausarnir séu kippaðir sem allra fyrst
eftir að fiskaðgerð er lokið, og hengdir
á þurkgrindur, eða breiddir á þurk-
völl. Þeir þola ekki að liggja í kös
nema fáa klukkutíma, ef hlýlt er í
veðri. Rotnunin byrjar strax, og við
rotnunina eyðileggst þýðingarmesta
efnið, sem á að vera í fiskimjöli:
eggjahvituefnið. Úr úldnum hausum
fæst aðeins verðlágt mjöl. Þeir eru
því ekki kaupandi fullu verði og
borga oft ekki vinnuna. Iíippur eiga
ekki að vera lengri en l*/2 m.
2. Hreinlæti: Allir sem með hausana
fara þurfa að gæta fyllsta hreinlætis
í meðferð þeirra. Skulu þeir aldrei
látnir á annað en hreint gólf, aðgerð-
arpall, reit eða fjöru. Það verður sem
sé að varast að óhreinka hausana svo,
að nauðsyn sé að þvo þá upp, því
að við þvottinn tapast hið fíngerða
slim, sem situr utan á þeim, en í
slími þessu er einmitt mikið af eggja-
hvítuefni, sem ekki má glatast. Varast
skal að láta hausana liggja í sjó, því
þá taka þeir í sig salt, þorna seint og
missa af sér allt slim.
3. Þurkgrindur: Reynslan hefur sann-
að, að bezta aðferðin við verkun
skreiðarinnar, er að hengja blautu
hausana strax á þurkgrindur (bjalla),
er þeir hafa verið kippaðir. Þegar
hausarnir eru orðnir ca. 2/s þurrir er
bezt að taka þá af grindunum og
»garða« þá, þ. e. hlaða þeim í mjóa
hlaða eða garða 1 lil 1J/4 nietra á
þykkt og 5—10 metra á lengd og skal
hlaða á þá ris. Við þetta sparast mikið
pláss. Garðar liggi þvers við stormátt.
Ef rýma þarf til á þurkgrindunum
áður en 2/a þurki er náð, má, þegar
hausarnir eru orðnir hálf-þurrir »ása«
þá, þ. e. leggja kippurnar í garða
ofan á ása, sem eru nokkuð frá jörðu
í annan eða báða enda og þorna þeir
þá fljótt. Með þvi að þurka þannig
sparast J/4—J/2 tonn af hráefni í hvert
þurt tonn, á móts við það, að verkað
sé á jörð. Er því auðsætt, að þurkgrind-
urnar borga sig fljótt í betri útkomu.
4. Þurkun hausa á jörð: Ef hausarnir
eru breiddir út, verður vandlega að
gæta þess að hvorki mold eða sandur
komist í þá og ekki má heldur nota
þurkvöll, sem liggur svo lágt, að vatn
geti staðið á þeim. Ennfremur verð-