Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.05.1934, Qupperneq 9

Ægir - 01.05.1934, Qupperneq 9
ÆGIR 115 Eg tek það fram, að grein þessa ber ekki að skoða sem svargrein hr. kennara Jens Hermannssonar, sem birtist um leið og þessi á öðrum stað hér í blaðinu, enda þótt að henni kunni að verða vikið, og þá einnig annari grein, eftir sama höfund, i 2. tölubl. Ægis þ. á. Mér tekur það nærri, að einnig þeir menn, sem ég hef alið aldur með á fyrri árum, og ber virðingu fyrir vegna dugnaðar og framsýni, skuli nú einnig bera vopn á dragnótina, í stað þess að syngja hana velkomna »yfir Islands sæ«. ísland er og hefur allt af verið fiski- veiðaland. »Upp úr risin Ægi bláum, ertu kæra fósturgrund«, á sér dýpri og auðugri merkingu en það eitt, hvernig ísland varð til, jarðfræðilega séð. íslenzka þjóðin, frelsi hennar og sjálfstæði, heilsa hennar og líf, er í orðsins fyllstu merk- ingu »upp úr risið Ægi bláum«. Hvað sem bezt verður sagt um kjötið, mjólk- ina og grasið græna, þá mun það þó gilda framvegis eins og hingað til, að saga fiskveiðanna er saga vor. Hafið, sem verndað hefur sjálfstæði og frelsi hundrað þúsund mannsbarna, girt landið grænu vigi til norðurs, suðurs, austurs og vestur, hefur verið forðabúr þjóðar- innar, frá því að Ingólfur nam hér land til þessarar stundar. Eins og ýmist hrynj- andi eða hækkandi tónar í örlagaþrung- inni tónsmíð, hefur atorkan og afkoman á sjónum bergmálað í ýmist hrörnandi eða batnandi hag þjóðarinnar. Og svo er þetta enn í dag. Til þess að sannfær- ast um það, þurfum við aðeins að líta í einhverja af þeim mörgu opinberu skýrsl- um, sem gefnar eru út, og um hag lands- ins til fjalla. Desember-hefti Ægis 1933 liggur fyrir framan mig á borðinu. Þar eru tölur, sem sýna verðmæti allra þeirra íslenzku afurða, sem fluttar voru út í jan,—nóv. 1933. Sjávarafurðirnar nema: 39.878.420 kr. eða 91.75°/°, en landa-afurðirnar: 3.290.520 — — 8.25 °/o. Bregtingar. Nú eru að verða breyt- ingar í heiminum, sem gera það vafa- samt, hvort Island megi njóta framfara vegna athafna þjóðarinnar á sjónum, ef allt er látið sækja í sama horf og hingað til, og engu breytt til batnaðar. Það er kunnugra en frá þurfi að segja, hvernig þjóðirnar keppast við að byggja um sig rammeflda múra, tolla, banna, hafta og skilyrða, til þess að enginn óverðugur, enginn, sem ekki hefur auðsæ hlunnindi að bjóða, skuli þrengja markaðinn með afurðum sínum, og ganga með fé i vös- um út úr landinu. Þetta kemur jafnvel harðar niður á okkur Islendingum en nokkrum öðrum, vegna þess, að tak- mörk þau, sem sett eru innflutningi okk- ar til annara landa, eru miðuð við magn en ekki við verðmœti. Þvi svo er mál með vexti, að engin þjóð i heiminum framleiðir og selur þvílík ósköp af fiski eins og einmitt við, miðað við mann- fjölda, en þvi miður af verðlitlum fiski. Nú er við því búið, að magn það, sem við getum sett á markaðinn verði að minnka að mun, vegna þeirra hafta, sem okkur eru bundin, og því er það lifs- skilyrði, að þeim mun meira fáist fyrir hvert kiló, sem út er flutt. Eins og nú standa sakir er lif okkar undir því komið, að við getum selt liálfa fjórðu smálest af fiski á hverju ári, að meðaltali á hvert einasta mannsbarn á landinu, allir sjá hvað völtum fæti slíkt stendur til fram- búðar, og þó er eins og bimin og jörð taki saman höndum gegn því, að nokkru megi þoka til umbóta. Við íslendingar erum í flestu tilliti smælingjar, í samanburði við aðrar þjóðir,

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.