Ægir - 01.05.1934, Qupperneq 15
ÆGIR
121
Skýrsla nr. 1, 1934
til Fiskifélags Islands frá erindrekan
um í Norðlendingafjórðungi.
Fyrsti ársfjórðungurinn hefur verið
viðburðalítill, eins og vant er, að þvi er
sjávarútgerðina snertir hér norðanlands.
— Veður hafa verið mjög óstillt og um-
hleypingasöm og gæftir þess vegna afar
stopular, enda kom og enginn fiskur hér
á land frá ársbyrjun og til miðs Marz-
mánaðar. Allur afli í salt hér í fjórð-
ungnum nam 31. Marz 118,720 kg. miðað
við verkaðan fisk. Er þessi afli eingöngu
frá verstöðvunum við Eyjafjörð og Siglu-
firði. Síðan hefur dregið nokkuð úr
þessum aflareitingi, enda lengst af verið
fremur óstillt.
Útlit er fyrir, að bátaútgerðin verði
ekki minni nú en síðasta ár, einkum
fjölgar trillubátum nokkuð, en tala stærri
bátanna mun að mestu standa í stað.
Mér er ekki kunnugt um, að neinir
slíkir bátar hafi verið byggðir í vetur,
en einn vélbátur hefur verið keyptur til
Siglufjarðar frá Danmörku, og er hann
þegar kominn hingað. — Báturinn heitir
»Brynja<f, er byggður úr eik og sagður
að vera 17,5 smálestir með 50—60 ha.
Tuxhamvél. Eigendur eru Björn Pálsson,
útgerðarmaður o. fl. — Er báturinn talinn
að vera hinn myndarlegasli eftir stærð.
Smásildar-reitingur hefur verið hér inni
á Eyjafirði allt af öðru hvoru í vetur og
nokkur fiskafli annað veifið, er selst
hefur til matar jafnóðum.
Almennur útgerðarmanna-fundur var
haldinn hér á Akureyri í Febrúar s. 1.,
samkvæmt almennum óskum manna i
veiðistöðvunum. Fundinn sóttu kosnir
fulltrúar frá flestum veiðistöðvunum og
voru þar rædd ýms mál, er útgerðina
varða. — Þessir fundir þykja hafa borið
góðan árangur að undanförnu og vænt-
anlega gerir þessi fundur einnig nokkurt
gagn. Annars hefur Fiskifélaginu verið
send útskrift af fundargerðinni og get ég
því sleppt að fara nánar út í það hér.
hygg óhætt sé að fullyrða, að
mikill meiri hluti smærri og stærri út-
gerðarmanna norðanlands sé ráðnir í að
selja fiskframleiðslu sína fyrir milligöngu
Fisksölusamlagsins, og er það vel farið.
En þetta er ekki nóg, enginn fiskur ætti
að vera seldur utan Samlagsins. Að því
marki verður að keppa.
Menn eru talsvert kvíðafullir út af
þeim hömlum, er Spánverjar o. fl. þjóðir
hafa lagt á fiskinnflutning til þeirra, en
vona hinsvegar, að sendimönnum ríkis-
ins takist að fá einhverja bót ráðna á
þessum ákvörðunum, að því er Island
snertir, einkum á Spáni. Heppnist þetta
ekki, virðist mér útlitið vera skuggalegra
nú, en nokkurn tíma áður, meðan við
erum tilneyddir að flytja mest af fiski
okkar út í söltuðu ásigkomulagi.
Slysavarnamálunum miðar hér áfram
jafnt og þétt, þótt áhuginn sé ekki alls-
staðar jafn sterkur. — Enginn efi er á
því, að almennur áhugi er vaknaður
fyrir því, að koma hér upp björgunar-
skútu, er fylgi veiðiflotanum eftir á miðin.
— Hafa ólafsfirðingar t. d. ákveðið, að
leggja allan afla úr róðri eins ákveðins
dags í sumar til fyrirtækisins. Sýna þeir
með þessu, enn sem fyrri, áhuga sinn
og framtakssemi um sjávarúlvegsmálin.
Pá er að komast skriður á hafnabóta-
mál Dalvikinga. Er þar nýlega kosin
hafnarnefnd, er starfar að undirbúningi
og framkvæmdum við öldubrjóts bygg-
ingu á Brimnesstöng við Dalvík. — Fjár-
söfnun mun þegar hafin og loforðasöfnun
um ókeypis framlög í vinnu við verkið,
er það verður hafið. Auk þess hafa út-