Ægir

Árgangur

Ægir - 01.06.1934, Blaðsíða 3

Ægir - 01.06.1934, Blaðsíða 3
ÆGIR MÁNAÐARRIT FISKIFÉLAGS ISLANDS 27. arg. Reykjavik. — Júní 1934. Nr. 6. Hiö fyrsta próf í seglagerð hér á landi. Það verður haldið í Reykjavik innan skamms. Er það í fyrsta sinn, að haldið er próf í þeirri iðngrein hér á landi og virðisl alleinkennilegt þegar þess er gælt, að um 70 ár hafa segl verið saumuð hér, ekki einungis á fiskiskip, heldur einnig á hafskip, auk þess sem bátasegl- in voru búin til á heimilum fiskimanna og var heimilisiðnaður, sem karlar og konur unnu að. Fyrir rúmum 50 árum fór maður ut- an til að læra seglagerð; var það Run- úlfur ólafsson frá Mýrarhúsum. Er heim kom kenndi hannmönnum. Nokkru síð- si' nam Ágúst Fiygenring seglagerð í Mandal í Noregi. Hann kenndi einnig, bæði hér syðra og á ísafirði. Einn af nemendum Á. Flygenrings er Finnur Gíslason i Hafnarfirði, sem saum- að hefur segl um 40 ára skeið. Hann túk ekki próf, en mun hafa kenntmörg- um, sem heldur ekkert próf hafa. Elztu seglgerðarmenn í Reykjavik er þeir skip- stjórar Ellert Schram, Jóhannes Hjartar- s°n, Finnur Finnsson, Jóhannes Bjarna- s°n, sem er hinn eini, sem próf hefur tekið í þessari iðn. Það tók hann í Dan- mörku. Fleiri mætti nefna, en hér látið nægja geta þess, að meðan seglskipaútgerð Var hér mest, lærðu flestir skipstjórarn- ir að sauma segl og stunduðu þá at- vinnu á vetrum. Seglagerð er erfið og afar vandasöm vinna, og margt var í húfi á seglskipun- um, væri frágangur ekki hinn bezti og traustasti, því ekki var annað en segl til framdráttar og svo gat staðið á, að bil- uðu þau, var skip og líf skipshafnar í veði, en enginn var meistarinn og sveins- bréf hafa ekki sést til þessa. Þegar okk- ur langar til að eignast frakka, förum við til skraddarameistara, sem lætur sinn útlærða svein taka mál, ef hann ekki gerir það sjálfur, en þurfum við að kaupa nýtt segl á skútu, þá höfum við til þessa ekki náð í meistara og enginn sveinn var til, en afgreiðsla var góð þrátt fyrir það, engu síður en hjá skraddarameist- aranum. Segl voru vel saumuð og fóru skútunni eins vel og frakkarnir okkur. Að hinir þekklu, íslenzku seglgerða- menn, standi erlendum fyllilega á sporði, sanna ummæli danskra skipstjóra, sem hér voru á skipum sínum árin 1915— 1917. Margir þeirra misstu segl, sumir siglur og reiða og fengu allt selt í lag hér þannig, að skipstjórarnir gáfu verk- inu þann vitnisburð, að ekki hefði það verið betur unnið í útlöndum. Svo langt er nú komið, að meistarar í seglagerð hafa verið útnefndir hér í bæ og eru þeir þessir: Jóhannes Bjarnason, Jón Guðmundsson, Sigurður Gunnlaugsson. Guðjón ólafsson kaupm., er formaður

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.