Ægir - 01.06.1934, Page 3
ÆGIR
MÁNAÐARRIT FISKIFÉLAGS ISLANDS
27.
arg.
Reykjavik. — Júní 1934.
Nr. 6.
Hiö fyrsta próf
í seglagerð hér á landi.
Það verður haldið í Reykjavik innan
skamms. Er það í fyrsta sinn, að haldið
er próf í þeirri iðngrein hér á landi og
virðisl alleinkennilegt þegar þess er gælt,
að um 70 ár hafa segl verið saumuð
hér, ekki einungis á fiskiskip, heldur
einnig á hafskip, auk þess sem bátasegl-
in voru búin til á heimilum fiskimanna
og var heimilisiðnaður, sem karlar og
konur unnu að.
Fyrir rúmum 50 árum fór maður ut-
an til að læra seglagerð; var það Run-
úlfur ólafsson frá Mýrarhúsum. Er heim
kom kenndi hannmönnum. Nokkru síð-
si' nam Ágúst Fiygenring seglagerð í
Mandal í Noregi. Hann kenndi einnig,
bæði hér syðra og á ísafirði.
Einn af nemendum Á. Flygenrings er
Finnur Gíslason i Hafnarfirði, sem saum-
að hefur segl um 40 ára skeið. Hann
túk ekki próf, en mun hafa kenntmörg-
um, sem heldur ekkert próf hafa. Elztu
seglgerðarmenn í Reykjavik er þeir skip-
stjórar Ellert Schram, Jóhannes Hjartar-
s°n, Finnur Finnsson, Jóhannes Bjarna-
s°n, sem er hinn eini, sem próf hefur
tekið í þessari iðn. Það tók hann í Dan-
mörku.
Fleiri mætti nefna, en hér látið nægja
geta þess, að meðan seglskipaútgerð
Var hér mest, lærðu flestir skipstjórarn-
ir að sauma segl og stunduðu þá at-
vinnu á vetrum.
Seglagerð er erfið og afar vandasöm
vinna, og margt var í húfi á seglskipun-
um, væri frágangur ekki hinn bezti og
traustasti, því ekki var annað en segl til
framdráttar og svo gat staðið á, að bil-
uðu þau, var skip og líf skipshafnar í
veði, en enginn var meistarinn og sveins-
bréf hafa ekki sést til þessa. Þegar okk-
ur langar til að eignast frakka, förum
við til skraddarameistara, sem lætur sinn
útlærða svein taka mál, ef hann ekki
gerir það sjálfur, en þurfum við að kaupa
nýtt segl á skútu, þá höfum við til þessa
ekki náð í meistara og enginn sveinn
var til, en afgreiðsla var góð þrátt fyrir
það, engu síður en hjá skraddarameist-
aranum. Segl voru vel saumuð og fóru
skútunni eins vel og frakkarnir okkur.
Að hinir þekklu, íslenzku seglgerða-
menn, standi erlendum fyllilega á sporði,
sanna ummæli danskra skipstjóra, sem
hér voru á skipum sínum árin 1915—
1917. Margir þeirra misstu segl, sumir
siglur og reiða og fengu allt selt í lag
hér þannig, að skipstjórarnir gáfu verk-
inu þann vitnisburð, að ekki hefði það
verið betur unnið í útlöndum.
Svo langt er nú komið, að meistarar í
seglagerð hafa verið útnefndir hér í bæ
og eru þeir þessir:
Jóhannes Bjarnason,
Jón Guðmundsson,
Sigurður Gunnlaugsson.
Guðjón ólafsson kaupm., er formaður