Ægir - 01.06.1934, Qupperneq 4
130
ÆGIR
félags segla og reiðagerðarmanna í Rvík.
Undir umsjón þeirra fer fram próf í
seglagerð á næstunni og er það í fyrsta
sinn sem prófað er hér í þeirri grein og
gefið út sveinsbréf.
Orðið reiðagerðamaður er afar stirt og
ljótt orð og nær alls ekki þvi hugtaki,
sem ætlast er til. Á dönsku er sá nefnd-
ur Rigger, sem útbýr reiða á skip, kem-
ur honum fyrir eins og hann á að vera
á því og fl. og er það sérstök iðngrein
og vandasöm. Englendingar segja einnig
Rigger og aldrei annað. Hvers vegna get-
um við þá ekki nefnt þá menn riggara,
sem hafa það verk með höndum að láta
siglur, reiða og kaðla í skipin. Það er
stutt og laggott orð og ekki verra að
nota það, en t. d. orðin bll, bíó, hótel
og mörg fleiri orð, sem notuð eru dag-
legu tali, vegna þess að annaðhvort eru
enn ekki mynduð ný orð yfir þetta, eða
þá nýyrði eru svo stirð og afkáraleg að
fólk vill ekki nota þau.
Hvoit sem orðið riggari verður notuð
eða ekki, þá væri æskilegt, að orðið
reiðagerðarmaður, væri á einhvern
hátt endurbætt, því það er áreiðanlega
víst, að »Rigger« er ekki ætlað að vinna
hin mörgu verk og mismunandi, sem
orðið reiðagerð felur í sér, en ætlast
er til að hann vinni margt, sem orðið
alls ekki bendir til.
Prófvotlorð skipstj. Jóhannesar Rjarna-
sonar að Bjargi í Reykjavík — fyrir
teikningar, snið og saum á seglum, er
úlgefið af seglgerðarmeistara August 01-
sen Nyhavn 41 og dagsett i Kaupmhöfn
4. marz 1903. Pað mun hið eina vottorð
um próf í þessarí vandasömu iðn, sem
til er hér á landi.
Reykjavík 14. júní 1934.
Svbj. Egilson.
Prófessor Hardy
og rannsóknir hans fyrir
síldveiöarnar.
Einn af þeim mörgu, sem inna af
hendi vísindalegt starf fyrir sjávarútveg-
inn í Evrópu, er prófessor Hardy í Hull.
Hann er prófessor í dýrafræði við há-
skólann í Hull, en á nokkuð annan hátt
en venja er til á Norðurlöndum, því að
mikill hluti starfs hans er i því fólginn
að fræða fjöldann um hagræna dýra-
fræði. Verksvið hans nær því langt út
fyrir hóp háskólastúdenta, enda þótt
hann sé embættismaður enska skóla-
heimsins. Auk kennslu og annara fræðslu-
starfa, fæst prófessorinn mjög mikið við
sjávarrannsóknir, og hefur til þess þrjá
vísindalega aðstoðarmenn. Einn þeirra
dr. Henderson, kom hingað snöggvast í
fyrra sumar.
Prófessor Hardy hefur fundið upp
ýms áhöld til svifrannsókna, en þær eru
það fag, sem hann helgar krafta sína og
sinna starfsmanna, fyrir honum snýst
allt um það að kenna fiskimönnum að
finna sild í Norðursjónum við strendur
Bretlandseyja. Hefur hann fundið upp eitt
mikið áhald, sem hann kallar »Plankton
Recorder«, og hefur undanfarið verið að
gera tilranir með það. Áhald þetta er
líkast neðansjávarbát, og er ætlað rann-
sóknaskipum. Það hefur þann kost að
það má draga á eftir skipum á fullri
ferð, en það sem er ennþá betra: það
sýnir hversu mikil áta er á hverjum stað
í sjónum, þar sem það hefur verið dreg-
ið, þó að það sé dregið i striklotu yfir
langt svæði. Væi i það t.d. hengt aftan í skip
sem færi með fullum hraða frá Horni
að Langanesi, og aldrei tekið inn, fyr en
leiðin væri á enda lögð, myndi það þó