Ægir - 01.06.1934, Side 6
132
ÆGIR
hina beztu trú á góðum árangri, eftir
þeirri reynzlu sem þegar er fengin. Pró-
fessor Hardy leggur ekki áhöldin til,
heldur selur þau, en fær svo skýrslur
hjá skipunum yfir hvernig útkoman af
notkun áhaldanna sé, svo að sú reyzla,
sem safnast, geti sem fyrst komið sem
flestum að gagni. Prófessorinn hefur lán-
að mér eitt af þessum áhöldum til reynslu,
það var notað talsvert síðastliðið sumar
og mun nú verða notað aftur í sumar.
Þykir mér líklegt að það gæti verið mikill
ávinningur að nota það hér við land, og
myndi ég með áhuga fylgja þvi, ef ein-
hverjir keyptu áhöld þessi á skip sín.og
notuðu þau dyggilega, væri mér ljúft að
gefa allar upplýsingar um það efni. Fyr-
ir þá sem vildu panta þau, endurtek ég
nafnið, áhaldið heitir: »Plankton Indica-
tor« og fæst hjá: Messrs. V. D. Limited,
54 Victoria Street, London, S. W. 1.
Pað kostar 10 Guineas, á staðnum með
öllu, sem til þess þarf, og færi þá líklega
upp í ca. 250 kr. hingað komið.
Árni Friðriksson.
Frá utanríkismálaráðuneytinu.
21/c 1934. í framhaldi af bréfi ráðu-
neytisins, dags. 16. apríl s. 1., varðandi
upprunamerki á vörum, sem fluttar eru
til Bandaríkja Ameríku, skal Fiskifélagi
íslands að gefnu tilefni, bent á, að heiti
upprunalandsins verður að vera stafað á
enskri tungu og verður því, að því er
íslenzkar afurðir snertir, landsheitið
»Iceland« að vera sett á umbúðir
varanna.
Um mánaðamótin júní—júlí,
er verið að búa skipin frá Reykjavík
á síldveiðar. Munu þau halda norður
upp úr mánaðamótum. Frá Hafnarfirði
eru þegar nokkur farin.
Landskjálftar.
Skammt er nú milli náttúruviðburða
hér á landi. Að því er menn vita bezt,
byrjaði hið stórkostlega gos í Vatnajökli
föstudag hinn 30. marz s. 1. og 2. júní
laust eftir hádegi, kom hinn fyrsti jarð-
skjálftakippur af mörgum og lagði þorp-
ið Dalvík í rústir á svipstundu. Þar og
í Svarfaðardal varð tjónið mest, en viða
urðu stórkosllegar skemmdir áhúsum og
eignum manna, t. d. í Hrísey.
Hinn fyrsti kippur mun hafa fundist
nálega um allt land, en þó mest kring-
um Eyjafjörð.
Veðurstofustjóri Þorkell Þorkellsson,
athugaði þegar jarðskjálftamælana og
eftir því sem þeir bentu á, áttu upptök
landskjálflanna að vera í stefnu NNA
frá Reykjavík í 300 kilómetra fjarlægð,
og hefðu þá upptökin átt að vera fyrir
norðan land, nálægt Grímsey, en allar
þær fregnir sem bárust að norðan, benda
til, að þau séu vestanmegin Eyjafjarðar,
skammt frá Svarfaðardal.
Á rúmri mínútu urðu um 200 manns
húsnæðislausir í Dalvík. Eignatjón er
menn urðu fyrir á jarðskjálftasvæðinu,
mun híð mesta, er sögur fara af hér á
landi, því allt það er eyðilagðist er miklu
dýrara, bæði byggingar og munir, en
áður var, er jarðskjálftar lögðu torfbæi
og útihús í rústir, sem voru miklu ó-
dýrari mannvirki en nú. Þegar jarð-
skjálftinn mikli varð í Ölvesi, síðari hluta
sumars 1896, hefði eignatjón sýnt sig
bezt, hefði þar verið þéttbýli og hús úr
steinsteypu.
Frétlir þær, sem hingað bárust, vikuna
eftir 2. júni, skýra svo frá:
Af 35 sleinhúsum, sem voru í Dalvík,
er talið að aðeins 4 — 5 séu lítið sem
ekki skemmd, en víst að 7 þeirra séu