Ægir - 01.06.1934, Síða 12
138
ÆGIR
Skýrsla.
Sveinbjörn Jónsson, byggingameistari,
sem falið hefur verið að annast um at-
hugun á ástandi íbúðarhúsa og annara
mannvirkja á jarðskjálftasvæðinu, hefur
látið í té eftirfarandi útdrátt:
Torfbæir Steinhús Timburhús g ol 0Q o pr C' o » n cr n Ekki íbúð- arhæf Húsvilt fólk
Torfbæir . . . 17 6 9 8 55
Steinhús. . . . 33 6 11 22 169
Timburhús . . 24 21 3 23
Alls 17 33 24 12 41 33 217
Hér við bætist:
1 frystihús mikið skemmt og ónothæft.
1 sláturhús mikíð skemmt og ónothæft.
1 samkomuhús mikið skemmt og ó-
nothæft.
1 skólahús mjög lítið skemmt, og þar
að auki mörg geymsluhús og penings-
hús meira og minna skemmd.
1 Hrisey eru 53 hús meira og minna
skemmd, og 5 steinhús ónothæf sem bú-
staðir, nema með meiriháttar aðgerðum.
12 fjölskyldur eru húsviltar eða sam-
tals 64 menn.
Á Árskógsströnd og fram i Svarfaðar-
dal verður ástandið athugað í dag, eru
þar einnig töluverðar skemmdir.
Akureyri, 7. júní 1934.
Sveinbjörn Jónsson.
Tekið eftir »Degi«.
Stavisky málið.
Amerískt blað hefur gefið skýrslu um
mannamissi Frakklands síðan Stavisky
réði sér bana í vetur.
17 borgarar hafa verið drepnir og 627
særðir, 1 lögregluþjónn drepinn og marg-
ir særðir í blóðugum bardaga í Paris, 11
verkamenn drepnir, 1 dómari og 1 mála-
færslumaður fyrirfóru sér.
Aðrar afleiðingar: 1 allsherjar verk-
fall, 2 ráðuneyti farin frá, 4 lögreglu-
stjórum vikið úr embætli, 3 málafærslu-
menn orðið brjálaðir, 24 menn heftir í
varðhald og meðal þeirra voru 2 þing-
menn.
Skipakaup.
Skip sem keypt hafa verið nýlega og
flutt inn í Norðlendingafjórðung eru eft-
irfarandi.
1. Mótorbátur »Hannes Hafstein«. Smið-
aður í F'rederikssund úr eik. Vél:
Tuxham, 42—48 hö. Söluverð 23,000
krónur. Merktur E. A. 475. Eigandi:
Egill Júlíusson, Dalvik. Báturinn
kom i april.
2. Eimskipið »Ólafur«. Smiðaður i
Þrándheimi árið 1902. Stækkaðurog
umhyggður 1930. Efni, járn. Stærð
hrúttó 75,8 tons, netto 27 tons. Véla-
afl 110 hö. Hraði um 8 sjómilur.
Merktur E. A. 210. Eigandi Jón Guð-
mundsson byggingameistari á Akur-
eyri. Kom um mánaðamót april—
mai.
3. Eimskip »Rúna«, smíðað i Aalesund
1913. Efni járn. Brúttóstærð 81 tonn,
nettó 27 tons. Vélarafl 120 hö. Hraði
um 9 milur. Eigandi Hjörtur Lárus-
son skipstjóri á Akureyri. Skipið er
merkt E. A. 380.
4. Til Siglufjarðar kom vélb. »Brynjar«.
Efni eik, smfðaður í Danmörku, 17,5
tons að stærð og hefur 50—60 ha.