Ægir - 01.06.1934, Qupperneq 13
ÆGIR
139
Tuxhamvél. Eigendur eru útgerðar-
maður Björn Pálsson og fleiri.
5. Til Sauðárkróks er einnig nýkomið,
eimskip, línuveiðari eða síldveiða-
skip keypt frá Belgíu. Það heitir
»Skagfirðingur«, smíðaður 1923.
Stærð: 98 brúttótons. Eigendur h. f.
»Tindastóll«á Sauðárkrók.
Akranesbrvggjan.
Undanfarin sumur hefur verið unnið
að hafnarbryggju á Akranesi og hafa
skip lagst við hana, þegar veður hefur
leyft og vel staðið á sjó, en fullsnemma
var byrjað á því, eins og víðar vill verða
þar sem verið er að vinna að slíkum
mannvirkjum. Gufuskipið »Stat« lagðist
við hana og átti þar að losa kolafarm
á land, en meðan skipið lá þar, hvessti
af landsuðri, svo það náði sér ekki út.
Skipið brotnaði og sökk, náðist þó á
flot, en varð algert strand, var komið
inn að Elliðaám og grotnar þar niður.
Þetta var 1. september 1932. 1 vor var
sementsskip, (steinnökkvi) dregið hingað
til lands, sem Akranesingar höfðu keypt;
er ætlunin, að sökkva því og nota það
þannig sem framlengingu af mannvirkj-
um þeim, sem fyrir eru. Með því leng-
ist bryggjan fram, um 60 metra.
Sem stendur er steinskipið haft i
Hvalfirði, meðan verið er að styrkja
það og laga til, áður en því verður sökkt
á fyrirhugaðan stað; er Þorbjörn Kle-
menzson skipasmiður, verkstjóri við all-
an frágang á skipinu, en verkfræðingur
Finnbogi Rútur Þorvaldsson hefur haft
og hefur yfirumsjón með verkinu í heild.
Hvenær skipinu verður sökkt er Ægi
ekki kunnugt, en góðar óskir fylgja þess-
um línum, að allt mætti lánast sem bezt.
Er hér um miklar framfarir að ræða og
vonandi komast Akranesingar svo iangt
með þetta mannvirki, að þeir fái skjól
og hagkvæman stað fyrir eitthvað af vél-
bátaflota sinum, þvi á Lambhúsasundi
er of þröng og hefur verið i mörg ár og
talið, að þar sé nú 8 bátum of margt.
Má þakka formönnum og hásetum, að
stórljón hafa ekki orðið á mótorbátum
þeirra, hverja vertiðina eftir aðra, því
síðan þrengslin á Sundinu urðu mest, er
það siður þeirra, þegar ofviðri er í að-
sigi, að fara út í bátana og dvelja þar
meðan það stendur yfir og varna, að þeir
sláist saman, ef þess er kostur. Sénokk-
ursstaðar þörf á bátahöfn, er það á Akra-
nesi, þvi innsiglingin á Lambhúsasund
er ekki að eins hættuleg mjög, heldur
má einnig búast við hinu versta er á
leguna er komið, t. d. í stórflóðum og
SV stórviðrum.
Skipið, sem dró nökkvan hingað hét
»Hanka« frá Sandefjord; var það lengi
á leiðinni og hreppti storma, en nökkv-
anum skilaði það í góðu lagi. Hinn 7.
júní lagði það aftur af stað og dró þá
eimskipið »Vestra« (hét áður Nordland),
eign félagsins »Eimskipafélag Vestur-
lands« h.f, FJateyri.
»Vestra« var lagt á Skerjafjörð hinn
11. júlí 1932, fór þaðan hinn 7. júni þ.
á.; vantar því mánuð upp á tveggja ára
veru hans þar. Skipið er of gamalt til
þess að viðgerð svari kostnaði og mun
það nú selt til niðurrifs.
Markarfljótsbrúin
var vigð hinn 1. júlí. Gerði það ráð-
herra Þorsteinn Briem ; voru hátíðahöld
mikil og viðstatt fólk skipti þúsundum.