Ægir - 01.06.1934, Qupperneq 14
140
ÆGIR
SydneYbrúin.
Hundrað ára gamall draumur rættist
þegar hin mikla brú yfir höfnina við
Sydney var opnuð til umferðar, hinn 19.
marz 1932.
Brúin er helmingi þyngri en nokkur
önnur, af svipaðri gerð.
Hafið (þ. e. það, sem brúin spennir
yfir) ensku »Span«, er 1650 fet og er að
eins 25 þumlungum styttra en á »Kill
van Kulk brúnni, i New-York, en helm-
ingi þyngra og 70 fetum breiðara.
í hafinu (the Span) eru 38 þúsund
tonn af stáli og allt gólfið er 12 þúsund
tonn að þyngd. Brúin er 160 feta breið
og ber 128 brautarlestir, 6 þúsundvagna
og 40 þúsund fótgangandi fólk fram og
aftur um hana, á klukkustund.
Boginn sem ber gólfið, er 440 fet yfir
sjávarflöt, liggja hinir efri strengir í þeirri
hæð, en hinir neðri 90 fetum neðar eða
í 350 feta hæð yfir sjávarflöt.
Steinsteypuakkerin við hvorn enda
brúarinnar, eru 285 fet yfir sjávarflöt og
81 fet hærri en brúargólfið.
Hugmyndina um brú yfir höfnina, fékk
fyrstur allra, Francis H. Greenway, verk-
fræðingur rikisins, árið 1815. Árið 1857
lagði Peter Henderson fram teikningu
brúar á þessum stað; var hann verk-
fræðingur og hafði unnið hjá Georg
Stephenson. Til skarar skreið þó fyrst,
þegar ráðherra (verklegra framkvæmda)
E. W. O’Sullivan auglýsti eflir leikn-
ingum og kostnaðaráætlunum við brú-
argerðina. Dr. J. J. C. Bradfield afhenli
teikningar sínar og áætlunarkostnað 1912
og var þá kjörinn til að hafa yfirumsjón
með fyrirhuguðu verki. Hinn 24. marz
1924 undirskrifaði verkfræðingur Law-
renc Ennis, fyrir hönd verkfræðinga-
firmans Dormann Long & Co, samninga
um brúargerðina, þar sem þeir taka að
sér að fullgera hana á 6 árum fyrir
4.217.721 pund sterling. Á tilteknum tíma
var verkinu lokið og það virt á 4.900.000
pund sterling. Teikningar þær og upp-
drættir, sem farið var eftir við hrúar-
gerðina, urðu milli 6—7 þúsund að tölu,
áður en öllu verkinu var lokið.
Með afleggjurum að brúnni er lengd
hennar alls 28/* enskar mílur og kostn-
aður alls verksins 6.250.000 pund sterl-
ing. Brúin er talin vera meistarastykki
verkfræðinnar.
Þangpest
viö Danmerkurstrendur
í norska blaðinu Aftenposten 24. maí
er skeyti frá Kaupmannahöfn og hermir
það, að þangið við strendur Danmerkur
sem venjulega er nefnt »álagras«, sé al-
veg að hverfa. Hefur borist í það sjúk-
dómur, sem gerði mjög vart við sig í
þangi við strendur Hollands og Frakk-
lands í fyrra. Pað er nokkurskonar svepp-
ur, sem myndast innan í þanginu. Koma
fyrst brúnir blettir á blöðin og svo verða
þau alveg svört og þangið fellur til bolns,
en skolar ekki á land. Ástæðan til þess
er sú, að sjúkdómurinn eyðileggur loft-
blöðrurnar, sem halda þanginu uppi.
Pangpestin byrjar þar sem dýpst er, en
færist svo nær og nær landi þannig að
allur botngróður hverfur smám saman.
Segir í skeytinu, að pestin muni eyða
öllu þangi við Danmerkurstrendur, og
þetta muni valda döskum fiskimönnum
stórtjóni, því að jafnframt hverfi áll og
þorskur, sem halda til i þanginu.