Ægir - 01.06.1934, Side 15
ÆGIR
141
Reglugerð
um bann við dragnótaveiði í land-
helgi við Dýrafjörð í Vestur-ísafjs.
Samkv. 8. gr. laga nr. 55, 7. maí 1928,
um bann gegn dragnótaveiði i landhelgi,
eru hér með sett eflirfarandi ákvæði;
1. gr. Enginn má nota neina tegund
dragnóta, þar á meðal kolanætur (snurre-
vaad), til fiskveiða í landhelgi innan línu
frá Þúfu austan Dýrafjarðar og í Sléltu-
nestá vestan við fjörðinn á tímabilinu
frá 1. september til 30. nóember ár
hvert.
Bann þetta nær jafnt til allra skipa
og báta, sem slík veiðarfæri nota. t*ó
skal eigendum og nothöfum jarða þeirra,
er að sjó liggja á bannsvæðinu, heimilt
að nota ádráttarnætur og draga þær á
land.
2. gr. Lögreglustjóra og skipum þeim,
er hafa á hendi landhelgisgæzlu, ber að
annast um að bannákvæðum reglugerð-
ar þessarar sé hlýtt.
3. gr. Brot gegn reglugerð þessari varð-
ar þeim sektum og viðurlögum, sem á-
kveðin eru í framangreindum lögum.
Reglugerð þessi gengur í gildi 1. sept.
1934, og birtist til eftirbreytni öllum þeim,
sem hlut eiga að máli.
Atvinnu- og saragöngumálaráðuneytið,
1. júní 1934.
Magnús Guðmundsson.
Vigfús Einarsson
Iðnfræðingur Fiskifélags ístands.
Vorið 1933 lauk hr. Þórður Þorbjarn-
arson námi við háskólann i Halifax og
var þá ráðinn starfsmaður Fiskifélagsins.
Um sumarið dvaldi hann hér á landi,
en hélt til London til frekara náms í
september.
Þar stundaði hann nám hjá fjörefna-
fræðing prófessor I. C. Drummond við
Universily College í London og dvaldi
þar í 9 mánuði.
Hinn 16. júní s. 1. kom hann lil Reykja-
vikur og tekur þegar til starfa, við sild-
arrannsóknir, um veiðitímann.
Reglugerö
um bann við dragnótaveiði í land-
helgi fyrir Skeggjastaðahreppi
í Norður-Múlasýslu.
Samkvæmt 8. gr. laga nr. 55, 7. maí
1928, um bann gegn dragnótaveiði í
landhelgi, eru hér með sett eftirfarandi
ákvæði:
1. gr. Enginn má nota neina tegund
dragnóta, þarámeðal kolanælur (Snurre-
vaad), til íiskveiða í landhelgi innan línu
frá Stapatá austan Viðvíkur í Fossdal í
Gunnólfsvikurfjalli á tímabilinu frá 1.
september til 30. nóvember ár hvert.
Bann þetta nær jafnt til allra skipa
og báta, sem slík veiðarfæri nota. Þó
skal eigendum og nothöfum jarða þeirra,
eraðsjó liggja á bannsvæðinu, heimilt að
nota ádráttarnætur og draga þær á land.
2. gr. Lögreglustjóra og skipum þeim,
er hafa á hendi landhelgisgæzlu, ber að
annast um að bannákvæðum reglugerð-
ar þessarar sé hlýtt.
3. gr. Brot gegn reglugerð þessari varða
þeim sektum og viðurlögum, sem á-
kveðin eru i framangreindum lögum.
Reglugerð þessi gengur í gildi 1. sept-
ember 1934 og birtist til eftirbreytni öll-
um þeim, sem hlut eiga að máli.
Atvinnu- og samgöngumálaráðuneytið,
5. júní 1934.
Magnús Guðmundsson.
Vigfús Einarsson.