Ægir - 01.06.1934, Síða 16
142
ÆGIR
Skýrsla
erindrekans í Vestfirðingafjórðungi
janúar—marz 1934.
Vertiðin hér vestra, frá nýáritil páska,
var að þessu sinni stutt en þó sæmlega
aflasæl, og má teljast mjög góð þegar
þess er gætt, hversu aðalveiðitímabilið
var stutt.
1 janúarmánuði var mjög sjaldan til
fiskjar farið, aflnn lilill og fiskur seldur
í isfisktogarana.
Upp úr mánaðamótunum tók afli að
glæðast og mátti heita hlaðfiski frá miðj-
um febrúar og fram að páskum. Má því
telja vetrarvertíðina hér mikið góða þeg-
ar á allt er litið.
Mundu afkomuhorfur sjómanna því
eftir atvikum sæmilegar, ef vorvertíð hefði
reynst að sama skapi. En það er öðru
nær en svo verði, því þótt vorvertíð sé
eigi að fullu lokið enn þá, er þó svo
mikið séð, að hún ætlar þvi miður að
bregðast hrapallega. Að öðru leyti bíður
það næstu skýrslu að greina frá afla-
brögðunum í veiðistöðvum fjórðungsins
í vor.
Hér fer á eftir yflrlit um vetraraflann
í veiðistöðvum fjórðungsins.
Pateksljörður. Togararnir tveir þaðan
öfluðu yfir marzmánuð 380 smálestir.
I fyrravetur fengu sömu skip frá miðj-
um febrúar til páska (um miðjan apríl)
750 smálestir.
Bíldudalur. Tveir línugufubátar þaðan
öfluðu nú 200 smálestir. Þeir byrjuðu í
febrúar. í fyrravetur fengu sömu skip
um 170 smál. en lögðu þó mun meira
af afla sínum upp syðra en nú.
Pingeyri. Þaðan gengu nú þrjú línu-
gufuskip eins og í fyrra og öfluðu um
297 smál.
1 fyrra vetur fengu skip þessi 403 smál.
Flateyri. Þaðan gengu nú 13 vélbátar,
þar af 1 bátur frá Stykkishólmi, og öfl-
uðu um 366 smál. fiskjar.
í fyrra vetur fengu sömu bátar aðeins
368 smál.
Suðureyri í Súgandafirði. Þar aflaðist
í vetur á 6—7 vélbáta 256 snrál.
I fyrra nam vetraraflinn þar einungis
180 smál.
Bolungavík. í vetur gengu þaðan 17
vélbátar og öfluðu samtals um 260 smá).
Veturinn 1933 voru bátarnir taldir 20,
og ferrgu þá 336 smál.
Hnifsdalur. 7 vélbátar gengu þaðan í
vetur og fengu um 240 smál.
í fyrravetur voru bátarnir þar lengst-
um 8 (einn þeirra fórst i marz-lok) og
öfluðu þá ekki nema 213 smál.
ísajjarðarkaupstaður. Þaðan gengu á
fiskveiðar í vetur, 1 togari, 15 stórir vél-
bátar og 7 smærri. Aflafengur skipa þess-
ara talinn i vetur 959 srnál. Auk þess
lögðu bátar Samvinnufélagsins upp syðra
um 250 smál. fiskjar og ennfremur vél-
báturinu Percy allan sinn vetrarafla.
í fyrra vetur voru talin stunda veiðar
frá Isafirði, 1 togari, 1 linugufubátur að
nokkru, 14 stórir vélbátar og 9 smærri.
Aflinn 1234 smál. Aflafengurinn er því
sizt minni hlutfallslega nú í vetur.
Áljlafjörður. Þar aflaðist á 7 vélbáta í
vetur 287 smál.
í fyrravetur voru bátarnir þar taldir 8
og fengu þá 249 smál.
Annarsstaðar en að framan greinir,
voru fiskveiðar ekki stundaðar, utan lit-
ilsháttar fyrir páskana i Aðalvík.
Eins og framanritaðar tölur bera með
sér, er vetraraflinn í fjórðungnum í bezta
lagi. í fyrravetur var veiðitíminn tveim vik-
um lengri, að minnsta kosti, því páskar
voru þá eigi fyr en um miðjan apríl.
Auk þess var og ofurlítið saltað af