Ægir - 01.03.1936, Blaðsíða 26
80
Æ G I R
Fyrsti vélbáturinn, smíðaður í
Keflavík.
Hinn 10. febrúar var settur á ilot vél-
báturinn Sæfari II., sem smiðaður hefir
verið í Iveflavík, og er það fyrsti vél-
bátur, sem smíðaður hefir verið þar.
Báturinn er alfur byggður úr eik. Hann
er 29 smálestir að stærð með 90 best-
aíla June-Munktel vél.
Peter Wiglund bátasmiður sá um smíði
bátsins.
Eigendnr hans eru þeir Elías Þor-
steinsson, Albert og Olafur Bjarnasynir,
útgerðarmenn i Kefllavík.
Skozka síldin 1935.
Síld, sem verkuð var í Skotlandi og
East Anglia, síðast liðið ár, nam 1.031.921
tunnu, en árið áður voru verkaðar 760.725
tunnur. Ejórum mánuðum áður en veiði-
tími byrjaði var búið að fá kaupendur
að allri síldinni, að eins 30 þús. tn. var
óráðstafað um nýjár, en i byrjun febr. þ.
á., voru þær seldar og biðu að eins flutn-
ings. Verðið má heita gott. Tveir þriðju
hlutar síldarframleiðslunnar hafa verið
seldir til Þýzkalands og Póllands. Bæði
Jiessi lönd liafa að miklum mun aukið
síldarkaup sín, en hlutfallslega er sú
aukning meiri hjá Þjóðverjum. Sovjet-
Rússland hefur keypt 105.500 tunnur
árið 1935, en sala þangað árið 1934 var,
70 þúsund tunnur.
Nýtt met í síldveiðum.
Síldveiðin við Lowestoft varð meiri í
janúarmánuði sl., en sögur fara af. Lát-
ið var á land 5.649 crans (1 eran=37‘/«
gallon, 1 barrel 262/s gallon, 1 gallon
4V2 liter) og var j)að 6.539 sterlings-
pund að verðmæti. Næsl þessu er janú-
araflinn 1934, Þá kom á land 1.076 crans,
sem sell var fyrír 2.666 sterlingspund. Á
einum degi í janúar sl. var látið á land
við bryggju, 1.136 crans, af nýveiddri
síld.
Hákarlaveiðar.
Hinn 18. marz, lagði línuveiðagufu-
ski])ið »Freyja« R. E. 38, út til hákarla-
veiða og 21. s. m. fór »Rifsnes« R. E.
272 einnig til hákarlaveiða. Veiðarfærin
eru lóðir og beitan lirossaket og .spik.
Er nú orðið æðilangt síðan gert var út
á hákarl frá Reykjavík.
Fiskileysi er nú um allt Suður- og
Vesturland, og svarar afli vart beitu-
koslnaði hjá mörgum, sem róið liafa,
þegar veður hefir leyft. Aíli alls, sem
kominn er á land 15. marz, er um helm-
ingi minni en um sama levti í fyrra,
eins og sjá má á hls. 75, i þessu hefti.
Bátar, sem stunda veiðar frá Reykjavík
hafa afskráð háseta og eru hættir veiðum,
vegna aflaleysis, Jjar til eitthvað glæðist.
(20. íiiarz 1936).
Aegir
a monthly review of ilie fisheries and fish
irade of Iceland.
Published by: Fiskifélag íslands (The
Fisheries Association oflcelandj Reykjavik.
Resulis of tlie Icelandic Codfisheries
from the beginning of ihe year 1936 to
tlie 15{h of March, calculated in fiilly
cured state:
Large Cod 3.621. Small Cod 73h, Had-
dock 42, Saithe 31, total 4.428 tons.
Ritstjóri: Sveinbjörn Egilson
Ríkisprentsm. Gutenberg.