Ægir

Árgangur

Ægir - 01.07.1939, Blaðsíða 15

Ægir - 01.07.1939, Blaðsíða 15
Æ G I R 165 og Ilelgi Benediktsson í Vestmannaeyjum hefir iátið smíða þar vélskip, sem er 120 —130 rúml. að stærð. Af þeim bátum, sem styrks nutu og húið er að smíða, eru 6 opnir vélhátar og 2 fimm rúmlesta bátar með hálfdekki, sem samvinnuútgerðarfélag á Hjalla- sandi á. Það sem af er þessu ári liefir því bætzt við fiskiflotann 1 gufuskip og 23 vélskip og vélbátar auk trilluháta og liálfdekks- bála. — Oss er ]iað liin mesta nauðsyn að auka og endurbæta fiskiflotann, og vonandi er ennþá til meðal manna við sjávarsíðuna, það framtak og áræði, er dugi til þess, að unnt verði að halda á- fram í því liorfi, sem i ár hefir verið stefnt í að þessu leytinu. Erlendar fréttir. Fiskbirgðii' í Nýfundnalandi. Samkv. skýrslum, er fyrir liggja, voru fisk- birgðir í Nýfundnalandi 31. maí síðastl. alls 7 543 smál., en á sama tima árið áður voru birgðirnar 6 542 smál. Af birgðunum nú eru mn 2 000 smál. bessa árs fiskur, en hitt er frá fyrra ári Enska stjórnin kaupir togara. Enska stjórnin hefir nýverið keypt 8(i togara í Grimsby og Hull. Eru flest af bessum skipum með þéim stærstu og beztu í togaraflotanum brezka. Þessi ráðstöfun er einn þátturinn í þeim feiknarlega hernaðarundirbúningi, sem nú á sér stað í Bretlandi. — Búist cr við, að þeim út- gerðarmönnum, sem urðu að láta skip sin af hendi, verði á einhvern hátt bættur sá skaði, sem ætla má að þessi ráðstöfun olli þeim. Síldveiðar Þjóðverja í Norðursjónum. Um þessar mundir stunda um 380 þýzk skip síldveiðar í Norðursjónum. Þar af er fjórði ldut- inn af togaraflotanum þýzka. Veiðin byrjaði 1. júlí. Fram til þessa hefir afli verið heldur tregur. Þorskafli Norðmanna. Þann 30. júní var þorskafli Norðmanna alls orðinn 214 244 smál. Þar af hafði verið hert 83 090 smál. og saltað 120 300 smál. En af með- alalýsi voru þeir þá búnir að fá 92 052 hl. og af hrognum 59 051 hl. Þann 18. júní í fyrra (en þá kom lokaskýrslan) var þorskafli Norðmanna 103 533 smál. og hefir þorskaflinn í ár því orðið 50 711 smál. meiri en þá. Árið 1930 var talið eitt hið bezta aflaár, er þá hafði komið um langan líma í Noregi, en siðastliðin vertíð hefir þrált fyrir það orðið enn betri, þvi að þorskaflinn nú er 19 002 smál. meiri en þá var. Þorskveiðar Norðmanna við ísland hafa einn- ig gengið vel. Er afli þeirra á Islandsmiðum talinn 2 115 smál. (miðað við fullstaðinn fisk), en var aðeins 1 239 smál. siðastl. ár. Fréttir úr verstöðvunum. 30. júli 1939. Austfirðir. Þar hefir fiskast sæmilega á grunnmiðum, að jafnaði 4—8 skpd í róðri á trillubáta. Er þessi afli svo að segja eingöngu smáfiskur. Ondverð- lega i þessum mánuði var ekkert farið að veið- ast á djúpmiðum. — Beitulaust var í allt vor á Austfjörðum, þar til að veiddust 2—300 mál í snurpunót i Norðfirði. Nokkru síðar náðist í síld i landnót í Mjóafirði, svo að það bjargaði lóðaveiðunum, hvað beitufeng snerti. Á Seyðisfirði hefir fyrir nokkru verið stofnað sildveiðifélag. Tilgangur félagsins er samkvæmt samþykktum þess: 1. að útvega síldveiðitæki, svo sem nætur, báta o. þ. 1. 2. að selja félagsmönnum beitusíld, nýja eða frysta, með kostnaðarverði. 3. að salta síkl til útflutnings, ef hagkvæmt þykir. 4. að koma á fót niðursuðuverksmiðju. Góður og gegn útvegsbóndi á Seyðisfirði skrifar ritstjóra „Ægis“ um þessa félagsstofnun á þessa leið: „Félagið er nú að festa kaup á landnótuin, sem hér eru til og bátum og öðru, sem með þarf. Við vonumst til að geta veitt síld á öllum tím- um árs, þegar hún kemur liér í fjörðinn. Hug- myndin um niðursuðuverksmiðjuna er fyrst og fremst tengd við smásíldina, sem hér veiðist oft á vorin og talin er heppileg til niðursuðu. Þá mundi vera hægt að taka fleiri tegundir fisks til niðursuðu og skelfisk er hér viða að fá i fjörð-

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.