Ægir

Árgangur

Ægir - 01.08.1939, Blaðsíða 4

Ægir - 01.08.1939, Blaðsíða 4
174 Æ G I R félag atvinnustéttar, fiskimanna og út- gerðarmanna. — Deildirnar fá hin síðari árin fátt af nýjum félagsmönnum, hinir eldri týna tölunni, e_n sjómenn yfirleitt telja sér ekki hagsmunalegan ávinning að þvi að vera í Fiskifélaginu. Ný félög brjótast inn á starfssvið Fiskifélagsins. svo sem LTl- gerðarmannasambandið, er klandrað var r.aman sl. vetur, og mun þó vart full- skapað ennþá, Fiski- og farmannasam- bandið, og fleiri slík, að ógleymdri Fiski- málanefndinni. Tillögur milliþinganefndar. Síðasta Fiskiþingi var ljóst, livert nú stefnir. Fulltrúar voru flestir sammála um, að Fiskimálanefnd bæri að sameina Fiskifélaginu. Hinsvegar var þeim ljóst að slík sameining, og aukið valdssvið fé- lagsins af hálfu Alþingis og ríkisvalds- ins gerðust ekki i svip og athugasemda- laust. Fiskiþingið kaus því þriggja manna nefnd til þess að íhuga mál þelta, og breytingar á lögum Fiskifélagsins. SkyJdu tillögur nefndarinnar leggjast fyrir fjórðungsþingin í baust og síðan Fiskiþingið. í nefndina voru kosnir: Benedikt Sveinsson fyrrv. alþingismaður, Ólafur B. Björnsson, kaupmaður á Akra- ncsi og Kristján Jónsson frá Garðsstöð- um. Jafnframt var þess farið á leit við Alþingi, að það tilnefndi þrjá menn af sin ni hálfu til samstarfs við Fiskiþings- nefndina. Fyrir tilstilli fvrrv. atvinnu- málaráðherra SkúJa Guðmundssonar, féllust aðalflokkar AJþingis á að nefna menn til viðlals Fiskiþingsnefndinni s. 1. vetur. Voru það þeir Finnur Jónsson alþm. fyrir Alþýðufl., Ingvar Pálmason alþni. fyrir Framsóknarfl. og Sigurjón Jónsson fyrrv. bankaútibússtjóri fyrir Sjálfstæðisfl. Nefndin gcrði drög að víð- lækum breytingum á lögum og skipulagi Fiskifélagsins. Veigamesta breytingin er um.skipun Fiskiþings, fjölgun sambanda og reglur þær, er gilda .skuli við kosn- ingu fiskifélagsfulltrúa. Ætlast er til, að Jandinu verði skipt í sambandssvæði, og fulltrúar kosnir á þann hátt sem liér segir: 1. Reykjavík og Hafnarfjörður kjósa sanian 4 fulltrúa. — 2. Gullbrmgu- og Kjósarsýsla, ásamt Akranesi og veiði- stöðvum Árnessýslu ,kjósa 3 fulltrúa. — 3. Vestmannaeyjar kjósa 2 fulltrúa. — 4. Múlasýslur ásamt Hornafirði kjósa 2 fulltrúa. — 5. Þingeyj arsýslur kjósa 1 fulltrúa. — 6. Eyjafjarðarsýsla ásamt Akureyri kýs 2 fulltrúa. — 7. Skaga- fjarðar- og Húnavatnssýslur kjósa 1 full- trúa. —- 8. Isafjarðarsýsla, ásamt Isa- fjarðarkaupstað, Strandasýslu og vestur- hluta BarðastrandarsýsJu kjósa 3 full- trúa. — 9. Snæfellsnessýsla ásamt suður- hluta Barðastrandarsýslu kýs 1 fulltrúa. —• Þetta verða alls 19 fulltrúar, og að sjálfsögðu jafnmargir til vara. — Kosningar til Fiskiþings eiga ekki að fara fram með sama liætti og nú, fyrst með kosningu deildafulltrúa á fjórðungs- þing og síðan kosningu fiskiþingsfull- trúa á fjórðungsþingi. Um fiskiþings- kosningar er ællazt til að upp verði tekin ný skipan í höfuðatriðum á þessa leið: Fyrir bvert fiskiskip, sem er minnst 2 rúmlestir og gengur til þorskveiða minnst 3 mánuði á ári, gilda 2 atkvæði. Eig- andi eða umráðamaður fiskiskips fer með annað alkvæðið, en skipverjar kjósa einn mann úr sínum liópi, til að fara með liitt alkvæðið. — Þeir einstaklingar eða félög, sefn eiga fleiri fiskiskip en eitt, bafa rétt til þess að kveðja fullgilda menn til ]æss að fara með atkvæði skipa sinna. Atkvæðagreiðsla fer fram á fundi í deildum, sem boðaður skal sérstaklega í þéssu skyni með hæfilegum fyrirvara.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.