Ægir - 01.08.1939, Page 8
178
Æ G I R
Sigurður Sigurðsson
frá Arnarholti
Sigurður
Sigurðsson
andaðist þann 4. ágúst síðastl. Sigurður
var um marga liluti hinn merkilegasti
maður. Hann var manna myndarlegastur
að vallarsýn og höfðinglegur í fasi og
lund. Hvar sem hann fór hlutu menn að
veita honum athvgli, því að enginn hvers-
dagsleikamaður var á ferð, þar sem hann
var. Hann var skáld gott og bera sum
kvæði hans þess greinileg merki, að þau
eigi fyrir sér að lifa langan aldur á tungu
þjóðarinnar. Sem ljóðaþýðandi var Sig-
urður snillingur og er leitt að hann skyldi
ekki snúa fleiri kvæðum á ísl. en raun
varð á.
Þar sem Sigurður frá Arnarholti var
átti sjómannastéttin traustan liauk í
liorni, er lét sig meira skipta, hvernig
fór um öryggismál hennar, en flestir
aðrir menn. Sigurður beitti sér eindregið
fvrir stofnun Björgunarfélags Vest-
mannaeyja og var forvígismaður þess
um langt skeið. Hann barðist mjög ein-
dregið fvrir að félagið eignaðist skip er
hæði annaðist landhelgisgæ,zhi og hjörg-
unarstarfsemi við Eyjar. Hinn brennandi
áhugi Sigurðar og Önnu Pálsdóttur,
konu hans, og velvilji og skilningur
ýmsra mætra manna sigraði i þessu
máli og hjörgunarskipið „Þór“ kom
liingað til lands síðla vetrar 1920. Sjálf-
ur lagði Sigurður og kona hans fram
mikið fé til skipskaupanna, og sýndu
með því hug sinn í verki til þessa merki-
lega máls.
Sigurður lalaði af miklum skilningi
um starf sjómannsins, eins og hann hefði
alla tíð stundað sjó. Og eins og hugur
fastir starfsmenn þessara félaga og stofn-
ana, skrifstofumenn og' aðrir þessháttar.
Félag þetla hefir verið að bisa við að
halda fulltrúasamkomu undanfarið. Það
er vitanlega skaðlaust, ef það heldur sig
við málefni farmanna, og beinir sínum
ályktunum til réttra aðilja. En tvö þing
eða fulltrúasamkomur fyrir sjávarútveg-
inn (fjórðungsþingin núverandi eru
grein á sama stofni og Fiskiþingið)
auka aðeins glundroða og spilla einatt
árangrinum, ])ótt vilji beggja sé góður.
— Tveir tígulkóngar í sama spili, ógilda
spilið. Þetta félag ætti því að halda sér
að málefnum farmanna einna, en sleppa
umhugsun um fiskveiðimálin, sem það
hefir engin tök á, né skilyrði til að ann-
ast.
Ein ríkisstyrkt öflug stofnun fvrir
fiskveiðimálin og sjávarútveginn er það
sem fiskimenn og útgerðarmenn eiga að
öðlazt. Og þeir fá hana stvrka og öfl-
uga, ef þeir eru fullkomlega samtaka.