Ægir - 01.08.1939, Page 15
Æ G I R
185
sem er grópað í veggina. Smíði vitans
var meðal annars miðað við það, að við-
hald hans }rrði sem ódýrast, en jafnframt
reynt að hafa hann rammgeran.
Ljóstækin eru eins og Sviar nota al-
mennt í sínum vitum og liafa gefist á-
gætlega. Svipuð tæki eru einnig i nokkr-
um öðrum vitum liér á landi. — Linsan
i Jjóstæki Knararósvitans er 500 mm og
gasbrennarinn 50 lítrar og fæst með því
6100 kerta ljósmagn. Ljóssvið vitans er
16 mílur. Þegar vitinn, sem nú hefir verið
reistur á Þrídröngum, getur tekið til
starfa, hefir verið ráðin veruleg bót á
upplýsingunni fyrir suðurströndinni, en
ljóssvið þessara vita á að ná saman.
Vörður við Knararósvitann hefir verið
ráðinn Páll Gunnarsson bóndi á Baugs-
stöðum. Þaðan að heiman sést vel hvort
vitinn kveikir á sér eða ekki, og er því
ekki ætlast til að vitavörður fari i vit-
ann nema annan hvorn dag. Teikninguna
af vitanum gerði Axel Sveinsson verk-
fræðingur, en verkstjóri var Sigurður
Pétursson frá Sauðárkróki. — Á Knarar-
ósvitanum er annar svipur en tiðkazl
hefir hér og er óhætt að fullvrða, að fall-
egri stíll hefir ekki sést á íslenzkri vita-
hvggingu.
Sjómannastéttin veit að örvggi henn-
ar er treyst með liverjum nýjum vita, og
hún þakkar hverja framkvæmd i þcim
efnum, en jafnframt væntir hún þess að
öryggismál liennar mæti slíkum skiln-
ingi, að vitagjaldinu sé óskiptu ætlað til
þeirra hluta, sem Jög mæla fvrir.
ísfiskveiðarnar.
í þessum mánuði hafa 5 togarar selt í Þýzka-
landi úr tveimur veiðiferðum hver, og auk þess
hafa 3 togarar selt úr einni veiðiferð. Alls hafa
þessir togarar selt fyrir 309 þús. kr. í þessum
mánuði. Tveir togarar hafa selt til Englands í
þessum mánuði fyrir samtals 1 590 £.
Síldveiðin 1939.
1. júlí 1939. Bræðslusild hektól.
Vestfirðir og Strandir
Siglufj., Skagastr., Sauðárkr., Hofsós. 9 731
Eyjafj., Húsavík, ltaufarhöfn 6129
Austfirðir
Sunnlendingafjórðungur
Samtals 1. júlí 1939... 19 874
Samtals 2. júlí 1938 .. 110 148
Samtals 3. júlí 1937 .. 262 528
8. .júlí 1939. Vestfirðir og Strandir 452
Siglufj., Skagastr., Sauðárkr., Hofsós.. 23 189
Eyjafj., Ilúsavík, Raufarhöfn 34 985
Austfirðir 10 041
Sunnlendingafjórðungur ..., 597
Samtals 8. júlí 1939.. 69 264
Samtals 9. júli 1938... 127 527
Samtals 10. júli 1937... 425 505
15. .júlí 1939. Vestfirðir og Strandir 32156
Siglufj., Skagastr., Sauðárkr., Ilofsós. 165 542
Evjafj., Húsavik, Raufarhöfn, 177 793
Austfirðir 30 731
Sunnlendingafjórðungur 2145
Samtals 15. júli 1939 ... 408 367
Samtals 16. júli 1938... 153437
Samtals 17. júli 1937... 568 039
Erlendar fréttir.
Sala á lifandi fiski.
Þeir menn i Noregi, sem selja lifandi fisk,
eða œtla sér að selja, hafa nýlega stofnað með
sér sölusamlag og eru meðlimir þess 0000. Fyrir
atbeina fiskimálastjórnarinnar og ríkisins liefir
samlagið fengið 25 þús. kr. rentulaust lán, sem
nota á, ef félagið lendir i fjárkröggum. Fisk-
sölusamlag þetta tekur lil starfa 1. september.
Síldveiðarnar við Bretland og í Norðursjónum.
Sildveiðarnar í Norðursjónum hafa gengið
mjög illa í sumar. Um miðjan ágúst var afli
þýzka sildveiðiflotans aðeins helmingur af þvi
sem hann var á sama tíma í fyrra, og þó voru
fleiri skip við veiðar að þessu sinni. Við Skot-
land og Shetlandseyjar hefir sildveiði einnig
verið með minna móti í sumar.
Framh. á bls. 187