Ægir

Árgangur

Ægir - 01.11.1939, Blaðsíða 4

Ægir - 01.11.1939, Blaðsíða 4
238 Æ G I R í þinginu, um livort áhættuþóknun sjó- manna eigi að vera skattfrjáls að liálfu eða öllu leyti. — Þegar á það er litið, iiverrar skyldu sjómaðurinn gegnir nú i þágu þjóðfélagsins, þá verður ekki um það villst, að hún sé i léttum metum lijá þorra þingmanna. Það er eins og þeim skiljizt ekki, að sjómennirnir vinna jafnan hættusamasta starfið, og síðan stríðið skall á, hefir hættan stórkostlega aukizt. Eða vilja þeir neita því opinber- lega, að það séu sjómennirnir, sem liafa tekið að sér að verja þjóðina þeim brot- sjóum, sem siglingavandræði hafa í för með sér. Eflaust myndi enginn treysta sér á þann is. Það er nú mjög algengt að bera sam- an þrengingar stríðsþjóðanna og hlut- iausra þjóða. Vitanlega er þar mjög óJíku saman að jafna. En vilja nú ekki þingmennirnir skyggnast lítillega í liuga sjómannskonunnar, sem á mann sinn í förum landa á milli, og reyna að kynn- ast hugarástandi hennar. Líta siðan nær sér, til sinna eigin kvenna og gera svo- Jítinn samanhurð. Vilja þeir ekki einnig reyna að setja sig i spor sjómannsins og af þeim kynnum gera tilraun með að draga álvktanir, sem eru í ætt við veru- J.eikann. Máske mundi skilningur þeirra á lífi sjómannsins og konu hans, glæð- ast nokkuð við það. Það er merkilegt hvað sjómanna- stéttin hefir jafnan átt fátt einlægra talsmanna á Alþingi, en margt manna, sem hafa verið fúsir á að stinga smá- blómi i lmappagat sjómannsins á liátíð- leguin augnablikum. Það getur tæipast talizt nema smáblóm í hnappagatið, þótt öll áhættuþóknunin sé gerð skattfrjáls, en máske er nú ekki næailega hátíð- legt augnablik, til þess að færa slíkt blóm og hið góða hugarþel verði látið nægja í bili. Hafrannsóknir j þrátt fyrir stríðið. í ár eru 40 ár liðin síðan Alþjóðaráð hafrannsóknanna var stofnað í Stokk- liólmi. Var það fyrir atbeina sænsku ríkisstjórnarinnar, að fulltrúum frá ýms- um löndum var boðið þangað til þess að taka þátt i stofnun ráðsins. — í nokkur ár áður höfðu verið stundaðar hafrann- sóknir, en þær byggðust fyrst og fremst á frjálsu samstarfi nokkurra vísinda- manna á Norðurlöndum. Síðan Alþjóðaráðið var stofnað hefir það lialdið 32 ársmót og lang' oftast i Kaupmannahöfn, en þar hefir það skrif- stofu sína í Charlottenlund-höll. — Nú i ár var ársmótið haldið í mai, og að þessu sinni i Berlín, samkvæmt hoði þýzku stjórnarinnar. í mótinu tóku þátt 100 fulllrúar frá 14 löndum. Var þeim sýnd liin mesta gestrisni og allt gert til þess að fulltrúarnir gætu sem hezt kynnst liinum vísindalegu stofnunum á þ'essu sviði og hinni stóru nýtízku fiskiskipa- liöfn í Wesermúnde. Á mótinu var einkum rætl um, livernig liaga skyldi rannsóknunum í framtíð- inni. Var einkum áberandi sá mikli á- hugi, sem er fyrir því að skipuleggja al- þjóðlegt eftirlit með þeim breytingum, sem verða á þorskstofninum á veiði- svæðunum í Norður-Evrópu. Og er þá einkum átt við þær breytingar, er verða til vegna sveifluhrigða í árgöngunum, vegna liinna auknu fiskveiða, og að lok- um vegna þeirra álirifa, er hafstraum- arnir virðast hafa haft, hin síðustu ár, á norðasla hluta veiðisvæðanna. Með fram- kvæjmdir fyrir augum í þessa átt, var samþvkkt fjárhagsáætlun, sem byggist á fjárframlögum frá þeim löndum, er þátt taka í rannsóknunum. Til þess að sjá um

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.