Ægir

Árgangur

Ægir - 01.11.1939, Blaðsíða 11

Ægir - 01.11.1939, Blaðsíða 11
Æ G I R 245 menn sér á ýmsa lund. Sumir lásu, aðrir spiluðu og þá aðallega poker upp á pen- inga. Þá var liarmonikkan tekin fram og spilað livað af tók og sungið undir. Hljóm- aði söngurinn einkennilega á stundum, þegar sungið var á 4—6 tungumálum í senn. Ýmsir leikir og íþróttir voru einnig iðkaðar. Boks-hanzkar voru geymdir í kolastíunum á sumum skipunum, og voru þeir teknir upp þegar ekki var verið við veiðar. Þeir voru eðlilega kolsvartir, og var það föst regla, að menn færu í drif- livítar skyrlur, áður en hyrjað væri að herjast með þeim. Þótti þetta hinn hressi- legasli leikur. Að leikslokum var fyrst og fremst horft á skvrturnar, þær gáfu til kynna livernig mönnum hafði tekizt að verjast höggunum. Þótt hlé væri á veið- um, léku menn sér ekki allar stundir, þvi að margt þurfti að gera. Fiskurinn var umstaflaður, lóðir settar upp og þær gömlu „yfirhalaðar“, eins og sjómenn orða það, o. m. fl. var gert, sem ekki mátti liggja í láginni. Skipverjar voru af ýmsum þjóðum, l. d. Frakkar, Skotar, Skandinavar o. s. frv. Á einu skipinu, sem Þórðui* Sigurðsson var á, voru t. d. menn af niu þjóðum. Sumir þessara manna voru vertið eftir vertíð, en aðrir komu liingað aðeins í eitt skipti. Samliúð skipverja var yfirleitt hin ákjósanlegasta, þegar á það var lilið, að þeir voru sprottnir upp af liinum fjar- skyldustu grösum, og höfðu margir siglt heimsendanna á milli. Það har vitanlega við, að niönhum sinnaðist, og það jafn- vel úti á sjó. En sú deila var aldrei leidd til lykta þar. En þegar í land var komið slógust deiluaðilar upp á líf og dauða, en sá, sem geklc með sigur af hólmi, varð að muna eftir þeirri drengilegu Íeiksreglu, að slá ekki mótstöðumann sinn eftir að hann liafði komið honum undir. Jafnan var haldið inn á Þingejæi liálfs- mánaðarlega, til þess að sækja vatn og mat. Hákarlslifrin var þá seld í Grams- verzlun og oftast tekið vín og peningar í staðinn. Hefi ég heyrt verzlunarmann einn, sem þá starfaði þar, segja frá því, að ekki liafi verið vandalaust að hlanda mjöðinn, því að þeir erlendu voru ýmsu vanir og létu sér ekki á sama standa, hvað að þeim var rétt. Fyrir lifrarpeningana voru haldnir dansleikir og ekkert tilspar- að, að menn skemmtu sér sem bezt. Þannig leið sumarið. Skip þau, sem ó- farin voru í september, hættu þá veiðum og bjuggust utan frá Þingeyri. Margir vildu eiga kaup við Ameríkana í vertíðar- lokin, því að þeir þóttu sanngjarnir í við- skiptum. Mátli fá iijá þeirn mikið af not- uðum veiðarfærum fyrir lítinn pening og ýmiskonar matvæli, sem afgangs urðu frá sumrinu, jafnvel doríurnar voru seldar fyrir gjafverð. Að viðskiplunum loknum og nauðsynlegum undirbúningi héldu Ameríkanar til hafs og með þeim fóru oft utan Dýrfirðingar og menn annarsstaðar að, sumir til þess að nema land, en aðrir til þess að sjá sig um í hinni fjarlægu álfu. Minnsta kosti tveir íslendingar, sem upphaflega liöfðu farið utan með „Kön- um“ og búsettir voru vestra, stunduðu veiðar með þeim hér við land í mörg ár. Undir aldamótin fækkaði amcríkönsku lúðuveiðurunum mjög ört, sem hér stund- uðu veiðar, vegna þess, að afli brást að meira eða minna leyti. Og árið 1898 var svo komið, að ekki voru hér við land við flyðruveiðar, nema 2 eða 3 ameríkanskar skonnortur og auk þess íslenzka skipið „Capella“, sem Gram hafði þá nýverið keypt frá Noregi. Skipin öfluðu öll mjög illa um sumarið, og þar með lauk þessum þætti í sögu fiskveiðanna við Island. Heimildarmenn mínir að þessum frá- sögnum eru þeir Guðmundur Kristjáns- son, útgerðarmaður í Keflavík, og Þórður

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.