Ægir

Árgangur

Ægir - 01.11.1939, Blaðsíða 6

Ægir - 01.11.1939, Blaðsíða 6
240 Æ G I ft Þessmn ameríkönsku skonnortum var svo vel við haldið, að þau báru af öll- um skipum, er þá stunduðu veiðar hér við land. Svo segja mér fróðir menn, er víða liafa komið, að hvergi hafi þeir séð snyrtilegri umgengni i fiskiskipum sem þar. Hingað til lands komu fyrstu skonn- orturnar ekki fyrr en um miðjan marz ár hvert. Þær voru mjög misjafnlega lengi á leiðinni, og fór það vitanlega allt eftir því, livernig veður þær hrepptu. Stundum voru þær ótrúlega fljótar i ferðum. Þess er t. d. getið um eiít skip- ið, að það fór 3 ár í röð á IOV2 sólar- liring frá Glouchester til Þingeyrar. Það er auðsýnt, að skip þetta hefir fengið liraðbyri; en ef vegalengdin er horin saman við tímalengdina, verður það augljóst, að skip þessi liafa þolað all mikla siglingu. Bækistöð sína hér á landi liafði lúðu- veiðaflotinn á Þingeyri i Dýrafirði, og liéll hann að jafnaði beint þangað frá Ameríku. Sama árið og Ainerikumenn hefja hér veiðar, er Cliristian Gram, kaupm. á Þingeyri, viðurkenndur konsúll fyrir Bandaríkin, og stendur það eflaust að einhverju leyti í sambandi við útgerð Ameríkumanna hér við land. Grams- verzlun sá alla tíð um allt það, er að þessari útgerð laut hér á landi, og þótti Vendel, er þá var verzlunarstjóri þar, úrræðagóður og' skjótvirkur, þegar ein- hvers þurfti með, og var hjálpsemi lians, jafnt við íslenzka sem erlenda, er at- vinnu höfðu á þessum skipum, mjög rómuð. Fvrst þegar skipin komu til Þingeyr- ar á ári hverju, létu þau á land til geymslu mikið af ýmis konar varningi, svo sem: kol, salt, veiðarfæri og mat- væli. Saltið, sem flutt var í land, var allt geymt í tunnum. Skipstjórarnir á skipum þessum fluttu einnig talsvert af sjóverjum og gúmmístígvélum hingað til lands. Varningur þessi var einkum ætlað- ur skipverjum, en nokkuð af honum var þó cinnig selt landsmönnum. Gúnnní- slígvél voru þá seld á 13—14 krónur. Mér er sagt, að Ameríkanar séu þeir fyrstu, sem flytja gúmmístígvél liingað til lands. Sjómönnum þótti mikið í milli sjá, livað þau voru betri og þægilegri en skinnsokkarnir og leðurstígvélin, sem þeir liöfðu áður átt að venjast. Reyndu flestir sjómenn vestra, allt hvað þeir gátu að ná sér í slík stígvél, og varð það til þess, að Ameríkanar juku innflutn- ing sinn á þeim með ári hverju. Þegar lokið var við að láta þann varning í land, sem geyma átti, taka vatn og ráða íslenzka skipverja, var lagl á veiðar. Á öllum skipunum var

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.