Ægir

Árgangur

Ægir - 01.11.1939, Blaðsíða 13

Ægir - 01.11.1939, Blaðsíða 13
Æ G I R 247 hægt að sjá, hvað mikið er notað af hverri tegund árlega, en verðmæti þeirra veiðarfæra, sem útgerðar- og fiskimenn liöfðu undir liöndum árið 1937, reiknað- ist að vera 39,7 millj. króna, og var það 2,1 millj. kr. meira en 1936, en 18,6 millj. kr. meiira en 1913. Norðmenn hafa um langt skeið fram- leitt mjög mikið af niðursoðnu fiskmcti og eiga því fjölmargar verksmiðjur, sem þeir nota við þá framleiðslu. Árið 1936 voru starfræktar í Noregi 191 niðursuðu- verksmiðja fyrir fiskmeti, og var leyst af liendi í þeim 11 832 þús. klukkustunda starf. Árið 1937 minnkaði starfið í niður- suðuiðnaðinum um 228 þús. stundir. Langflestar verksmiðjurnar eru i Roga- landsfylki, en þar eru 86. — Síldarverk- smiðjur voru 52, en fiskimjöls- og guanoverksmiðjur 19. Gufulýsisbræðslur voru 755, og eru flestar þeirra í Norður- Noregi, eða á þeim slóðum, þar sem þorskveiðarnar eru aðallega stundaðar. — Fiskþurrkhús, þar sem eingöngu er þurrkað með vélum, eru talin 68, og eru langflest þeirra, eða 59, í Mæri- og Roms- dalsfylki. Ishús eru 790, en frystihús 67, og eru þau þó ekki öll úthúin mcð vélum, heldur er frvst þar með saltís- blöndu. Heildarafli Norðmanna árið 1937 var 904 þús. smál. og var það álíka mikið og meðalaflinn hafði vcrið undanfarin 10 ár. Fyrir þennan afla fengu útgerðar- nienn og fiskimenn 92,3 millj. kr. Auk þess er talið að fiskimannastéttin hafi notað fisk fyrir 2,6 millj. kr. Heildar- verðmætið fellur aðallega á tvo liði, síld og þorsk, og var samanlagt verðmæti þess þetta ár 66,9% af heildarverðmæt- iriu. Þorskurinn gerði 34,1% og síldin 32,8%. Annars leikur nú orðið á ýmsu nieð það, livort hærra er heildarverðmæti þorsks eða síldar. Þetta ár stunduðu 82 skip selveiðar og voru þau með 1 206 manna áhöfn. Við Grænland fiskuðu þeir alls 66 385 seli. Fyrir selafurðir fengust 2,6 millj. kr. Hvalveiðar stunduðu þeir frá 4 lands- stöðvum á norðvesturströnd Noregs og 15 fljótandi livalveiðaverksmiðjum, og voru 14 þeirra í suðurhöfum. í norður- höfum veiddu þeir 606 hvali og fengu úr þeim 19 329 tn. af hvalolíu, en í suðui'- höfuni veiddu þeir 15 943 livali og varð olían úr þeim alls 1 191 772 tn. Heildar- verðmæti Norðmanna fyrir hvalafurðir þclta ár nam 81 700 þús. kr. Útflutningsverðmæti allra sjávaraf- urða Norðmanna nam árið 1937 159 millj. kr., og var það um 19 31% af lieild- arútflutningsverðmætinu. Reglugerð um fiskimat í Newfoundlandi. Auglýsing. Samkvæmt ákvæðum í grein 7 og 8 í lög- um frá 1936—1938 um Fiskimálanefnd fyrir Newfoundland hefir landsstjóranum i samráði við stjórnarnefndina, þóknazt að setja eftir- farandi reglugerð. St. John’s, 25. ágúst, 1939. W. J. Carew. 1. í þessari reglugerð skal a) Þurrkaður saltþorskur ná yfir allan satt- aðan þorsk, algerlega þurrkaðan, eða þurrk- aðan að nokkru leyti, hvort heldur á eðlilegan hált eða með vélum, en ekki yfir lausan salt- fisk eða fisk, sem hefir verið tekinn úr laus- um saltfiski, þveginn og pressaður, en ekki þurrkaður með neinni þurrkunaraðferð. h) „Fiskimatsmaður“ þýða matsmaður, er hefir verið löggiltur og eiðsvarinn samkvæmt hverjum þeim lögum þaraðlútandi, sem í gildi kunna að vera á þeim tíma. c) „Sala“ þýða sala á einhverju magni af þurrkuðum, söltum þorski, er ekki vegi minna en tvö (juintals (quintal, 50,8 kg.)

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.