Ægir - 01.12.1959, Blaðsíða 3
ÆGIR
RIT FISKIFÉLAGS ÍSLANDS
527árgangur. Reykjavík, 1. desember 1959_Nr. 21.
IbauÚ Ö(afiion, M imálaitjóri:
Ráöstefnan í Genf um réttarreglur á hafinu
Um reglur á úthafinu.
I annarri nefnd ráðstefnunnar var f jall-
að um þann hluta tillagna þjóðréttarnefnd-
arinnar, sem snerti reglur á úthafinu, en
eins og segir í tillögunum, merkir ,,út-
hafið“ þá hluta hafsins, sem landhelgin
nær ekki yfir.
Það fellur ekki innan ramma þessa
greinaflokks að segja ítarlega frá tillög-
um þessum eða afgreiðslu þeirra á ráð-
stefnunni, þar sem það snertir ekki sér-
staklega ísland eða íslenzka hagsmuni. Er
þar um að ræða almenn ákvæði um frelsi
á úthöfunum um stöðu kaupskipa, um ferð-
ir herskipa, öryggisreglur í siglingum,
þrælasölu, sjórán, óhreinkun sjávarins og
um réttindi til að elta skip, sem grunuð
eru um brot á lögum strandríkja.
Raunverulega var það einungis síðast-
talda atriðið, sem verulegu máli skipti
fyrir okkur, enda lét íslenzka nefndin af-
greiðslu þess til sín taka.
1 47. gr. tillagna Þjóðréttarnefndarinn-
ar segir svo um réttinn til að elta skip:
„1. Elta má erlent skip ef viðkomandi
yfirvöld strandríkisins hafa gilda
ástæðu til að ætla, að skipið hafi brot-
ið lög og reglur ríkisins. Hefja má
eftirför ef hið erlenda skip er inn-
an grunnlína eða í landhelgi strand-
ríkisins og halda má henni áfram
utan landhelginnar einungis ef hún
hefur verið óslitin. Ekki er nauðsyn-
legt, þegar hið erlenda skip fær stöðv-
unarmerkið innan landhelgi, að skip-
ið, sem gefur stöðvunarmerki sé
einnig innan landhelginnar.
Ef hið erlenda skip er innan við-
bótarbeltis, samkvæmt 66. gr. má eft-
irför hefjast aðeins ef um er að ræða
brot á réttindum, sem ákveðin voru
fyrir viðbótarbeltið.
2. Rétturinn til eftirfarar nær aðeins
til þess er skipið, sem veitt er eftir-
för fer inn í landhelgi eigin ríkis eða
þriðja ríkis.
3. Eftirför er ekki talin hafa hafizt
nema skipið, sem hana veitir hafi
fullvissað sig um það með mælitækj-
um, að skipið sem veitt er eftirför,
eða bátur frá því sé innan landhelg-
innar eða viðbótarbeltisins. Eftirför
má aðeins hefjast eftir að gefið hef-
ur verið sjáanlegt eða heyranlegt
stöðvunarmerki í fjarlægð, sem ger-
ir mögulegt að sjá það eða heyra frá
hinu erlenda skipi.
4. Rétturinn til eftirfarar nær aðeins