Ægir

Árgangur

Ægir - 01.12.1959, Síða 6

Ægir - 01.12.1959, Síða 6
396 ÆGIR send Allsherjarþingi SÞ, sem kom saman haustið 1958, var á þessa leið: „Ráðstefna Sameinuðu þjóðanna um réttarreglur á hafinu hefir, á grund- velli skýrslu Þjóðréttarnefndarinnar, gert samninga varðandi réttarreglur um fiskveiðar og verndun lífrænna auð- æfa úthafsins, rannsókn og nýtingu náttúruauðæfa landgrunnsins og önnur atriði snertandi réttarreglur á úthaf- inu og frjálsan aðgang að sjó fyrir lönd, sem ekki liggja að sjó, hefir ekki tekist að ná samkomulagi um víðáttu landhelginnar og ýmis önnur atriði, sem rædd hafa verið í sambandi við það, telur æskilegt, að frekari tilraunir verði gerðar þegar hentugt þykir til þess að ná samkomulagi um atriði, varðandi réttarreglur á hafinu, sem ekki hefir tekist nú, samþykkir að biðja Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna að taka til athug- unar á þrettánda þingi sínu, árið 1958, hvort ráðlegt sé að kveða saman aðra alþjóðaráðstefnu stjórnarfulltrúa með fullu umboði til þess að taka upp til frekari athugunar þau atriði, sem ekki tókst að leysa á þessari ráðstefnu“. Með samþykkt þessarar tillögu var ráð- stefnunni raunverulega lokið. Mun hún vafalaust verða talin ein hin merkileg- asta ráðstefna, sem haldin hefir verið á vegum SÞ, bæði fyrir það, sem henni tókst að leysa og einnig fyrir hitt, sem henni tókst ekki að leysa. Ráðstefnunni tókst að leysa mikinn fjölda vandamála varðandi réttarreglur á hafinu, eins og lýst hefir verið. I mörg- um atriðum var um að ræða að festa reglur, sem til höfðu orðið í tímans rás, en einnig voru myndaðar ýmsar nýjar reglur, sem vafalaust eiga eftir að marka spor á þessu sviði alþjóðasamskifta. Hinsvegar tókst ekki að leysa það vanda- málið, sem mönnum fannst mestu skifta, en það var að setja reglur um víðáttu landhelginnar og fiskveiðilögsögunnar. Hér var um að ræða atriði, sem aldrei hefir tekist að setja neinar viðurkenndar reglur um. Frá lokum síðustu styrjaldar hefir orðið ör þróun í þessum málum og má segja, að hver atburðurinn hafi rekið annan. Öll hefir sú þróun gengið í þá átt, að auka víðáttu landhelginnar og vandamál fiskveiðilögsögunnar hefir auk þess orðið sífellt fyrirferðarmeira. Þessi ráðstefna hefði vafalaust getað markað tímamót, ef henni hefði tekist að ná samkomulagi um þessi atriði á þann hátt, að allir hefðu getað við unað. Því var ekki að heilsa. Þau ríki, sem um lang- an aldur hafa aðhyllst þriggja mílna land- helgi og reynt árangurslaust að fá alþjóð- lega viðurkenningu á þeirri víðáttu, sýndu fyrst framan af ráðstefnunni full- komið skilningsleysi á þeirri þróun, sem orðið hefir í heiminum undanfarna ára- tugi. Þegar þeim varð ljóst, að þriggja mílna reglan var með öllu úr sögunni i'eyndu þær svo að þvæla málið með því, sem þær nefndu málamiðlunartillögur, en sem raunverulega gátu aldrei haft neina von um að ná samþykki, þar sem þær voru víðsfjarri því að taka nokkurt tillit til hins raunverulega ástands. Segja má því, að þessi ráðstefna hafi skilið við þessi mál í algeru öngþveiti. Ný ráðstefna hefir nú verið kvödd sam- an, í marz 1960, og á hún að fjalla um þau atriði, sem hin fyrri skyldi eftir ó- leyst. Þau tvö ár, sem liðin eru frá hinni fyrri ráðstefnu, verða þó ekki aftur tek- in, né sú þróun, sem átt hefir sér stað á þessum tíma. Ný vandamál hafa risið, sem krefjast úrlausnar, og öll hníga þau í þá átt að útilokað verður að teljast, að nokkurt samkomulag geti fengist um minna en tólf mílna fiskveiðilögsögu sem lágmark og það án allra talanarkana.

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.