Ægir - 01.12.1959, Page 9
ÆGIR
399
eru niður allar vörur úr hampi og bóm-
ull. Af innfluttum fiskinetum úr þessum
efnum er 5% innflutningstollur. Norð-
menn hafa ríkiseinkasölu á innfluttum
veiðarfærum og virðist hlutverk hennar,
að sjá um, að innflutningurinn lami ekki
starfsemi innlenda iðnaðarins, enda er
mjög lítill innflutningur tilbúinna vara.
Þannig telja Norðmenn sig ekki hafa
efni á því að láta atvinnumöguleika veið-
arfæraiðnaðarins ónotaða. Hafa þeir samt
margskonar stóriðnrekstur og fjölþættara
atvinnulíf en við.
Nú munu uppi ráðagerðir um að flytja
í vaxandi mæli inn veiðarfæri fullbúin
til notkunar (uppsett), á lággengi þess
innflutnings, frá Japan. Verður í því
sambandi að athuga þjóðhagslegt gildi
vinnunnar við uppsetningu veiðarfær-
anna.
Auk verksmiðj uiðnaðarins vinna árlega
um 400 manns að meira eða rninna leyti
við netahnýtingu hjá stærstu netagerð
landsins. Liggja ekki fyrir skýrslur um
hve margt fólk á öllu landinu tekui þátt
í nefndri vinnu, en líkur benda til, að
ekki minna en 2000 manns taki þátt í
henni, sem aðalvinnu eða ígripavinnu
vetrarmánuðina.
Þessi vinna er mjög hagstæð fyrir
þjóðarbúið, því að hér er um heimilisiðn-
að í skammdeginu að ræða, sem nýtist
fyrir útflutningsframleiðsluna. Hana
stunda að mestu gamalt fólk, öryrkjar,
sjúklingar og duglegar húsmæður, sem
komast ekki frá heimilum sínum til ann-
arrar vinnu. Á sumrin dreifist nefnt
vinnuafl á hagkvæman hátt til atvinnu-
vega þess árstíma.
Hér þarf að meta raunverulega þjóðar-
hagsmuni, en standa á verði fyrir annar-
legum tímabundnum stundarhagsmunum.
Vinna þessa fólks er einn þáttur í fisk-
veiðunum, og við eigum ekki að láta hana
af hendi frekar en fiskveiðarnar sjálfar.
Lega landsins, mikilvægi fiskveiðanna,
orka fallvatnanna, sem þegar er búið að
beizla, duglegt, fjölhæft iðnverkafólk
ásamt tækni nútímans, skapa sameigin-
lega ákjósanleg skilyrði fyrir veiðarfæra-
iðnað. Á gengi útflutningsframleiðslunn-
ar og með jafnrétti í skattaálagningu við
hverskonar rekstursform mun hann geta
keppt við frjálsan innflutning og verið
samkeppnisfær við iðnað vestrænna
þjóða. En það er álitamál, hvort ekki á að
fara að dæmi Norðmanna og greiða þjóð-
hollum útgerðarmönnum, sem kaupa held-
ur innlenda framleiðslu, þegar hún er á
sama verði og útlend, niður innlend veið-
arfæri. Fyrst vel efnuð þjóð grípur til
slíkra ráða til að hamla á móti sérhags-
munum innflutningsverzlunarinnar, sem
nýtast lítið fyrir þjóðarbúið, því skyldi
ekki fátæk þjóð, sem á við gjaldeyriserf-
iðleika að stríða, framkvæma hliðstæðar
ráðstafanir ?
frá Netaverksmiðju
ERICH SCHROEDER & Co.,
___ HAMBORG OG REINHEIM, Þýzkalandi,
eru beztu og veiðnustu netin. Undanfarin ár hafa ýms hæstu síldveiðiskipin veitt í
SCHROEDER herpinætur og reknet.
Sendið pantanir tímanlega til okkar eða netagerðarmanna.
Einkaumboðsmenn: V. Sigurðsson & Snœbjörnsson h.f.