Ægir

Árgangur

Ægir - 01.12.1959, Síða 14

Ægir - 01.12.1959, Síða 14
404 ÆGIR Fœreyjar '3. mynd: Aldurs- og lengdardreifiug ufsa við Island og Færcyjar árið 1959. sjónum, en vöxtur þessara sömu árganga var þar óvenju hægur. Rannsóknir undanfarinna ára við ís- land hafa sýnt ýmsar breytingar á göng- um ufsans á því svæði. T. d. hvarf ár- gangurinn frá 1945 alveg frá íslandi í nokkur ár; árið 1956 hvarf aftur mikið af stórufsa frá íslandi, samtímis því sem stórufsaveiði við Færeyjar jókst skyndi- lega. Ufsi sá, sem þar veiddist hafði öll einkenni íslenzka ufsans. Að lokum má minna á hinar miklu göngur ufsa frá Noregi til íslands síðan árið 1957. Rann- sóknir á ufsanum við Færeyjar sýna, að stofninn þar samanstendur af fiski af færeyskum, norskum og íslenzkum upp- runa, sérstaklega hafa norsku árgang- arnir frá 1949—51 verið áberandi. Einn- ig lítur út fyrir, að nýjar göngur frá ís- landi til Færeyj a hafi átt sér stað á þessu ári. 3. mynd sýnir aldurs- og lengdardreif- ingu ufsans við ísland og Færeyjar árið 1959. Við Island eru árgangamir frá 1949—51 sérstaklega áberandi. Árgang- arnir frá 1954 og 1955 létu einnig að sér kveða við norðvestur- ströndina, en lítið var af þeim við suðaustur- ströndina. í júlí virðist allmikið af árgöngunum frá 1949—51 hafa yfir- gefið svæðið út af suð- austur Islandi, því í seinnihluta júlí hófst mjög óvænt ufsaveiði á Island-Færeyja hryggn- um. Þessari veiði lauk í ágúst jafn skyndilega og hún byrjaði. Samtímis þessu byrjaði ufsaveiði við Færeyjar í ágúst, og er það mun fyrr en venja er til. Rannsóknir á ald- urs- og lengdardreifingu, gerð kvarnanna og vaxt- arhraða sýna, að hér var íslenzkur ufsi á ferð- inni. Rannsóknir „Anton Dohrn“ hafa sýnt, að kaldur botnsjór flæðir yfir Island- Færeyja hrygginn, og er hugsanlegt, að útbreiðsla og magn fisktegunda á þessu svæði standi í nánu sambandi við styrk- leika þessa straums. Ekki er ennþá vitað hvað hafi orsakað göngur þær, sem hér hefur verið minnzt á. Ef til vill er orsakarinnar að leita í lægra hitastigi eins og í Barentshafi síð- an 1956 eða í mjög hagstæðum fæðuskil- yrðum svo sem við vesturströnd Noregs undanfarin ár. Hver svo sem orsökin kann að vera, þá hafa göngur þessar gert mjög erfitt fyrir um alla útreikninga á stærð hinna einstöku ufsastofna í Norð- ur-Atlantshafi. Nánari skilningur á hcgðun ufsans á á þessu sva'ði fæst ekki ncma tvö eða fleiri rannsóknarskip vinni samtímis að rannsóknum þessum, og væri mjög æski- legt að slík samvinna gæti hafizt hið bráðasta.

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.