Ægir - 01.12.1959, Page 15
ÆGIR
405
Fundurinn í Edinborg um fiskveiðiskýrslur
Dagana 22.—30. sept. hittust fulltrúar
14 landa, sem hagsmuna hafa að gæta í
sambandi við fiskveiðar í Norður-Atlants-
hafinu í Edinborg. Þessi lönd voru:
Bandaríkin, Belgía, Bretland, Danmörk,
Frakkland, Holland, írland, Island, Kan-
ada, Noregur, Pólland, Sovétríkin, Spánn
og Þýzkaland.
Fundur þessi var haldinn að tilhlutan
Matvælastofnunar Sameinuðu þjóðanna
(FAO) í samráði við Alþjóðahafrannsókna-
ráðið (ICES) og Rannsóknarráð Norð-
vesturatlantshafsins (ICNAF), og mættu
fulltrúar allra þessara stofnana á fund-
inum; má geta þess hér, að fulltrúi^Al-
þjóðahafrannsóknaráðsins var dr. Árni
Friðrikss. Frá Islandi mætti Már Elísson.
Nauðsyn á góðum upplýsingum um fisk-
veiðar, hagnýtingu og sölu aflans, hefur
löngum verið viðurkennd af opinberum
aðilum jafnt sem einkafyrirtækjum og
samtökum þeirra. Þessar innanlandsþarf-
ir, ef svo mætti kalla þær, eru margvísleg-
ar, allt frá upplýsingum sem að haldi koma
vegna útreikninga þjóðartekna, til upp-
lýsinga í sambandi við markaðsmál — til
handa fiskifræðingum og öðrum vísinda-
mönnum er sinna haf- og fiskifræðum.
Með vexti og viðgangi alþjóðlegrar sam-
vinnu á ýmsum sviðum fær þessi hag-
skýrslustarfsemi jafnframt alþjóðleg ein-
kenni, og þannig þurfa samtök þjóða um
efnahagsmál á vissum upplýsingum að
halda, og einnig samvinna vísindamanna
um rannsóknir á sjónum og sjávardýrum.
Má því segja, að langt sé síðan að nauð-
syn á samræmdri alþjóðlegri skýrslugerð
á þessum sviðum varð aðkallandi.
I þeim tilgangi var haldinn alþjóðleg-
ur fundur á vegum FAO um fiskveiði-
skýrslur — söfnun þeirra og útgáfu —
í Kaupmannahöfn á árinu 1952. Þar sem
þar var um fyrstu ráðstefnu sinnar teg-
undar að ræða, var starf hennar að mestu
fólgið í umræðum almenns eðlis og hvernig
haga bæri undirbúningi þess að færa
skýrslur hinna ýmsu þjóða til alþjóða-
stofnana í hentugt form.
Ofannefndur fundur í Edinborg gat á
hinn bóginn einbeitt umræðum og störf-
um ýmissa nefnda, sem settar voru á
stofn, að sérstökum vandamálum og bent
á leiðir til úrlausnar. Þetta verður bezt
skýrt með því að minnast á þau helztu
verkefni, sem fyrir fundinum lágu. —
I fyrsta lagi var reynt að skilgreina þarf-
ir hinna ýmsu aðila (ríkisstjórna, hag-
fræðinga, fiskifræðinga, kaupsýslumanna
og alþjóðstofnana). — I öðru lagi var rætt
um þá erfiðleika, sem við er að etja í sam-
bandi við fullnægingu þessara þarfa. —
I þriðja lagi að leggja til á hvern hátt
megi draga úr þessum erfiðleikum með
því að samræma störfin o. fl. Og í fjórða
lagi hvernig auka megi og bæta þessa
þjónustu.
Bráðlega er von á skýrslu um störf
fundarins og verða þau þess vegna ekki
rakin frekar hér. Verða eintök af þeirri
skýrslu send til viðkomandi ríkisstjórna.
MARKAÐSMÁL |
1——----------— --------------—j
Norsk sölumiðstöö í London.
Til þess að aðstoða norska útflytjeudur
á brezka markaðinum, hefur útflutnings-
ráðið norska sett upp eigin bækistöð í
London.
I tengslum við þessa skrifstofu ráðsins
hefur verið innréttað smekklegt sýningar-
herbergi, þar sem norsk fyrirtæki og
brezkir umboðsmenn þeirra geta sett upp,
smáar vörusýningar og jafnframt boðið
til sín viðskiptavinum. — Allar innrétt-
ingar eru að sjálfsögðu norskar. — Marg-
ir norskir útflytjendur m. a. á matvælum
hafa notfært sér þá möguleika, sem þetta
fyrirkomulag býður og þykjast hafa haft
af því góða raun. — Húsnæðið stendur
útflytjendum til boða endurgjaldslaust, —