Ægir

Volume

Ægir - 15.12.1964, Page 6

Ægir - 15.12.1964, Page 6
ÆGIR 392 lenzku togararnir nú yfirleitt að greiða 4.5% toll af söluverðmætinu til áramóta, en 11.5% frá 1. janúar n.k. Þetta er að sjálfsögðu talsverð tekjuskerðing bæði fyrir útgerð og skipshöfn. Annað, sem leiða mun til skerðingar á möguleikum íslendinga til að landa ís- fiski í Þýzkalandi er það, að nýlega hefur verið samið við Færeyinga um að þeir megi landa allt að 8000 tonnum af fiski í Þýzkalandi mánuðina desember 1964 til febrúar 1965, öðrum en karfa og síld. Mikið hefur verið rætt um aflarýrnun togaranna að undanförnu. En hversu mikil er hún? Fyrir tíu árum fiskuðu tog- ararnir 42—43 % af heildarafla lands- manna að síld meðtalinni, eða 170 þús. lestir af 400 þús. lestum sl.m.h. Ef sama hlutfall ríkti nú, ætti hlutdeild þeirra í heildaraflanum að vera um 330 þús. lestir ósl., en er aðeins um 72 þús. lestir miðað við 1963. Að vísu hefur bátaflotinn auk- izt mun meira en togaraflotinn, en vart hefur bátum fjölgað, heldur eru þeir miklu stærri og betur útbúnir en áður og því öflugri veiðitæki en fyrrum. Hinsveg- ar hefur togaraflotanum líka bætzt nokk- ur ný, afkastamikil skip á sama tíma, en jafnframt hafa nokkuð margir togarar helzt úr lestinni. BRUMTOIMS (IULSSELBLRGH) LTD., Uusselburgh, Skotl. Viðurkenndasta verksmiðja Bretlands í framleiðslu allskonar stálvíra. Á því sviði hafa BRUNTONS rutt brautina með allskonar nýjungum, til dæmis 1925, er þeir hófu framleiðslu á yfirspunnum vír, „BEACON PRELAY PREFORMED“. Hér á landi er það fyrst og fremst sjávarútvegur- inn, sem notað hefur BRUNTONS stálvíra. Það er því fróðlegt að geta þess, að mestu hengibrýr lands- ins til þessa, Skjálfandafljótsbrúin í Bárðardal (112 metra haf )’ og Hvít- árbrúin hjá Iðu (109 metra haf)', hafa eingöngu BRUNTONS burðarvíra. Einkaumboðsmenn: V. Sigurðsson & Snæbjörnsson hf. Þrátt fyrir þetta er augljóst, hversu aflabrögðum togaranna hefur hrakað stórkostlega á þessu tímabili. Jafnvel þó við miðuðum við, að togaraflotinn ætti aðeins að veiða um helming af sinni fyrri hlutdeild yrði það um 165 þús. lestir, en raunverulegur afli þeirra er aðeins um 70 þúsund lestir. Söluferðir vélbáta. Þrír bátar seldu 135.516 kg. af ísfiski í Þýzkalandi fyrir DM 125.122.21 og fengu því að meðaltali kr. 9.98 pr. kg. í Bretlandi seldu hinsvegar 4 bátar 122.941 kg. fyrir £ 12.911-10-6 og fengu því jafn- aðarverðið kr. 12.55 kg. Allir seldu þeir í Grimsby. Sala á kassafiski. 1 haust flutti Fiskhöllin út með Gull- fossi þrjár sendingar af kassafiski, sam- tals 16.018 kg., sem selt var í Aberdeen fyrir £ 1.346-16-0 og fékkst því kr. 10.05 brútto að meðaltali fyrir kg.

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.