Ægir - 01.02.1974, Blaðsíða 6
En burt séð frá þessu, og í samræmi við
gamla hefð, mun ég í þessari greinargerð að-
eins ræða um útgerð og afkomu hinna stærri
togara.
Sú mikla tæknilega breyting, sem rætt er
hér um að framan, hefir sagt mjög til sín
innan vébanda F. í. B. Eins og kunnugt er,
eignuðust íslendingar engan nýjan, stóran tog-
ara frá árinu 1960 til ársins 1972. Árið 1960
voru togarar alls 47, en vegna gífurlegs afla-
samdráttar, sem þá þegar var farinn að segja
til sín, og fór vaxandi næstu árin, fækkaði
togurum í rekstri mjög ört, og voru þeir orðn-
ir aðeins 22 í árslok 1966. Voru það allt síðu-
togarar, ýmist dieselskip eða gufuskip. Þessi
tala hélzt fram á árið 1972, er aflarýrnun,
dýrtíð og e. t. v. ekki sízt hár aldur margra
togara tók að segja til sín, en þó mest á ár-
inu 1973, er þessum eldri togurum fækkaði
mjög mikið.
Nú um áramótin voru gerðir út aðeins 6
gufutogarar, og að auki lá einn í prýðilegu
standi, sem hægt væri að gera út áfram, ef
hægt væri að leysa mannaflavandamál hans.
Hætt er útgerð allra elztu dieseltogaranna, en
5 hinna nýrri eru enn gerðir út, ágæt skip, sem
vafalaust eiga enn langa útgerðarsögu fyrir
höndum. Einum hinna nýrri dieselskipa, b/v
Sigurði, er nú verið að breyta í nótarveiðiskip
og er allt óráðið enn, hvort togveiðar verða
stundaðar á honum í framtíðinni.
Þannig er nú aðeins 11 af hinum eldri tog-
urum haldið út til togveiða. Enn er óvíst um
framhald á útgerð gufutogaranna, en þó er
vitað að a. m. k. einum verður lagt nú í jan-
úar.
í stað hinna eldri togara hafa þegar komið
9 skuttogarar, ef b/v Sólbakur á Akureyri er
talinn með. Af þeim eru 5 nýsmíðaðir fyrir
íslendinga, en 4 keyptir notaðir, en þó nýlegir.
Enn eru ókomnir til landsins 8 nýir skuttog-
arar af stærri gerð, 5 smíðaðir í Póllandi og
3 á Spáni. Hinn fyrsti mun koma núna í febrú-
armánuði, en hinir síðan hver af öðrum, flestir
fyrir mitt ár. Verða þá skuttogarar innan F.
í. B. 17, ef Sólbakur er talinn með, en
hann er innan við 500 brúttó rúmlestir, og
ætti því að teljast með hinum minni skuttog-
urum. í framhaldi af þessu má svo geta þess,
að keyptir hafa verið eða samið um smíði á
27 minni skuttogurum auk nokkurra, sem
keyptir hafa verið notaðir, en nýlegir. Þegar
allt er meðtalið verða skuttogarar alls um 50
talsins.
Ef litið er á rekstur s. 1. árs kemur í ljós,
að afkoma bæði síðutogara og skuttogara hef-
ir verið mjög slæm. Aflabrögð miðuð við sókn
hafa enn dregizt saman fjórða árið í röð. Þann-
ig minnkaði afli á togtíma um tæp 9% frá
árinu á undan. Ber í þessu sambandi að líta
á það, að 1973 eru 4 skuttogarar gerðir út
allt árið og 3 að hluta, og er það miklu hærra
hlutfall en árið á undan. Telja verður að af-
köst skuttogara séu talsvert meiri en síðutog-
ara, bæði vegna stærðar þeirra og tæknibún-
aðar og einnig þess, að auðveldara er að ráða
menn á þessi nýju og fullkomnu skip en þau,
sem eldri eru.
Halli á rekstri allra togaranna hefir reynst
mjög mikill. Ein skýringin er sú, að á árinu
var verkfall frá 22. janúar til 22. marz. Olli
það þungum búsifjum, auk þess sem laun
hækkuðu. Fyrir skuttogara var s. 1. ár að
mestu reynsluár, bæði að því leyti að skips-
hafnir þurftu að þjálfast og að af þurfti að
sníða ýmsa galla og endurbæta sumt af bún-
aði skipanna. Gera menn sér vonir um að
reynslan verði betri að þessu leyti á nýbyrj-
uðu ári. Enn liggja ekki fyrir uppgjör á skip-
unum, en því er spáð, að síðutogararnir tapi
afskriftum, þegar taldar hafa verið til tekna
bætur úr Aflatryggingasjóði, að upphæð um
35 millj. kr., og framlög ríkissjóðs að upp-
hæð 65 millj. kr.
Rekstrartöp skuttogaranna eru að miklum
mun erfiðari viðfangs m. a. vegna þess, að
fram að þessu hefir með öllu verið synjað
fyrir nokkurn opinberan stuðning við þá. Sér-
stök nefnd á vegum sjávarútvegsráðuneytisins
vinnur nú að rannsókn á afkomu skuttogar-
anna og ber að gera tillögur um það, hvernig
þeim skuli skapaður rekstrargrundvöllur.
Störf þessarar nefndar eru töluvert komið
áleiðis, er þetta er ritað, en ekki er tímabært
að skýra frá þeim. Aðeins skal hér látin í ljós
sú von, að nefndin geti bent á úrræði til að
skapa rekstrargrundvöll og að farið verði að
ráðum hennar. Þess er að vænta að sum þau
úrræði geti einnig átt við um hina eldri tog-
ara, sem áfram verða reknir.
í þessu sambandi ber að leggja áherzlu á
nauðsyn þess, að launakjör verði samræmd á
öllum fiskiskipaflotanum.
Nú er verið að semja í fyrsta skipti um
laun sjómanna á hinum minni togurum. Allir
22 — Æ GIR