Ægir - 15.05.1977, Page 20
NÝ FISKISKIP
Björgúlíur EA 312
16. apríl s.l. afhenti Slipp-
stöðin h.f. á Akureyri nýjan
skuttogara, Björgúlf EA 312,
sem er nýsmíði 59 hjá stöð-
inni. Smíði þessa skuttogara
var með þeim hætti að
skrokkur skipsins kom frá
Flekkefjord Slipp & Maskin-
fabrik A/S í Noregi, sem byggt
hefur sjö skuttogara fyrir ís-
lendinga, en smíðinni síðan
lokið hjá Slippstöðinni, inn-
réttingar, niðursetning á
tækjabúnaði, frágangur o.þ.h.
Skuttogari þessi er af lengri
gerðinni frá „Flekkef jord“,
eins og Guðbjörg ÍS og Gyllir
ÍS.
Björgúlfur EA er í eigu
Útgerðarfélags Dalvíkinga
h.f. á Dalvík ,og er þetta ann-
ar skuttogarinn sem fyrirtæk-
ið eignast, en það á fyrir
Björgvin EA 311, sem er
byggður hjá Flekkefjord Slipp
& Maskinfabrik og var afhent-
ur í janúar 1974. Björgúlfur
er byggður eftir sömu teikn-
ingu og Björgvin EA, nema
hvað Björgúlfur er 3.30 m
lengri, en auk þess hafa ver-
ið gerðar ýmsar minniháttar
smíðabreytingar. Skipstjóri á
Björgúlfi EA er Sigurður
Haraldsson og 1. vélstjóri
Sveinn Ríkharðsson. Fram-
kvæmdastjóri útgerðarinnar
er Björgvin Jónsson.
Almenn lýsing:
Skipið er byggt skv. regl-
um Det Norske Veritas í flokki
+ 1A1, Stern Trawler, Ice
C, + MV. Skipið er skuttog-
ari með tveimur þilförum
miili stafna og skutrennu upp
á efra þilfar.
Undir neðra þilfari er skip-
inu skipt með fjórum vatns-
þéttum þverskipsþilum í eft-
irtalin rúm, talið framan frá:
Stafn’nylki fyrir brennsluolíu,
íbúðir framskips, fiskilest,
vélarúm og aftast skutgeymar
fyrir brennsluolíu. Undir íbúð-
um og fiskilest eru botngeym-
ar fyrir brennsluolíu, fersk-
vatn og sjókjölfestu. Aftan við
stafnhylkið eru keðjukassar,
en asdikklefi er fremst i
fiskilest. Fremst í vélarúmi
eru and-veltigeymar frá Ul-
stein.
Á neðra þilfari er fremst
stafnhylki, en þar fyrir aftan
íbúðir. Aftan við íbúðir er
vinnuþilfar með fiskmóttöku
og stýrisvélarrúmi aftast fyr-
ir miðju. Til hliðar við fisk-
móttöku og stýrisvélarrúm
eru verkstæði, vélarreisn og
geymsla.
Framarlega á efra þilfari er
þilfarshús, en til hliðar við það
eru lokaðir gangar fyrir
bobbingarennur. í þilfarshúsi
er íbúð skipstjóra, klefi fyrir
ísvél o.fl. Yfir þilfarshúsi og
göngum er hvalbaksþilfa1’’
sem nær aftur fyrir afturgafl
þilfarshúss. Aftan við þilfars-
hús er togþilfarið. Vörpurenna
kemur í framhaldi af skut-
rennu og greinist í tvær bobb-
ingarennur, sem liggja í göng'
um og ná fram að stefni. Aft'
arlega á togþilfari eru síðU'
hús beggja megin, framantil
hús fyrir vindumótora en aft'
antil skorsteinshús. Yfir aft'
urbrún skutrennu er toggálg1’
en yfir frambrún skutrennu
er bipodmastur sem gengur
niður í skorsteinshús. Aftar'
lega á hvalbaksþilfari er stýr'
ishús skipsins, sem hvílir a
reisn.
Vélabúnaður:
Aðalvél skipsins er Wich-
mann, gerð 7AX, sjö strokka
tvígengisvél með forþjöppu og
eftirkælingu, sem skilar 2100
hö við 375 sn/mín. Vélin teng'
ist gegnum kúplingu skipt1'
skrúfubúnaði frá Wichmann-
Skrúfa skipsins er 4ra blaða
úr ryðfríu stáli, þvermál 205
mm, og utan um hana er
skrúfuhringur.
Framan á aðalvél er deilig11
frá Framo af gerðinni WG-3Á-
Mesta lengd.................. 49.85 m
Lengd milli lóðlína.......... 44.00 m
Breidd ............................ 9.50 m
Dýpt að efra þilfari .............. 6.60 m
Dýpt að neðra þilfari......... 4.35 m
Eiginþyngd ......................... 595 t
Særými (djúprista 4.30 m) ......... 1060 t
Burðargeta (djúprista 4.30 m) .... 465 t
Lestarrými ......................... 438 m3
Brennsluolíugeymar ................. 112 m3
Andveltigeymar (brennsluolía) .. 25 m3
Skiptigeymar (br.olía/sjókjölf.) . . 28 m3
Ferskvatnsgeymar............... 37 m3
Ganghraði (reynslusigling) ........ 13.4 hn
Rúmlestatala ....................... 424 brl
Skipaskrárnúmer ................. 1476
178 — Æ GI R