Ægir - 15.05.1977, Page 22
Loft og síður vinnuþilfars
er einangrað með steinull og
klætt með vatnsþéttum kross-
viði (plasthúðuðum).
Fiskilest:
Fiskilest er 438 að stærð
og er lestin gerð fyrir fisk-
kassa, nema fremsti hluti
hennar sem búinn er upp-
stillingu. Lestin er einangruð
með polyurethan og klædd
með stálplötum. Kæling í lest
er með kælileiðslum í lofti
lestar.
1 lest er færiband til að
flytja fisk og einnig ísdreifi-
kerfi (blásturskerfi). Ein lúga
er á lest (aftarlega) og er að-
gangur að henni um losunar-
lúgu á efra þilfari, aftan við
hvalbak. Fyrir affermingu er
vökvaknúinn losunarkrani.
Vindubúnaður, losunar-
búnaður:
Vindur skipsins eru frá
Brusselle, að undanskilinni
netsjárvindu og kapstan-
vindu. Togvindur eru rafknún-
ar og sömuleiðis kapstan, en
aðrar vindur eru vökvaknún-
ar (háþrýstikerfi).
Nokkuð aftarlega á togþil-
fari, s.b.-megin og b.b.-megin,
eru tvær togvindur (split-
vindur) af gerðinni 2502 S.
Hvor vinda hefur eina tromlu
(445 mm° x 1310 mm° x 1414
mm), sem gefin er upp fyrir
1100 faðma af 3y±" vír. Tog-
átak vindu á miðja tromlu er
7.5 t og tilsvarandi vírahraði
110 m/mín. Hvor vinda er
knúin af 206 ha, 900 sn/mín
Indar jafnstraumsmótor.
Fremst á efra þilfari (í
hvalbak) eru tvær grandara-
vindur af gerðinni HL—5, s.b.-
megin og b.b.-megin. Hvor
vinda er búin einni tromlu
(324 mmox800 mm°x460 mm),
togátak 5 t og tilsvarandi víra-
hraði 42 m/mín. Vindurnar eru
notaðar til að draga inn
grandaravírana og bobbing-
ana fram.
Á hvalbaksþilfari, aftan við
stýrishús, eru tvær hífinga-
vindur af gerðinni L 45 búnar
einni tromlu (356 mm0x61O
mm°x430 mm), togátak 10 t
og tilsvarandi vírahraði 21
m/mín.
Aftast á togþilfari, s.b.-meg-
in og b.b.-megin við skutrennu,
eru tvær hjálparvindur af
gerðinni HL 3. Hvor vinda er
búin útkúplanlegri tromlu
(324 mm°x500 mm°x460 mm)
og kopp, togátak á tóma
tromlu er 3.2 t og tilsvarandi
vírahraði 67 m/mín, Vindur
þessar eru notaðar m.a. til að
losa úr pokanum og þegar
vörpunni er kastað.
Fremst á togþilfari, aftan
við hvalbak er flotvörpuvinda
af gerðinni NTL 8—I með tvö
hraðastig og eftirfarandi
tromlumál: 609 mm°xl700
mmDx3700 mm. Við lægra
hraðastig er togátak á miðja
tromlu (1155 mm°) 12.7 t og
tilsvarandi dráttarhraði 35
m/rnín.
Losunarkrani er frá SKB,
gerð SRW 24—22, og er stað-
settur á s.b.-síðuhúsi. Lyfti-
þungi er 3.8 t við 6.2 m arm-
lengd.
Akkerisvinda er af gerðinni
AL 24 H með tveimur keðju-
skífum og tveimur koppum.
Vindan er staðsett fremst á
efra þilfari. Á hvalbaksþilfari
er rafknúinn kapstan frá O.
Synnes Mek. Verksted, tog-
átak um 2 t.
Netsjárvinda er frá Bratt-
vaag af gerðinni MG 16-62-57,
lágþrýstiknúin ,og er staðsett
á toggálgapalli yfir skut-
rennu. Vindan er með sam-
byggðri dælusamstæðu.
Rafeindatæki, tæki í brú o.fl-
Ratsjár:
Tvær Decca RM 926, 60
sml.
Seguláttaviti:
Lilley & Gillie, spegilátta-
viti í þaki.
Gyroáttaviti:
Microtecnica, gerð Sirius
Sjálfstýring:
Decca 450 G.
Vegmælir:
Ben, gerð Amphitrite.
Miðunarstöð:
Taiyo TD—A 130.
Loran:
Simrad LC 204, sjálfvirk'
ur loran C móttakari, weð
TP skrifara.
Dýptarmælir:
Simrad EQ 38 með 30x30/
10 botnspegli, MC botn-
stækkun og TE 3 púls'
sendi.
Dýptarmælir:
Simrad EQ 50 með 12x24/
9 botnspegli og mögb'
mögulegri tengingu vl°
MC og TE 3.
Fisksjá:
Simrad CI.
Asdik:
Simrad SK 3.
Netsjártæki:
Simrad FB 2 með EQ ^
sjálfritara, FI botnþreif
ara og sjóhitamæli
2000 m kapli.
Talstöð: ^
Sailor T122/R106, 400 V'
SSB.
Örbylgjustöð:
Simrad PC, 25 W.
Veðurkortamóttakari:
Taiyo TF787.
Sjóhitamælir:
Foster Cambridge. -
Af öðrum tækjabúnaðþ
nefna National kallkerfi, síma,
kerfi og Simrad vörð. Aftast _
stýrishúsi eru stjórntæki
Framh. á bls. f
180 — Æ G I R