Ægir - 01.09.1977, Side 7
RIT FISKIFÉLAGS ÍSLANDS
70. ÁRG. 15. TBL. 1. SEPTEMBER 1977
Ægir sjötíu ára
EFNISYFIRLIT:
Ægir sjötíu ára 277
Lúövík Kristjánsson:
eiðimannaþ.jóðfélag —
bændaþjóðfélag 278
Davíð Ólafsson:
Brennandi í andanum 282
Kinar Guðfinnsson:
.. ^njtleiðingar í tilefni
sjótíu ára afmælis Ægis 283
Asgeir Jakobsson:
ferð en jöfn —
stefnunni- haldið 286
Tilkynning til
sjófarenda 287
Ný fiskiskip:
Ásbjörg ST 9 288
Opinberir styrkir og
niðurgreiðslur 289
A f m.æliskvcðjur:
Margeir Jónsson
útgerðannaður 290
Hilmar Bjarnason,
erindreki 291
'-tfluttar sjávarafurðir
1 júní og jan.-júní
1977 og 1976 292
Fiskaflinn í júní og
jan.-júní 1977 og 1976 294
. Hiskveiðar Færeyinga
'..íslenzkri fiskveiðilög-
50&u stöðvaðar 10. sept. 296
^eiðar Norðmanna á Is-
iandsmiðum stöðvaðar
frá og með 16. sept. 296
ÚTGEFANDI:
FISKIFÉLAG ÍSLANDS
HÖFN. INGÖLFSSTRÆTI
S(MI 10500
RITSTJÓRN:
MÁR ELlSSON (ábm.)
JÓNASBLÖNDAL
AUGLÝSINGAR:
GUÐMUNDUR
INGIMARSSON
UMBROT:
GÍSLI ÓLAFSSON
PRENTUN:
ÍSAFOLD
ÁSKRIFTARVERÐ
2000 KR. PR. ÁRG
KEMUR ÚT
HÁLFSMÁNAÐARLEGA
Á þessu ári fyllir Ægir sjö-
tugasta árganginn, en á árinu
1975 voru liðin sjötíu ár frá
því er blaðið hóf göngu sína
undir ritstjórn Matthíasar
Þórðarsonar frá Móum. Hélt
hann blaðinu úti fram á mitt
ár 1909. Þá varð nokkurt hlé
á útgáfu þess, eða til 1912,
mest vegna anna Matthíasar
eða eins og hann segir sjálfur
í ritstjórnargrein í 1. tbl. árs-
ins 1912:
„Hinn fyrri útgefandi felldi
ritið niður á sínum tíma, ekki
vegna þess, að það bæri sig
ekki eða af því að áhugi hans
hefði dofnað, heldur eingöngu
vegna þess, að hann mátti
ekki skipta starfskröftum sín-
um, og hafði ekki tíma til að
sinna útgáfu þess.“
Fiskifélag íslands var stofn-
að í febrúar 1911 og var Matt-
hías einn stofnenda. Tók félag-
ið við útgáfu ritsins og hefur
haldið því fram síðan.
Tilgangurinn með útgáfunni
var fyrst og fremst að fjalla
um hagsmunamál sjávarút-
vegsins hverju sinni, vekja at-
hvgli á nýjungum við veiðar
og vinnslu sjávarfangs, fjalla
um öryggis-, og slysavamar-
mál, fræðslumál, og margt
fleira mætti nefna.
Þá hefur ritið frá upphafi
lagt mikla áherslu á landhelg-
ismálið, enda hefur Fiskifélag-
ið alla tíð verið mjög hvetj-
andi um aðgerðir, er stefndu
að verndun fiskimiðanna og að
yfirráðarétti íslendinga yfir
þeim.
Á þeim þremur aldarfjórð-
ungum, sem eru liðnir frá því
að Ægir kom fyrst út, hafa
verið gerðar margvíslegár
brevtingar á útliti blaðsins og
efni, í flestum tilfellum í sam-
ræmi við kröfur tímans, vegna
breytinga á þjóðfélagsháttum.
Framvegis eins og hingað
til mun Ægir kappkosta að
flytja lesendum sínum í hópi
sjávarútvegsmanna fregnir, er
að gagni koma um tækninýj-
ungar og öryggismál, um
fiskveiðar, vinnsluaðferðir og
markaðsmál.
Á öðrum stað hér í blaðinu
birtast ávörp frá tveim fyrr-
verandi ritstjórum Ægis í til-
efni þessa afmælis, svo og hug-
leiðingar þeirra Einars Guð-
finnssonar frá Bolungavík,
sem um áratugi hefur verið
meðal helztu framámanna
Fiskifélagsins, og Ásgeirs
Jakobssonar, sem um langt
skeið hefur ritað í blaðið og
jafnframt skrifað og þýtt
handbækur, er Fiskifélagið
hefur gefið út og ætlaðar eru
til kennslu og almennrar
fræðslu þeirra er sjóinn sækja.