Ægir - 01.09.1977, Blaðsíða 18
NÝ FISKISKIP
Ásbjörg ST 9
1. júlí sl. afhenti Skipa-
smíðastöðin Skipavík h.f. í
Stykkishólmi nýtt 47 rúm-
lesta eikarfiskiskip, sem er ný-
smíði nr. 15 hjá stöðinni, og
hlaut skipið nafnið Ásbjörg
ST 9. Skip þetta er byggt eftir
sömu teikningu og nýsmíði nr.
14, Kristbjörg ÞH 44 (8. tbl.
Ægis ’75), hjá umræddri stöð.
Eigendur skipsins eru Bene-
dikt Guðjónsson, sem jafn-
framt er skipstjóri, Daði Guð-
jónsson og Guðlaugur Trausta-
son, Hólmavík.
Fremst í skipinu, undir þil-
fari, er lúkar en þar fyrir aft-
an fiskilest, þá vélarúm, káeta
og stýrisvélarrúm aftast.
Fremst í fiskilest er fersk-
vatnsgeymir og keðjukassi, en
brennsluolíugeymar eru í síð-
um vélarúms. Vélarreisn og
þilfarshús, aftan til á þilfari,
eru úr áli.
Aðalvél skipsins er Cater-
pillar, gerð D 343 TA, sex
strokka fjórgengisvél með
forþjöppu og eftirkælingu,
sem skilar 365 hö við 1800
sn/min. Vélin tengist skipti-
skrúfubúnaði með niður-
færslugír (4.6:1) frá Fernholt
og Giertsen af gerðinni PB
1-43. Skrúfa er 3ja blaða, þver-
mál 1400 mm.
Framan á aðalvél er aflút-
tak frá Twin Disc, gerð Clll
PM3 (1:1) og við það tengd
vökvaþrýstidæla frá Denison,
sem er fyrir vindur skipsins.
Dælan er af gerðinni T5DC-
45-22 3L (tvöföld) og skilar
um 200 1/mín við 1000 sn/mín
og 175 kg/cm2 þrýsting.
Hjálparvélar eru tvær. Önnur
vélin er frá Mercedes Benz,
gerð OM314, 39 hö við 1500
sn/mín og við hana tengist
riðstraumsrafall frá Stamford,
gerð MC20B, 25 KW, 220 V.
Hin vélin er frá Lister, gerð
SR2, 10 hö við 1500 sn/mín
og við hana tengist rið-
straumsrafall frá Dale, gerð
EM 625 DLX, 6.25 KW, 220 V.
Stýrisvél er frá Wagner, gerð
T5, rafstýrð og vökvaknúin,
snúningsvægi um 475 kpm.
Fyrir vélarúm og loftnotkun
véla er einn rafdrifinn blásari
frá ASEA, gerð PH400, afköst
70 m3/mín. Rafkerfi skips-
ins er 220 V riðstraumur al-
mennt, en 24 V jafnstraumur
frá geymum fyrir handfæra-
rúllur og þá notendur, sem
krafist er samkvæmt reglum.
Upphitun er með rafmagnsofn-
um. Neyzluvatnsdæla er frá
Bryne, afköst 1000 1/klst. Fyr-
ir fiskilest er kæliþjappa frá
Tecumseh, gerð VFTL, afköst
2000 kcal/klst, við h-10°C/—
+ 25°C, kælimiðill er Freon 12.
I lúkar eru sex hvílur og
eldunaraðstaða, rafmagnselda-
vél, ísskápur og frystiskápur.
í káetu eru þrjár hvílur. Þil-
farshús skiptist í stýrishús
fremst, en aftantil er skip-
stjóraklefi, með einni hvílu,
og salernisklefi.
Loft fiskilestar er einangrað
með 2" plasti og klætt með
krossviði. Afturþil er einangr-
að með asbesti, vélarúmsmeg-
in. Lestarstoðir, stíu- og hillu-
borð eru úr áli, svo og lestar-
gólf. Lestin er kæld með kæli-
leiðslum í lofti.
Vökvaknúnar vindur eru fra
Vélaverkstæði Sigurðar Svein-
björnssonar h.f., og er um að
ræða togvindu, línuvindu og
bómuvindu. Togvindan er af
gerðinni HD 750 L, búin
tveimur togtromlum (180 mm
x820 mm“x500 mm), löndunar-
tromlu, keðjuskífu og tveimur
koppum. Hún er knúin aí
tveimur Denison M3Dl3°
vökvaþrýstim., um snekkju-
drif. Togátak vindu á miðja
tromlu (500 mm°) er 2.4 t og
tilsvarandi vírahraði um "u
m/mín með öðrum mótornum
en ef báðir eru notaðir fást 4.
t og um 45 m/mín vírahraði-
Miðað við eðlilega tromlufy11'
ingu taka tromlurnar um
800
faðma af IV2" vír. Línuvinda
er af gerðinni HN 200, 2.0 ■
Bómuvinda er af gerðinni H
75, 0.75 t. Þá eru í skipinu V
rafdrifnar handfæravindur,
frá Autofisker og 4 frá E
ectra, gerð Maxi.
Mesta lengd 20.50 m
Lengd milli lóðlína 18.40 m
Breidd (mótuð) 4.98 m
Dýpt (mótuð) 2.43 m
Brennsluolíugeymar 4.0 m3
Ferskvatnsgeymir 1.5 m3
Lestarrými 32 m3
Rúmlestatala 47 brl
Skipaskránúmer 1487
288 — Æ GI R