Ægir - 01.01.1979, Síða 27
Þorsteinn Gíslason:
Stjórnun fískveiða
og fískvinnslu
Á seinni árum hefur stjóm-
un fiskveiða farið ört vax-
andi með auknum afskiptum
þess opinbera. Þessi afskipti
má að sjálfsögðu gagnrýna,
en eitt er þó víst að margt
hefur orðið til lausnar til-
fallandi vandamála. öruggt
er, að hvergi í heiminum
hefur svo umfangsmikið kerfi
hlaðist utan um jafnfáa fiski-
menn og við eigum. Fiski-
þing undanfarinna ára hafa
ályktað og gert samþykktir um stjórnun fiskveiða.
Þessum málum hefur verið fylgt eftir og vissulega hafa
mörg hlotið verðskuldaða meðferð og orðið til bóta.
Frá fjórðungsþingum fiskideildanna liggja hér frammi
margar athyglisverðar og ágætar tillögur og verða þær hér
til umræðu í dag. Ég ætla nú að leyfa mér. með leyfi
forseta, að fara yfir þessar tillögur.
I. Tillögur Austfirðinga
!• Takmörkun þorskveiða.
..Fjórðungsþing F.D.A. haldið á Hornafirði 15.-16.
sept. 1978 ályktar að þar sem ráðstafanir sem gerðar hafa
verið á undanförnum árum. til að halda þorskveiðum
mnan þeirra marka sem fiskifræðingar telja æskilegt,
hafi ekki borið tilætlaðan árangur, og veiðarnar farið
verulega fram úr þeim mörkum, þá telur þingið að skipu-
'ag veiðanna verði að taka til endurskoðunar, í fyrsta
'agi verði komið á kvótaskiptingu milli skipa. sem telja
verður æskilegast, eða að veiðarnar verði stöðvaðar þegar
hámarksafla er náð. Þó verði að taka fullt tillit til smá-
háta sem stunda þorskveiðar takmarkaðan tíma úr árinu,
en mörg smærri byggðarlög byggja lífsafkomu sína á
þessum veiðum. Þingið telur það algera óhæfu að hluti
'ú þeim þorski sem veiddur er. fari til mjölvinnslu og
‘úítur að koma megi í veg fyrir það með skipulagningu
a löndun aflans, eða að útivistartími skipanna verði
styttur."
2. Humarveiðar.
..Fjórðungsþing F.D.A. haldið á Hornafirði 15.-16.
sept. 1978 bendir á eftirfarandi atriði varðandi humar-
veiðar:
1. Það ástand virðist vera að skapast í humarveiðum,
að hlutur smáhumars hefur farið vaxandi ár frá ári. Vill
þingið benda á hvort ekki beri að auka eftirlit með
veiðunum, t.d. með því að hafa eftirlitsmann um borð í
bátunum, sem hafi vald til að loka svæðum fyrirvaralaust,
ef um óeðlilega mikinn smáhumar væri að ræða. Þingið
telur að þetta sé eina leiðin til að koma í veg fyrir
að þeir atburðir endurtaki sig er áttu sér stað s.l. sumar,
þegar óhemju magni af smáhumri var mokað í sjóinn með
ófyrirsjáanlegum afleiðingum varðandi framhald þessara
veiða.
2. Þingið telur að einnig komi til greina að veiða ákveðið
magn á hverju svæði og loka því síðan. Þetta er gert með
skel og rækjuveiðar og virðist gefa góða raun. Um
ákvarðanatöku í þessu sambandi skal fara eftir veiði-
skýrslum undanfarin ár.
3. Þingið bendir á að takmarka beri lengd veiðiferða,
þannig að hver veiðiferð sé ekki lengri en 5 sólarhringar.
Með núverandi geymsluaðferðum um borð í bátum telur
þingið að geymsluþol humarsins sé ekki lengra."
3. Síldveiðar.
..Fjórðungsþing F.D.A. haldið á Hornafirði 15.-16.
sept. 1978, beinir þeim tilmælum til Fiskiþings að komið
verði á framfæri við rétta aðila:
1. Síldveiðar verði ekki leyfðar á haustin. fyrr en síldin
er orðin það feit að hún sé söluhæf vara.
2. Verðlagsráð ákvarði verð á úrgangssíld til bræðslu.
3. Þingið telur æskilegt að gæðamat fari fram á síld eins
og öðrum fiski."
4. Seiðadráp.
..Fjórðungsþing F.D.A. haldið á Hornafirði 15.-16.
sept. 1978, beinir því til Fiskiþings, vegna þráláts orð-
róms um seiðadráp í ýmis veiðarfæri:
Að Hafrannsóknastofnuninni verði gert kleift að
fylgjast betur með afla, sem veiðist í spærlings-, humar-
og rækjutroll, en verið hefur hingað til.“
5. Sandsílaveiðar.
..Fjórðungsþing F.D.A. haldið á Hornafirði 15.-16.
sept. 1978, beinir því til Fiskiþings að sandsílaveiðar
verði ekki leyfðar.
Greinargerð:
Það er vitað að sandsílið heldur sig á grunnsævi og
takmörkuðu svæði við Suðausturland og hætt við að alls-
konar fiskseiði veiðist með sílinu. Einnig er vitað að
sandsílið er mikilvægur hlekkur í fæðukeðju helstu nytja-
fiska okkar."
ÆGIR — 15