Ægir - 01.01.1979, Side 28
6. Grásleppuveiðar.
„Fjórðungsþing F.D.A. haldið á Hornafirði 15.-16.
sept. 1978, beinir því til Fiskiþings að fylgja þvi eftir.
að reglugerð nr. 135 frá 2. mars 1977 um grásleppu-
veiðar verði felld niður, en reglugerð nr. 66 frá 14.
janúar 1977 um grásleppuveiðar verði áfram í gildi
óbreytt og leggur þingið sérstaka áherslu á að ákvæði
2. gr. og 4. gr. reglugerðar nr. 66 verði haldið."
7. Kolaveiðar.
„Fjórðungsþing F.D.A. haldið á Hornafirði 15.-16.
sept. 1978, samþykkir eftirfarandi varðandi veiðar á kola:
1. Að kolastofninn verði nýttur þar sem það spillir ekki
öðrum veiðum.
2. Að möskvi dragnóta verði 170 mm í allri nótinni.
3. Að samráð verði haít við Fiskifélag íslands um fram-
kvæmd veiðanna."
II. Tillögur Norðlendinga
A. „Haldið verði áfram þeim óbeinu þorskverndunar-
aðgerðum, sem í gildi hafa verið.“
Samþykkt með öllum atkvæðum.
B. „Þorskveiðibann verði 15 dagar á tímabilinu 10.
desember 1978 til 10. janúar 1979.“
Samþykkt með 10 atkv. gegn 2.
C. „Bönnuð verði veiði með flotvörpu á tímabilinu
1. júlí til 30. ágúst á árinu 1979, enda komi þessi sam-
þykkt í stað tillögu frá síðasta Fiskiþingi um takmörkun
þorskveiða togskipa tímabilið 10/6. til 30/9."
Samþykkt með 10 atkv. gegn 2.
D. „Komið verði á fljótvirkari aðgerðum í sambandi
við lokun og opnun veiðisvæða, þar sem smáfiskur er.“
Samþykkt með öllum atkvæðum.
E. „Bannaðar verði veiðar frá 10. desember til 10.
janúar ár hver með þorsknetum."
Samþykkt með samhljóða atkvæðum.
III. Tillögur Sunnlendinga
1. Fjórðungsþing Sunnlendinga vill vekja athygli 37.
Fiskiþings á þeim árangri, sem eftirlitsmenn sjávarút-
vegsráðuneytisins um borð í fiskiskipum hafa náð. Þingið
álítur að þeim verði að fjölga verulega frá því sem nú
er og eftirlitið verði gert víðtækara og nái til fleiri
veiða, svo sem spærlings- og humarveiða.
2. Fjórðungsþing Sunnlendinga beinir því til 37. Fiski-
þings að friðunarsvæðið á Selvogsbanka, svokallað „Frí-
merki" verði óbreytt, en togveiðar verði bannaðar utan
þess allt út á fiskveiðilandhelgismörk.
3. Fjórðungsþing Sunnlendinga ítrekar fyrri samþykktir
varðandi:
1. að togveiðar verði bannaðar frá áramótum til 15. maí
á svæði frá 22. lengdarbaug að Þjórsárósum, 10 mílur
frá landi, enda er slíkt bann forsenda þess að línuveiðar
megi stunda með árangri á þessu svæði.
2. Ennfremur að leitað verði að rækjumiðum á djúp-
slóðum undan Suðurlandi þar sem í ljós hefur komið að
tekist hefur að veiða rækju á meira dýpi og á verri
botni en áður með bættum tækjakosti.
4. Fjórðungsþing Sunnlendinga beinir því til 37. Fiski-
þings að endurskoðuð verði ákvæði að því er varðar
dýptarmörk spærlingsveiða.
5. Fjórðungsþing Sunnlendinga ályktar að þar sem ekki
hefir verið farið eftir samþykktum Fiskiþings. fiski-
fræðinga og annara aðila um 280 þús. tonna hámarks-
afla við strendur landsins, verði ekki hjá því komist að
deila niður heildarþorskaflanum á milli fiskiskipa lands-
manna. Því leggur þingið til að hverjum togara verði
heimilt að afla 1600 tonn af þorski á næsta ári og
bátaflotanum verði heimilaðar veiðar á um það bil 150
þús. tonnum.
6. Fjórðungsþing Sunnlendinga ályktar, þar sem ástand
fiskstofna er í því lágmarki. sem aflabrögð og álit fiski-
fræðinga vitna um beri nauðsyn til. að nú þegar verði
öllum veiðiheimildum annarra þjóða sagt upp. Ennfremur
ályktar þingið að nota beri heimild laga um 200 sjómílur
milli Jan Mayen og íslands og fyllstu hagsmuna íslands
sé gætt á Rockall hafsvæðinu.
7. Fjórðungsþing Sunnlendinga beinir því til 37. Fiski-
þings að tekin verði upp kvótaskipting milli báta á rek-
netum, þar sem heildarkvóti er ákveðinn á hverju ári.
Sýnist eðlilegt að hver bátur hafi kvóta vegna þess að
síldin virðist staðbundin og allt að 20-26 tima stím er
til löndunarhafna ýmissa báta. Virðist því eðlilegt að
kvótaskipting verði milli reknetabáta jafnt sem hringnóta-
báta.
8. Fjóðrungsþing Sunnlendinga samþykkir að mótmæla
því að þorskanetaveiðar séu háðar leyfurn frekar en
aðrar þorskveiðar.
9. Fjórðungsþing Sunnlendinga varar þing og ríkisstjórn
við því að fella úr gildi síðasta lið laga (I3.gr.) unt
veiðar í Fiskveiðilandhelgi íslands nr. 81, 31. maí 1976.
IV. Tillögur Vestfirðinga
Takmörkun sóknar í þorskstofninn.
38. Fjórðungsþing fiskideildann á Vestfjörðum haldið á
ísafirði 5. nóv. 1978 telur Ijóst. að þorskaflinn á líðandi
ári muni, svo sem árið 1977, fara nokkuð fram úr því
marki, sem miðað var við í ársbyrjun, þrátt fyrir veiði-
stöðvanir og takmörkun á magni þorsks í afla togara um
viss veiðitímabil.
Fjórðungsþingið minnir á fyrri ábendingar sínar um að
þær samdráttaraðgerðir, er beitt hefir verið og beitt
verður, séu neyðarráðstafanir, sem hvað þyngst koma
niður á íbúum þeirra framleiðslubvggðarlaga. er fyrst og
fremst byggja afkomu sína á aflafeng og vinnslu.
Þingið telur ljóst að beita þurfi verulegum aflatak-
16 — ÆGIR