Ægir - 01.01.1979, Side 35
Gunnar Flóvenz:
Markaðsmál
Fiskiðnaðar- og tækni-
nefnd hefir haft til umfjöll-
unar erindi fjórðungsþings
sambands fiskideilda í Aust-
firðingafjórðungi varðandi
markaðsmál sjávarafurða.
Þar sem ekki lá alveg ljóst
fyrir hvað að baki bjó fyrsta
og öðrum lið tillögunnarfyrr
en málið var tekið til af-
greiðslu í nefnd okkar, og
ekki síður vegna hinna miklu
umræðna, sem tillaga þessi
hratt af stað hér á þinginu s.l. miðvikudag, tel ég óhjá-
kvæmilegt að fara nokkrum orðum um þingmál þetta
áður en ég skýri frá ályktun nefndarinnar.
A fyrsta fundi í nefndinni skýrðu fulltrúar frá Aust-
fjörðum svo frá, að hér væri um að ræða ósk eins aðila úr
umdæmi þeirra, þess efnis að fiskiþing taki afstöðu til
hugsanlegrar breytingar á núverandi fyrirkomulagi á út-
flutningi og sölumálum fiskafurða á þann hátt að ein-
stökum framleiðendum verði heimilt að selja og flytja
ut tiltekna fiskafurð án milligöngu viðkomandi sölusam-
taka. Mun hér vera um svipuð viðhorf að ræða og fram
komu hjá einunr fulltrúa Vestfirðinga i umræðunum um
tnarkaðsmálin.
A fundum í fiskiðnaðar- og tækninefnd komu fram
mismunandi viðhorf til þessa máls en þó náðist sam-
komulag um eftirfarandi ályktun:
-.1. Fiskiþing telur að ekki sé fært að kveða á um eitt
allsherjarfyrirkomulag í sölu- og markaðsmálum þar sem
um margar og ólíkar afurðir er að ræða. enda hyggi-
legast að framleiðendur í hverri framleiðslugrein komi sér
sjaltir saman um það sölufyrirkomulag sem þeir telja
æskilegast.
-■ Þingið er þeirrar skoðunar að góð samstaða og
samvinna fiskframleiðendg innbyrðis sé höfuðforsenda
Vr>r góðum árangri í sölu- og markaðsmálum og
hvetur því framleiðendur til að gera sitt ítrasta til að
'eysa hugsanleg ágreiningsmál innan viðkomandi fram-
leiðslugreina hverju sinni."
hví er ekki að neita að sölufyrirkomulagi því, sem
við búum við að því er snertir ýmsar stærstu og við-
kvæmustu framleiðslugreinarnar fylgja bæði kostir og
gallar. Þó ætla ég að kostirnir séu mun fleiri og þyngri
á metunum en gallarnir auk þess sem úr göllunum má
draga með virkari þátttöku og samstöðu framleiðenda
innan sölusamtakanna og með eðlilegu aðhaldi.
Annað það mál, sem fiskiðnaðar- og tækninefnd var
falið að gera tillögur um, fjallar um hugsanlega frestun
á gildistöku tollalækkanna hér vegna samninga okkar við
Fríverslunarbandalag Evrópu og Efnahagsbandalag
Evrópu.
Nefndin varð sammála um eftirfarandi tillögu:
„Fiskiþing varar við frestun á fyrirhuguðum lækkunum
á tollum samkvæmt samningum íslands við Fríversl-
unarbandalagið og Efnahagsbandalag Evrópu. þar sem
hætta er á að slík frestun geti valdið íslenskum sjávar-
útvegi og fiskiðnaði alvarlegu tjóni.“
Þriðja málið, sem fiskiðnaðar- og tækninefnd hefir
haft til umfjöllunar varðar upplýsingastarfsemi um
markaðsmál sjávarútvegsins, sbr. þriðju grein ellefta
liðar í samþykktum fjórðungsþings sambands fiskideilda
í Austfirðingafjórðungi. Nefndin varð sammála um eftir-
farandi ályktun:
..Fiskiþing hvetur alla þá aðila, sem annast markaðs-
og sölumál sjávarafurða til að halda uppi sem víðtækastri
upplýsingastarfsemi, enda telur þingið að framleiðendur
fiskafurða og aðrir þeir. sem beinna hagsmuna eiga að
gæta í þessu sambandi. eigi rétt á að fylgjast stöðugt
með þróun þessara mála og ástandinu hverju sinni."
Ég er ekki í neinum vafa um, að ítarleg upplýsinga-
starfsemi á þessu sviði er bæði nauðsynleg og gagnleg.
Hinu ber þó ekki að neita, að þetta er að sumu leyti
vandmeðfarið mál, m.a. af eftirfarandi þrem ástæðum og
vona ég að þingfulltrúar virði það til betri vegar þótt
ég vísi lítilsháttar til eigin reynslu á þessu sviði ef
það mætti verða að einhverju gagni.
I fyrsta lagi þarf hver stofnun að gera það upp við sig
hvaða aðilum skuli senda umræddar upplýsingar, því
fleiri eiga oft hlut að máli en framleiðendur viðkom-
andi afurða. Ég hefi valið þá leið. í stofnun þeirri, sem
ég starfa fyrir, að senda sérstök fjölrituð upplýsingabréf
til allra framleiðenda auk bréfa og símskeyta varðandi
ýmis sérmál.
Upplýsingabréfin eru einnig send forsvarsmönnum
samtaka útvegsmanna og sjómanna svo og viðkomandi
ráðuneytum. bankastjórum og ýmsum öðrum aðilum,
sem óskað hafa sérstaklega eftir að fá umræddar upp-
lýsingar.
Vegna sífelldra óska fjölmiðja um upplýsingar og
fréttaefni og mikillar vinnutafar af þeim sökum. hefi ég
gripið til þess ráðs, að senda út tvennskonar upplýs-
ingabréf. Annars vegar almenn bréf, sem einnig eru send
fjölmiðlum og hins vegar bréf, þar sem tekið er fram,
að um trúnaðarmál sé að ræða vegna markaðsaðstöðunn-
ar og keppinautanna erlendis og eru trúnaðarbréfin miklu
fleiri en hin almennu. Með fáum undantekningum hafa
ÆGIR — 23