Ægir - 01.01.1979, Side 39
..Fjórðungsþing F.D.A. haldið á Hornafirði 15. 16.
sept. 1978 leggur til eftirfarandi:
F Þingið heinir því til Fiskiþings að skora á L.í. að
ráða hót á því ófremdarástandi sem verið hefur á
þjónustu Landsímans á SA og A landi á talstöðva-
viðskiptum. En það er þannig að nálægt landi frá
Evstra Horni að Kamhanesi næst V.H.F. samhand
hvorki \ið Hornafjörð né Neskaupsstað. Svipað
ástand ríkir við Bakkaflóa og Vopnafjörð. Þingið
skorar þ\í á L.í. að sjá til þess að settir verði
upp V.H.F. sendar. t.d. á Djúpavogi, Vopnafirði og
víðar cf ástæða þykir til. Ennfremur viljum \ ið benda
á að Raufarhafnarradíó hefur ekki hlustun nema á
daginn.
2. F.D.A. vekur athygli Fiskiþings á h\ort ekki sé
tímabært að sctja lög um notkun aflmikilla véla í
opnum bátum. Einnig telur þingið að setja beri lög
þess efnis. að léttir plastbátar sem notaðir eru á sjó
eða vötnum séu með flothylkjum.
7. Þar sem veðurathugunarstöðin í Skoruvík á Langa-
nesi hcfur \erið lögð niður. er kornin eyða í upp-
lýsinganet Veðurstofu íslands. Þingið leggur þ\í til
að kornið \crði á fót veðurathugunarstöð í Strand-
höfn við Vopnafjörð.
4. Þingið beinir þ\í til Fiskiþings og Siglingamála-
stofnunar ríkisins. hvort ckki sé tímabært að setja lög
um notkun ískastara á skipum sem stunda veiðarfvrir
Vestur og Norðurlandi. svo sem á togurum og loðnu-
veiðiskipum."
Þá vill Fiskiþing mæla með eftirfarandi.
1. Rannsóknarnefnd sjóslysa fái nú þegar skip til
þess að ljúka tilraunum sínum varðandi útbúnað
og rek gúmbáta. Niðurstöður könnunarinnar
verði birtar svo fljótt sem kostur er.
II. Siglingamálastofnunin geri athugun á hvort ekki
sé rétt að settir verði örbylgjuneyðarsendar í
alla gúmbáta í íslenskum skipum.
III. Siglingamálastofnunin hlutist til um að fram
fari stöðugleikaprófanir á öllum skipum sem
verulegar breytingar eru gerðar á. eins og reglu-
gerð kveður á um.
IV. Siglingamálastofnunin fylgist ætíð vel með nýj-
ungum í brunavörnum.
V. Skorað er á útgerðarmenn og skipstjóra að láta
mála járndekk skipa sinna með þar til gerðri
málningu. sem dregur úr hálku.
VI. Fiskiþing vill enn sem fvrr benda á nauðsvn
þess að kennsla verði aukin á notkun gúm-
björgunarbáta. Þá telur þingið að kvikmynd sú
sem notuð hefur verið í þessu skyni þurfi nauð-
synlega endurbóta við og skorar á samgöngu-
ráðherra og siglingamálastjóra að hrinda þessu í
framkvæmd.
VII. Fiskiþing ítrekar þau tilmæli að hástokkar og
stýrishús smábáta skuli málaðir orange rauðum
iit.
VIII. Fiskiþing skorar á skipstjóra þá. sem séð hafa
um veðurathuganir fyrir Veðurstofu íslands og
fengið hafa gögn frá Alþjóðaveðurfræðistofunni.
að þeir fylli þessi eyðublöð út af samviskusemi
og láti ekki lenda í undandrætti að senda niður-
stöður til Veðurstofunnar.
IX. Fiskiþing harmar þá afstöðu sem siglingamála-
stjóri hefur tekið til tillagna rannsóknarnefndar
sjóslvsa \ arðandi tillögur hennar til úrbóta á bún-
aði gúmbjörgunarbáta og fleira. Væntir þingið
þess að þrátt fyrir það sem gerst hefur í við-
skiptum þessara umræddu stofnana verði teknar
upp viðræður um þær ábendingar, sem nefndin
hefur gert. og tillögurnar ræddar án fordóma.
X. Að hafnastjórnir hinna ýmsu hafna geri úrbætur
fyrir smærri báta svo að auðveldara verði að
komast um borð í þá, t.d. með flotbryggjum.
XI. Að öll skip 200 tonn og stærri verði með land-
ganga svo menn séu ekki í bráðri hættu þegar
þeir fara á milli skips og lands.
XII. Fiskiþing skorar á fjárveitinganefnd Alþingis að
veita Veðurstofu íslands fé á fjárlögum 1979 til
þess að mögulegt sé að hefja útsendingu veður-
og ískorta til skipa.
XIII. 37. Fiskiþing skorar á vitamálastjóraaðnú þegar
verði settur radarspegill á Tvísker, Kolbeinsey.
Afkoma sjávarútvegsins
1. Á undanförnum Fiskiþingum hafa verið samþykktar
gagnorðar ályktanir varðandi hinn hrikalega og öra
vöxt verðbólgunnar, frá ári til árs, og stjórnvöld
jafnan vöruð við afleiðingum þeirrar óheillaþróunar
er slíkt hefur á allan rekstur útgerðar og fiskvinnslu.
Það er álit 37. Fiskiþings að lengur sé ekki hægt
að una þeim vanmætti sem stjórnmálamenn þjóðar-
innar hafa sýnt. til að taka á þeim vanda er snýr
að ríkisfjármálum og opinberum framkvæmdum sér-
staklega, af fullri ábyrgð. Þingið skorar á Alþingi
og ríkisstjórn að ganga nú til verka af fullri einurð
og kveða verðbólguna niður.
Það er álit þingsins að við slíkt verk verði stjórn-
málamennirnir fyrst og ffemst að taka mið af eftir-
farandi atriðum:
a) Ráðstafanir til skamms tíma duga ekki.
b) Sérstöðu sjávarútvegsins meðal atvinnuvega lands-
ntanna, sem fólgin er í því að hann verður að lang
mcstu levti að sæta því verðlagi. fvrir framleiðslu
sína, sem er á erlendum mörkuðum á hverjum tíma.
Ásamt því að góð og jöfn afkoma sjávarútvegsfyrir-
tækja í landinu er forsenda þess að þjóðin geti búið
við efnahagslegt öryggi.
ÆGIR — 27