Ægir - 01.01.1979, Side 44
Nor-Fishing var nú haldin í Oslo,
og er það í fyrsta sinn sem hún
er haldin þar. Þetta var sjöunda
alþjóðlega fiskveiðisýningin sem
Norðmenn standa fyrir en þær
fyrstu voru haldnar í Bergen og
síðan í Þrándheimi. Mjög voru
skiptar skoðanir um hvort það
væri heppilegt að halda sýningu
sem þessa í Oslo, þar sem enginn sjávarútvegur eða fisk-
framleiðsla á sér stað í borginni, en hin góða aðstaða
sem fyrir hendi er þar hvað varðar samgöngur, hótel-
rými svo og hin stóra sýningarhöll, Sjölyst miðstöðin,
reið baggamuninn, og Oslo varð fyrir valinu.
Sýningin var geysiyfirgripsmikil, og voru í allt 155
sýningaraðilar frá 15 löndum, en vörurnar frá 334 fram-
leiðendum. Frá því að fyrsta sýningin var haldin 1960
hefur tækniþróunin verið ör, og má segja að á mörgum
sviðum sjávarútvegs hafi orðið gjörbylting. Er nú svo
komið að eitt af meginmarkmiðunum í dag er að vernda
fiskstofnana fyrir ofveiði og er þörfin orðin mest fyrir
að þróa og framleiða veiðarfæri, sem gætu valið úr fisk-
inum, þannig að ungfiskur sleppi og nái að vaxa upp. Það
er einnig augljóst, að eitt af aðalmarkmiðunum sem að
verður keppt í framtíðinni er að aflinn verði nýttur til
hins ýtrasta og á sem hagkvæmastan hátt.
Hvort þörf er á sýningu sem þessari annað hvert ár cr
erfitt að segja til um og varla er við því að búast, að
margt nýtt komi fram á sjónarsviðið á svo stuttum tíma.
Eru skoðanir Norðmanna mjög skiptar um þetta atriði.
Þeir, sem eru því fylgjandi að svo verði, benda á, að
sýningunni sé ekki eingöngu ætlað að kynna fram-
leiðslu hinna ýmsu fyrirtækja. heldur sé hún hugsuð
til að auka útflutning þeirra. Um þessar mundir binda
Norðmenn miklar vonir við að þróunarlöndin, sem mörg
hver hafa nú yfir að ráða stórum hafsvæðum með gjöf-
ulum fiskimiðum, komi til með að hefja umfangsmikil
viðskipti við þá á þessu sviði. Mættum við íslendingar
taka þetta til athugunar og e.t.v. blanda okkur í slaginn.
Sem dæmi má nefna að hin ríku Arabalönd eru núgreini-
lega að hugsa sér til hreyfings hvað varðar sjávarútveg
og vantar allt til alls. I69f þeirra sem sýninguna sóttu
voru útlendingar frá um 60 löndum, og voru allmargir
þeirra frá þróunarlöndunum. og \oru þeir að kynna sér
hvað Norðmenn væru færir um að hjóða þeim. nteð tilliti
til þeirra eigin fiskveiða. Alls sáu um 10.000 manns
sýninguna og cr það ekki nema þriðjungur þess fjölda scm
komu á hana í Þrándheimi fyrir tveimur árum. Vilja
forráðamenn sýningarinnar halda því fram að flest allir
þeir sem sýninguna sáu að þessu sinni, hafi verið at-
vinnumenn í sjávarútvegi, en aftur á móti hafi verið
mikið um að ferðamenn sæktu hinar sýningarnar,
Mjög vel var að þessari sýningu staðið á allan hátt
og var hún Norðmönnum til hins mesta sóma. Að lokum
má geta þess. að Simrad fyrirtækið sýndi þá rausn að
bjóða hátt á annað hundrað manns, framámönnum í ís-
lenskum sjávarútvegi og aflaskipstjórum, á sýninguna og
var sú för öll hin ánægjulegasta.
f nvútkomnuni „Sambandsfréttum" er sagt frá. að
veruleg aukning hafi orðið í frystingu hjá frvstihúsunum
innan Fél. Sambandsframleiðenda á árinu 1977. oghefur
aukningin haldið áfram á þessu ári. Frá I. jan. til októ-
berloka, frystu Sambandsfrystihúsin 23.043 tonn af bol-
fiskafurðum á móti 19.363 á sama tímabili á síðasta ári.
Nemur aukningin þannig 3.680 tonnum eða 19%. Það
vekur sérstaka athvgli, að þetta hefur gerst á sama tíma
og botnfiskaflinn hefur nánast staðið í stað. Samkvæmt
aflaskýrslum Fiskifélags Islands varð botnfiskafli ís-
lenskra veiðiskipa 394.300 tonn Ivrstu níu mánuði þessa
árs. á móti 396.000 tonnum á sama tímabili á síðasta
ári.
Jafnframt er þess getið að talsverður útflutningur
hafi orðið á frystum þorskllökum með roði til Bretlands
á síðasta ári. eti nokkuð dró þó úr þessum sölum á s.l.
sumri. Var því spáð. að markaðurinn mvndi glæðast
þegar kæmi fram á haustið. og hefur þetta nú gcngið
eftir. I sept. og okt. hefur Sjávarafurðadeild afskipað
til Bretlands um 500 tonnum af frystum þorsk- og ýsu-
nökum með roði. Markaðshorfur þar eru góðar lyrir
þessar vörur. og er þess að vænta, að afskipanir geti
gengið eðlilega fvrir sig næstu mánuði.
•
Um þessar mundir er að opnast fyrir öðrurn þjóðum
hinn japanski risamarkaður fyrir fiskafurðir og er orsökin
sú að fiskimenn þcirra hafa hrakist af mörgum hinna
hefðbundnu fiskimiða sem þeir hafa stundað áratugum
saman undan ströndum Norður Ameríku og Sovét-
ríkjanna. og anna þvi ekki lengur eftirspurninni.
Japanir eru einhverjar mestu fiskætur heims, og sem dæmi
má nefna, að hver Japani neytir tvisvar sinnum meira af
sjávarafurðum en hver Norðmaður. Norðmenn flytja út
32 — ÆGIR