Ægir - 01.01.1979, Page 66
Tilkynning frá
Fiskveiðasjóði íslands
Samkvæmt reglugerð frá 5. september 1978, um ráðstöfun gengis-
hagnaðar til að greiða fyrir hagræðingu í fiskiðnaði, hefur verið
ákveðið að veita lán til fiskvinnslufyrirtækja.
Við veitingu lánanna skal við það miðað, að þau stuðli að betri nýt-
ingu hráefnis m.a. með endurnýjun á vélum og vinnslurásum, hag-
kvæmni í rekstri, stjórnunarlegum umbótum og samræmi milli veiða
og vinnslu, þ.á.m. einnig að greiða fyrir því að fyrirtæki geti lagt
niður óhagkvæmar rekstrareiningar.
Umsóknir um lán þessi sendist Fiskveiðasjóði íslands fyrir 25. janúar
1979 og fylgi þeim eftirtalin gögn:
1. Rekstrarreikningur fyrir árið 1977 og fyrir 3 fyrstu árs-
fjórðunga ársins 1978.
2. Efnahagsreikningur pr. 31. desember 1977 og 30. sept-
ember 1978.
3. Skýrslur á eyðublöðum þeim, sem send voru til frysti-
húsa frá Þjóðhagsstofnun í nóvember sl. merkt fskj. 1.-6.
um framlegðarútreikning, greiðslubyrði vaxta og afborg-
ana, veltufjárstöðu, framleiðsluskýrslu, tæknibúnað og
hráefnisöflun. Þessi eyðublöð eru einnig fáanleg á skrif-
stofu Fiskveiðasjóðs.
Við veitingu lánanna verður metinn rekstrarárangur fyrirtækjanna
og þar sem fram kemur, að nýting er léleg og framlegð lág getur sjóðs-
stjórnin skipt hagræðingarláni í tvo hluta og bundið afgreiðslu seinni
hlutans skilyrði um regluleg skil á gögnum, m.a. varðandi nýtingu,
framlegð o.fl.