Ægir - 01.06.1979, Blaðsíða 26
Sama skerm geta verkstjórar notað til að fá
margskonar aðrar upplýsingar, t.d. stöðu í hráefna-
lager, upplýsingar um framleitt magn, unninn
tíma per deild o.fl. Þessar sömu upplýsingar má
fá á öðrum skermum, sem t.d. yrðu staðsettir hjá
stjórnendum fyrirtækisins. Stjórna má í tölvunni
hvaða upplýsingum hver skermur hefði aðgang að.
Ef um það hefði verið að ræða, að margir bakka'
hefðu verið vegnir saman frá vélum, þarf að vigta
afskurð frá borðunum og er það tengt við viðkoh1
andi borð með því að láta borðaspjaldið í afskurð£lt
bakkann. Þá er: framleiðsla + afskurður = innveg1
og nýting er því hlutfall milli framleiðslu og 1Iin
vegins magns, sem fundið er á þann hátt.
Vigtun á framleiðslu í skipt kerfi
Þar sem unnið er við snyrtingu sér, er spjaldið
sem sett var i bakkann við vélasamstæðuna látið
halda áfram með bakkanum eftir að búið er að
snyrta fiskinn, jafnfram er bætt í spjaldi, sem ein-
kennir hvert borð (borðaspjald), í það er gatað
borðanúmer. Þegar bakkinn kemur á vigtina
(mynd 4) er skráningarstöðin látin lesa bæði spjöld-
in, jafnframt því sem vigtin er lesin beint eins og
áður. Með þessu er búið að tengja bakkanúmerið
á innvegnum flökum við borðið. Ef búið er að
ákveða pakkningategund er hún skráð á lykla-
borðið og er þá orðin til færsla með öllum nauð-
synlegum upplýsingum umframleiðsluhlutannfyrir
bónusútreikning. Áður voru upplýsingar um inn-
vigtun komnar og er því aðeins eftir tímaþátturinn.
Vigtun á framleiðslu frá borðum í
vinnslukerfi
Um leið og panna er tekin frá borði tekut
starfsmaður einnig borðaspjald. Skráningarsto ^
er síðan látin lesa borðaspjaldið jafnframt þvl
pakkningategundin er skráð á lyklaborðið. r1!’
tegund kemur fram i bakkaspjöldunum, sem ko
með hverjum bakka, upplýsingar um innvegið tn
fást með því að láta skráningarstöð lesa
bakka'
spjöld sem safnað er saman fyrir hverja lotu.
valin
Þegar tekin er panna, sem ekki er full, er ...^j
sérstök aðgerð á skráningarstöðinni og pakkaíl® ■
skráður á lyklaborðið. Sama verður gert ef e
stendur á heilli pönnu, þegar áhafnabreyting ver
á borði.
342 — ÆGIR